Tíminn - 12.12.1972, Page 24
ÞVOTTURINN SÓTTUR Á GÚMMIBÁTNUM
■
Priftjudagur 12. dcsembcr 1972
-
Týr var lagður af stað út á fiski-
ntiðin. En ckki hafði hann langt
farið, er matsveinninn upp-
götvaði, að þvotturinn hafði orðið
eftir i landi. Það er nauðsynlegt
að geta strokið af diskunum, og
þess vegna voru tveir sendir á
gúmmibáti til þess að sækja
pokann.
44
Þvottinum snarað útf
gúmniibátinn. Timamynd: Róbert.
4
Varðskipsmenn
Timamynd: Róbert.
kveðja.
Þaö er ekki á hverjum degi, sem Reykvikingar fá það mikinn snjó, aö þeir komist ekki allar sínar leiöir
á „þarfasta þjóni nútfmans" — bilnum. En þaö geröist þó s.l. sunnudag, og var þetta þá algeng sjón á
götum borgarinnar. (Tímamynd Róbert)
Við bjóðum yður MELKA skyrtur vegna
þess að þær eru klæðskerahönnuð qæða-
vara á hóflequ verði.
Klp—Reykjavik.
begar Reykvikingar risu úr
rekkju á sunnudagsmorguninn,
brá þeim eldri heldur betur i brún
er þeir litu út um gluggann. Snjór
lá yfir öllu og sumsstaöar hafði
fokið i all myndarlega skafla —
a.m.k. á sunnlenzkan mæli-
kvarða, þó svo að þeir sem koma
úr sveitunum og frá snjóasvæöum
fyrir norðan og austan, hafi þótt
þetta heldur litill snjór og varla
um hann talandi.
Hérá Stór-Reykjavikursvæðinu
er mönnum heldur illa við snjó-
inn, þvi hann gerir það að verk-
um, aö þeir komast ekki leiðar
sinnar á venjulegan hátt, þ.e.a.s.
á bilum sinum, en börnin fagna
þessu eins og börn gera allsstað-
ar.
A sunnudagsmorguninn voru
allar götur i Reykjavik og næsta
nágrenni ófærar og bilar stóðu
fastir viða um.bæ. Flugvellirnir i
Keflavik og Reykjavik lokuðust
um tima og stræ'tisvagnaferðir
gengu erfiölega. Þeir sem helzt
fögnuöu snjókomunni, fyrir utan
börnin, voru sendibilstjórar og
leigubilstjórar, en fyrir þá er
snjókoma sem þessi góð „verð-
tiö”.
Flugvellirnir i Reykjavik og
Keflavik lokuðust báðir um tima.
Innanlandsflug lagðist niöur allan
sunnudaginn, en um kvöldiö var
flogið til Akureyrar og Egils-
staða. Keflavikurflugvöllurinn
lokaðist einnig um tima, og urðu
t.d. tvær vélar Loftleiða, sem
voru að koma frá Bandarikjun-
um, að hætta við lendingu og
fljúga beint til Luxemborgar.
Einnig vél frá BEA, og þota Flug-
félagsins, sem* átti aö fara á
sunnudagsmorguninn, komst
ekki á loft fyrr en kl. 16.00. I gær
var búiö að hreinsa báða vellina
og flug komið i eðlilegt horf.
Vegir i nágrenni Reykjavikur
voru flestir illfærir á sunnudag-
inn, og sömu sögu er að segja um
marga úti um land. Greinilegt
Happdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið hefur verið i Happdrætti Framsóknar-
flokksins 9. desember. Númerin eru innsigluð á
skrifstofu Borgarfógeta á meðan beðið er eftir
skilum frá nokkrum umboðsmönnum.
var.að menn voru betur undir það
búnir en oft áður, að aka i snjó,
a.m.k. þeir sem eitthvað þurfa að
aka út á þjóðvegum, þvi litið var
um,að bilar væru fastir vegna lé-
legs útbúnaðar úti á vegum.
Sömu sögu er ekki hægt að
segja af götum Reykjavikur, en
þar voru það slikir bilar, sem
mestum vandræðunum ollu. Viða
mátti sjá litla bila fasta i snjó-
sköflum á miðri götu, og búið að
yfirgefa þá. Urðu aðrir að brjót-
ast fram hjá þeim og þurftu þá
jafnvel að brjótast i gegnum
stærri skafla, sem þeir réðu ekki
við, og stóð þá allt fast á götunni.
Að sögn Gunnbjörns Gunnars-
sonar eftirlitsmanns hjá Strætis-
vögnum Reykjavikur, ollu þessir
bilar strætisvögnunum mestu
vandræðum, þegar leið á daginn.
Ferðir vagnanna hefðu gengið
sæmilega þrátt fyrir þetta, en
áætlun ekki staðizt vegna þungr-
ar færðar og þessara smábila,
sem hefðu verið urn allar götur og
i flestum sköflum.
Lögreglan i Reykjavik og næstu
nágrannabæjum, sem við töluð-
um við, sagði,að engin veruleg
skakkaföll hefðu orðiö af völdum
þessarar snjókomu, en þó hefði
borið meir á smáárekstrum og
nuddi en venjulega. Nóg hefði
verið að gera við aðhjálpa bilum
og leysa verstu hnútana á götun-
um. Einnig við að aka fólki, sem
ekki fékk bila, eins og t.d. starfs-
fólki sjúkrahúsanna heim til sin
og á vinnustað.
bjóðum við MELKA skyrtur
Því MELKA býður mesta úrvalið af litum.
sniðum og mynstrum. Einnig fleiri en eina
bolvídd, til þess að ein þeirra hæfi einmitt
yður. Fallegur flibbi svarar einnig kröfum
yðar og ekki sakar að hann haldi alltaf
formi. MELKA skyrta er vel slétt eftir hvern
þvott og frágangur alltaf fyrsta flokks.
AO*LtTN«TI 4 SIMI tSOOS
Snjórinn olli Reyk-
víkingum vandræðum MEÐYÐPB
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR k^-29.1
UGA