Tíminn - 12.12.1972, Page 20
20
TÍMINN
PriOjudagur 12. desember 1972
ÖLL NÚTÍMA
ÞÆGINDI Á NÝJA
BÆJARHEIMILINU
Gunnar Jónsson og Guðmundur Jónasson
seg/'a ferðasöguna fj?
JGKT-Reykjavfk.
Þeir . feröalangarnir, sem fóru
norður um öræfin á dögunum eru
nú komnir heilu og höldnu til
byggöa eítir áfallalitið ferðalag.
Við höfðum tal af Gunnari Jóns-
syni hjá Orkustofnun, sem var
með i ÍÖrinni og báöum hann að
segja okkur frá því sem á dagana
hafði drifið á leiðinni.og fer frá-
sögn hans hér á eftir.
Eins og komið hefur fram áöur
þá vorum við sex i förinni: Þor-
steinn og Guðriln,sem nú eru hús-
Þorsteinn Ingvarsson kemur inn
frá þvi að gera fyrstu veðurathug
unina á Nýjabæ.
ráöendur i Nýjabæ, bilstjórarnir
Guðjón B. Jónsson og einn maður
auk min frá Orkustofnun, Reynir
Böðvarsson, Við lögðum af stað
þann 22. nóv. fórum þann dag i
Sigöldu og bjuggum snjóbilana til
ferðar. Daginn eftir lögðum við
svo af stað og komumst norður
fyrir svokallaðar Kjalöldur en
þar bilaði annar billinn og
þurftum við að fd nýja vél i hann
senda frá Reykjavik. Þetta tafði
okkur i einn dag. Þann 25.
leggjum við aftur af stað og
komumst alla leið inn i Nýjadal
eða Jökuldal eins og sumir vilja
kalla hann, hann gengur eins og
flestir vita inn i Tungnafellsjökul
sunnanverðan. Þar á Ferða-
félagið skála og við gistum i
honum um nóttina og urðum að
halda til þar næsta dag einnig
vegna veðurs. Þegar þarna var
komið sögu, höfðum við þegar
tafizt i tvo daga, en það var lika
allt og sumt, meiri töfum urðum
við eiginlega ekki fyrir.
Við komum á áfangastað að
kvöldi þess 27. nóv. en fundum
raunar ekki húsið fyrr en morg-
uninn eftir vegna náttmyrkurs.
Þarna dveljum við svo um kyrrt i
niu daga, þann tima erum viö að
vinna að þvi aö koma þessari
starfsemi i gang. Annars er litið
um þaö að segja nema það, að
allan timann var heldur slæmt
veður. Annars er ágætt að vera
þarna, mjög hlýleg húsakynni,
húsið er litið^en mjög vel einan-
graö.
Við lögöum af stað til byggða
þann 7. des. og ferðin gekk áfalla-
laust. Annars er meiri snjór á
norðanverðu hálendinu en ég hef
vitað áður á þessum árstima,
Veðrið fór batnandi eftir þvi sem
sunnar dró og þegar við komum i
Jökuldal á föstudaginn, var þar
komið bliðskaparveður. Ferðin
gekk annars tiðindalaust og við
komum til borgarinnar um miðn-
ætti aðfaranótt sunnudags 10. des.
Við náðum einnig tali af Guð-
mundi Jónassyni bilstjóra og
spurðum hann,hvort hann teldi að
meiri snjór væri nú á hálendinu
en venja væri til. Guðmundur
sagðiy að hann hefði ekki áður
verið á ferð um Sprengisandsleið
á þessum árstima.,,En snjóalögin
voru mikil”, sagði Guðmundur ,
"og ekkert spaug að rata. Birtan
varir ekki lengi á daginn hú orðið
og jafnvel þó að eigi að heita dag-
skima^þá sér maður varla hvern-
ig snjórinn liggur við tærnar á sér
hvað þá lengra i burtu. Það eiga
að vera stikur á leiðinni,en þær
eru viða annað hvort fenntar i kaf
eða brotnar.'1 Guðmundur bætti
þvi við,að honum litist ekki á, að á
þessum slóðum væri gott linu-
stæði, leiðin niður i Bárðardal
væri um hundrað metrum lægri
og snjóléttari að sama skapi.
Við spurðum Guðmund um
heimilishald i Nýjabæ og hann
sagði,að þar væru að heita mætti
óll þægindi, þvottavél rafmagns
bökunarofn og gaseldavél. Aðal-
húsið er eitthvað um tuttugu fer-
metrar að stærð, en hús af þessu
tagi voru notuð við Búrfells-
virkjun og eru innflutt frá Noregi.
Tvær rafstöðvar eru á staðnum
og raunar er þarna að mestu leyti
tvöfalt kerfi. Ef eitthvað bilar á
alltaf að vera til staðar vara-
áhald. Birgðageymslan er stein-
snar frá aðalhúsinu og þar er
vara talstöð. Þetta er gert til að
hjónin standi ekki bjargarlaus,
þótt óhöpp eins og bruna bæri að
höndum. Útvarp og sjónvarp er á
staðnum og eitt af verkum þeirra
uppi á öræfunum var að setja upp
loftnet fyrir þau. Þá hafa þau
hjónin snjósleða við isingarmæl-
ingarnar en þær þarf m.a. að gera
um fimm kilómetra frá bæki-
stöðvunum.
Guðrún Sigurðardóttir hellir á könnuna i Nýjabæjareldhúsinu.
Ilcr sendir Guðrún út fyrsta veðurskeytið frá Nýjabæ.
Hér cr setið yfir mat að Nýjabæ. Frá vinstri er Þorsteinn Ingvarsson, þá Guðmundur Jónasson, og fyrir
aftan hann Guðrún húsfreyja i Nýjabæ, þá Gunnar Jónsson. Reynir Böðvarsson snýr baki f myndavél-
ina, en mvndina tók Guðjón B. Jónsson.