Fréttablaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 1
Sigurður Geirdal lætur af embætti
bæjarstjóra Kópavogs í vor en bíður
ekki eftir þökkum og klappi á bakið.
▲
SÍÐUR 14 & 15
Bæjarstjóri
á enda-
sprettinum
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
SUNNUDAGUR
KEFLAVÍK Í VESTURBÆINN Þrír
leikir verða í Landsbankadeild karla
klukkan 19.15. Keflvíkingar sækja KR-inga
heim, Fram tekur á móti ÍBV og KA mætir
Víkingum. Einn leikur verður í Lands-
bankadeild kvenna. FH mætir ÍBV klukk-
an 16.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
18. júlí 2004 – 194. tölublað – 4. árgangur
Hrönn Sveinsdóttir er farin úr skóm drekans og les alþjóðalög í New York.
LITLAR BREYTINGAR Í VEÐRINU
Áfram bjart syðra og styttir eitthvað upp á
austurlandi. Sjá síðu 6
UPPLAUSN Í HEIMASTJÓRNINNI
Forsætisráðherra Palestínu sagði af sér
embætti en Jasser Arafat kvaðst ekki taka
mark á afsögninni. Harðar deilur um örygg-
ismál og spillingu. Sjá síðu 2
LEITAÐ Á VÖLDUM STÖÐUM Leitað
er að Sri Rahmawati, 33 ára gamalli konu
sem saknað hefur verið í tæpar tvær vikur,
á völdum stöðum aðallega norðan og aust-
an við Reykjavík. Sjá síðu 2
SKELFILEGT ÓRÉTTLÆTI Einar Odd-
ur Kristjánsson telur að veiðigjald sem lagt
verður á sjávarútvegsfyrirtæki frá septemb-
er verði greitt af verkafólki í fiskiðnaði sem
hann segir skelfilegt óréttlæti. Sjá síðu 4
PRESSA Á SKJÁ EINUM Skjár einn
leitar nú allra leiða til að stækka útsend-
ingarsvæði sitt. Mikill þrýstingur er á Skjá
einn vegna útsendinga frá enska fótbolt-
anum. Sjá síðu 4
SÍÐUR 16
▲
Brynja og Drífa sem eru best
þekktar sem Real Flavaz flytja
lög í nýrri stórmynd.
SÍÐA 30
Skóm drekans kastað
▲
Tvíbura-
dívur í
Hollywood
SVEITARSTJÓRNARMÁL Ungu fólki hef-
ur fækkað mun hraðar en því
eldra á landsbyggðinni síðustu
árin. Þróunin er sú sama víða um
land og veldur stjórnendum sveit-
arfélaganna áhyggjum.
Sigurður Sigurðarson rekstrar-
ráðgjafi sem tók saman aldurs-
skiptingu á landsbyggðinni árin
1992 og 2002 segir fólksfækkun-
ina á landsbyggðinni hafa að mikl-
um hluta verið bundna við aldurs-
hópana undir fertugu.
„Þegar þetta fólk vantar í sam-
félagið minnkar neysla á dýrari
vörum í kaupfélaginu eða verslun-
inni á staðnum,“ segir Sigurður.
„Það hefur samdrátt í för með sér
og þar af leiðandi greiða verslan-
irnar minna útsvar. Þá minnka te-
kjur sveitarfélagsins.“
Guðnnlaugur A. Júlíusson,
sviðsstjóri hag- og og upplýsinga-
sviðs Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir að ýmis sveitarfélög
úti á landi eigi í erfiðleikum af
þessum völdum.
„Fólksfækkunin getur valdið
sveitarfélögum á landsbyggðinni
vandkvæðum,“ segir Guðnnlaug-
ur. „Skuldir sveitarfélaganna
hverfa ekki en færri standa eftir
til að greiða þær.“
Árni Magnússon félagsmála-
ráðherra segir þetta neikvæða
þróun.
„Það verður auðvitað erfitt að
halda landinu í byggð ef yngra
fólkið flyst þaðan.“
Að sögn Árna hefur ríkisstjórn-
in þó verið að reyna ýmsar leiðir
til þess að snúa þróuninni við.
„Við erum að reyna að fjölga
atvinnutækifærum á landsbyggð-
inni bæði í áliðnaði og á fleiri svið-
um,“ segir Árni.
Sjá nánar síður 18 og 19
helgat@frettabladid.is
ÁSTIN BLÓMSTRAR Á AUSTURVELLI Fjölmenni var í miðborg Reykjavíkur í gær á einum heitasta degi sumarsins. Hitinn fór yfir 20
stig í borginni og var fólk léttklætt í blíðunni. Þétt var setið fyrir utan öll kaffihús og á Austurvelli lagðist fólk í grasið og naut veðursins. Í
dag er búist við blíðviðri, sérstaklega á sunnan- og vestanverðu landinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Máttarstólparnir fara
Ungt fólk flytur í auknu mæli frá landsbyggðinni. Afleiðingarnar eru slæmar. Tekjur sveitarfé-
laganna minnka. Ráðherra segir þetta neikvæða þróun.
Sjö létust í árásum:
Ráðist á
ráðherra
ÍRAK AP Sjö manns létu lífið og tugir
særðust í tveimur sprengjuárásum
og einni skotárás í Írak í gær.
Fjórir létu lífið þegar sprengju-
árás var gerð í vesturhluta Bagdad.
Skotmarkið var dómsmálaráðherr-
ann Malik Dohan al-Hassan. Hann
slapp ómeiddur en fjórir lífverðir
hans létust og sjö einstaklingar særð-
ust. Tveir létust þegar sprengja
sprakk fyrir framan bækistöðvar
íraska þjóðvarðliðsins í Mahmydiyah,
skammt frá Bagdad. Um 50 særðust í
árásinni.
Ráðist var á lögreglustjórann í
bænum Iskandariyah í gærmorg-
un og hann skotinn til bana. ■
HERMENN Á VETTVANGI
Bandarískir hermenn skoða bíl sem
sprengdur var í loft upp.
01 forsíða 17.7.2004 22:15 Page 1