Tíminn - 13.12.1972, Qupperneq 6

Tíminn - 13.12.1972, Qupperneq 6
6 TÍMINN Miövikudagur 13. desember 1972 ÍaBl Viö verzlunina starfa nú 16 manns. Elztur að starfsaldri er Steinar Þórðarson. Hans starfs- aldur er þriðjungur ævialdurs fyrirtækisins. Verzlunarstjóri er Einar Olafs- son. II. Aldarafmæli Verzlunar Sigfúsar Eymundssonar var minnzt meö siðdegishófi i húsa- kynnum fyrirtækisins við Austur- stræti i Reykjavik laugardaginn 25. f.m. Mætti þar á þriðja hundr- að manns; Viðskiptavinir og vel- unnarar fyrirtækisins, bókaútgef- endur, bóksalar, rithöfundar, starfsfólk verzlunarinnar og Alm. bókafél, tJtbýtt var til gest- anna bæklingi, sem hefur inni aö halda nokkur atriði, er snerta sögu verzlunarinnar. Bæklingn- um fylgdi snoturt bókamerki til minja. Formaður stjórnar Alm. bóka- fél., Karl Kristjánsson, ávarpaði samkvæmið, bauð menn vel- komna, lýsti tilefni hófsins, minntist stofnenda verzlunarinn- ar og annarra fyrrverandi eig- enda. Gat áforma núverandi eig- anda um að halda upp á fyrsta ár annarrar aldar verzlunarinnar með ýmsum hætti sem afmælisár. Nefndi sem dæmi: Aform um að gefa út til minningar um Sigfus Eymunds- son bók með ljósmyndum eftir hann, vandaða og fróðlega. Aform um að gefa út bókaskrá, sem er i smiðum. Á hún að ná yfir nöfn allra bóka með islenzkum titlum, sem út hafa komið og enn eru ekki uppseldar. Er gizkað á, að þar muni vera um 5000 bókar heiti að ræða. Hefur slik heildar- skrá ekki komið út siðan á fjórða tug þessarar aldar, útgefin þá af Bókaverzlun S. Eymundssonar. Hlýtur útg. þessarar skrár að vera mikil fyrirgreiðsla við bóka- unnendur og bóksölu almennt. Hafin verður mjög vönduð út- gáfa barnabóka. Út er að koma i þessum svifum fyrsta bókin, Sól- Tveir af eldri kynslóðinni á hundrað ára afmæli Bókaverzlunar Sigfúsar Eymundssonar: Karl Kristjánsson og Jörundur Brynjólfsson. Aldarafmæli Bókaverzlunar Sigfúsar Eymundssonar 1872-1972 Baldvin Tryggvason t.h. framkvæmdastjóri A.B. Einar óskarsson verzlunarstjóri t.v. faxi, skreyttlitmyndum, samin af Armanni Kr. Einarssyni rithöf- undi og Einar Hákonarsyni list- málara. Gert er ráð fyrir til hagræðis fyrir viðskiptamenn að laga and- dyri verzlunarinnar allmikið. Ýmislegt fleira er til umræðu að gera til hátiðabrigða á af- mælisárinu, svo sem sýningar á erlendum bókum, en ekki ákveð- ið, enda árið aðeins að hefjast. Karl komst þannig að orði m.a.: „Það skiptir meginmáli, að fyr- irtækið Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar hefur náð hundrað ára starfsaldri með fullu fjöri. Sá mikli munur er á háum aldri manns og fyrirtækis.að maðurinn hrörnar með háum aldri, hversu vel, sem hann annars kann að vera af guði gerður, en fyrirtækið getur alltaf verið að eflast og vaxa, ef það er gott fyrirtæki, sem þjónar góðum markmiðum, — og nýir menn koma þar til sög- unnar hver á fætur öðrum til þess að halda þvi i réttu lagi á hverjum tima. Almenna bókafélagið, sem nú á Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar.er sjálfseignarstofnun, sem var á fót komið i þeim til- gangi einum að veita islenzkri menningu þjónustu. Það ætti þvi að vera heppilega innrætt foreldri til að fóstra þetta óskabarn menningarfrömuðsins Sigfúsar Eymundssonar”. Að lokum mælti Karl Kristjáns- son: ,,Um leið og ég lýk máli minu flyt ég starfsfólki verzlunarinnar öllu — án þess að nefna nöfn beztu þakkir frá Alm. bókafélag- inu fyrir vel unnin störf — og við- skiptamönnum verzlunarinnar og velunnurum nær og fjær einnig alúðarþakkir. Ég þakká öllum viðstöddum kærlega fyrir komuna hingað og þolinmóða áheyrn, — og ég bið áheyrendur að taka undir þá ósk mina, að islenzkar bókmenntir, bókagerð og bóksala megi blómg- ast islenzku þjóðinni til hróðurs og hamingju”. Seint i fyrra mánuði varð Bóka- verzlun Sigfúsar Eymundssonar hundrað ára. Er hún þvi eitt af elztu fyrirtækjum á landinu. Vert er að gefa afmæli svo langlifrar stofnunar gaum, — og þó einkum stofnuninni sjálfri. Sigfús Eymundsson var fæddur 24. mai 1837 aö Borgum i Vopna- firði. Foreldrar: Eymundur Jónsson að Borgum og kona hans Þórey Sigfúsdóttir frá Sunnudal. Sigfús Eymundsson fór tvitugur utan og framaðist vel af kynnum við mæta menn og af verknámi. Nam bókband i Kaupmannahöfn og ljósmyndagerð i Björgvin. Kom heim til Reykjavikur 1866 og stundaði þar bókband og ljós- myndagerð. Ferðaðist viðsvegar um landið og tók myndir. Bókaverzlun sina stofnaöi hann seint i nóvember 1872. (Einhver heimild bendir til, að hún hafi veriðopnuö25. nóv., sú heimild er ekki enn sannprófuð). Bókaút- gáfu hóf hann 1886. Sigfús var hugsjónamaður með logandi framkvæmdaþrá i brjósti. Menningarmál altóku huga hans. Hann kostaði kapps um, að bókaverzlunin hefði vandaðar bækur á boðstólum og útvegaði mönnum úrval erlendra bóka, blöð og timarit. Gaf út fræðibækur eftir góða höfunda. Rak um skeið prentsmiðju, sem siðar varð Félagsprentsmiðja — eða visir að henni. Hann beitti sér fyrir stofnun fyrsta Kaupfélags Reykjavikur og var forstöðumað- ur þess um skeið. Hann var um tima i bankaráði Islandsbanka. „Árið 1874 átti hann, ásamt Sigurði málara, mestan þátt i undirbúningi þjóð- hátiðar á Þingvöllum og gaf þá konungur honum til minja brjóst- nál, setta demöntum, hinn dýr- asta grip”. Sigfús seldi bókaverzlun sina og bókaútgáfu Pétri Halldórssyni, siðar borgarstjóra Reykjavikur. Tók Pétur við fyrirtækinu 1. jan. 1909. Sigfús var þá farinn að bila að heilsu og andaðist 20. okt. 1911. Niðja átti hann enga. Pétur Halldórsson rak verzlun- ina og útgáfuna undir sama nafni áfram með miklum menningar- brag. En þegar hann varð borgarstjóri 1. ágúst 1935,tók við forstöðu fyrirtækisins Björn son- ur hans og veitti þvi forstöðu sem aöalmaður þar til á áramótum 1958-’59,að Almenna bókafélagið keypti verzlunina og forlagið og hefur rekið hvort tveggja siðan og fært i auka. Starfar verzlunin nú i þrem deildum. Eru islenzkar bækur i einni, útlendar bækur i annarri, ritföng i hinni þriðju.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.