Tíminn - 13.12.1972, Qupperneq 17
Miftvikudagur 13. desember 1972
TÍMINN
17
Magnús Sveinsson:
Um daginn og veginn
Fyrir nokkru setti Alþýðusam-
band íslands, eða öllu heldur
ýmsir hagsmunahópar innan þess
sambands, það fram sem aðal-
kröfu, að vinnuvikan yrði stytt úr
44stundum i 40. Þegar núverandi
rikisstjórn tók við völdum, var
svo ákveðið, eftir þvi sem ég bezt
veit, að stefnt skyldi að þvi, að
umrædd vinnuvika yrði lögákveð-
in 40 stundir. Bæði mér og öðrum,
sem fæddir eru á fyrsta og öðrum
tug þessarar aldar, þótti þetta
nokkuð einkennilegt. Hversvegna
var þetta sett fram sem megin-
krafa? Var hér eingöngu um
beina kauphækkun að ræða, eða
hefur Islendingum farið svona
óskaplega aftur á siðustu áratug-
um, að þeir þoli ekki lengri vinnu-
dag heilsu sinnar vegna? Nú hef-
ur mér skilizt, aö fyrir þessar 40
stundir eigi að greiða sama kaup
og áður var greitt fyrir 44, að við-
bættum nokkrum krónum og fari
það stighækkandi á tilteknum
tima. Svokölluð eftirvinna átti
helzt að hverfa, eöa að minnsta
kosti að úr henni yrði dregið, eftir
þvi sem tök væru á. —- Látum
þetta gott heita.
Hvernig á landbúnaöur og
sjávarútvegur og aðrar skyldar
greinar að sjá sér farborða, þegar
lögboöin vinnuvika er aðeins 40
stundir? Við skulum athuga
bóndann. Flestir vinna minnst 10
tima á dag — alla daga vikunnar
eða 70 stunda vinnuviku. Sam-
kvæmt þessu ætti bóndinn að fá
kaup fyrir 30 stundir i eftir- og
helgidagavinnu. Hver borgar
bóndanum þetta kaup? Ég læt
aðra um aö svara þvi, en vil þó
benda á, að útilokað er, að hann
fái nokkurn tima fulla greiðslu
fyrir sina vinnu og liggja til þess
margar ástæður.
Nú skulum viö lita á liöinn
tima. Ég vil taka það fram, að
þótt ég hafi stundað almenna
verkamannavinnu til lands og
sjávar, hefur slik vinna ekki verið
mitt aðalævistarf. Ég er alinn upp
i sveit og þekki vel alla sveita-
vinnu á fyrstu tugum þessarar
aldar. Um og eftir 1930 fór ég að
stunda vinnu hér i Reykjavik á
sumrin, en þó ekki óslitið fyrr en
um og eftir 1940. Á vetrum var ég
við nám og siðar kennslu. Um
1930 var dagvinnutiminn frá kl. 7
að morgni til kl. 6 að kvöldi. Ég
held að ég fari þarna með rétt
mál. Timinn milli 12 og 1 var
matartimi og ekki greitt fyrir
hann, enda sjáldgæft að unnið
væri á þeim tima. Ég get nú ekki
sérstaklega munað eftir þvi, að
við, sem þessa vinnu stunduðum,
værum neitt útþrælkaðir i viku-
lokin. Þó var þetta greinilega of
löng vinnuvika hjá útslitnum
eyrarvinnumönnum og báru þeir
þess merki. Siðan var vinnuvikan
stytt i 48 stundir. Þá fóru margir
að bæta við sig 10 stundum i eftir-
vinnu. Þannig var það i mörg ár.
Næsta skref var 44 stunda vinnu-
vika og nú 40 stundir, og að frá-
dregnum kaffitimum eru það þó
um 37 stundir. Sumir segja, að
hér sé stytzta vinnuvika i heimi.
Ekki veit égyhvort það hefur við
rök að styðjast.
Það má vel vera, að Islend-
ingar þoli ekki lengri vinnuviku
nú til dags og að atvinnuvegirnir
geti greitt það riflegt kaup, að
þessi vinnuvika dugi mönnum til
lifsbjargar. Það er rétt, að hver
svari fyrir sig. Hin siðari ár er
ævinlega, bæði i ræðu og riti,
taláð um mannsæmandi kjör. Við
hvað er átt með þessum orðum?
Það væri gott, ef einhver vildi
útskýra það. Ég heyrði þetta
aldrei nefnt á minum uppvaxtar-
árum. Þá þótti gott að hafa i sig
og á, það voru ekki gerðar
kröfur til annars það hafa sjálf-
sagt verið mannsæmandi kjör
þess tima.
Þegar gerðar eru kaupkröfur
nú til dags, er alltaf talað um það,
að hér sé aðeins um lágmarks-
kröfur að ræða, aðeins fyrir
mannsæmandi lifi.Hvað er
mannsæmandi lif? Ef til vill að
hafa nýtizku ibúð með harðviði,
isskáp og iskistu og teppi á öllum
gólfum o.s.frv. Auk þessa þarf að
skemmta sér. Mér er sagt, að
sumir eyði 5 til 10 þús. krónum á
mánuöi i vin og tóbak, og að
nokkur hlut þeirrar upphæðar
eigi að reikna með i visitölu.
Kröfurnar eigi vitanlega að miða
við öll þessi útgjöld. Nú er það
vitað mál, að fjöldi fólks hefur
enga peninga til alls þessa, sem
hér er nefnt. Islendingar eru ein-
staklingshyggjumenn, sjá senni-
lega ákaflega skammt fram i
timann. Þetta fer alls ekki eftir
stjórnmálaskoðunum. 1 öllum
stéttarfélögum eru menn með
ólikar stjórnmálaskoðanir og i
baráttunni er farið eins langt og
frekast er hægt. Það er ekki hægt
að kenna kommúnistum eða
sjálfstæðlsmönnum um orðinn
hlut, hér eru allir i sama báti.
Það er vitað mál, að Islend-
ingar hafa hin siðari ár lifaö um
efni fram. Eyðslan er óskapleg og
allir vilja fá sem mest af hinni
margumtöluðu þjóðarköku. Það
er eins og það skipti engu máli,
hverjar afleiöingarnar veröa.
Þegar ég var barn, var ævinlega
sagt, að menn ættu að aga sjálfan
sig og leggja fram sina krafta
þjóðarheildinni til góðs. Það var
stefna ungmennafélaganna, að
hver einstaklingur geröi allt, sem
hann gæti þjóöinni til hagsbóta. A
þeim tima var algengt, aö menn
ynnu kauplaust dögum og jafnvel
vikum saman aö áhugamálum
sinum. Þá fengu menn ekki morð
fjár fyrir að sitja á þingi, auk
mikilla aukatekna. Það sýnir
bezt, hversu menn eru heillum
horfnir, að alþingismenn, leiö-
togar þjóðarinnar, skyldu sam-
þykkja það i einu hljóði, að þeir
fengu greidda 66 þús. krónur á
mánuði i föst laun, auk annarra
tekna. Ef einhver kemur hér
fram með sjálfstæða skoðun, er
honum ýmist skipað i flokk með
ihaldsmönnum eða komm-
unistum og siðan niddur niður, ef
það þykir henta. Menn haga
seglum sinum eftir vindi.
Stjórnarandstaðan er venjulega
verkalyðssinnuð og þykir það
alltaf tryggast, þegar kosningar
fara i hönd. Ef menn vilja hækka
laun þeirra lægst launuðu, sem nú
eru um eða neðan við 20 þús á
mánuði, er það ekki hægt, þvi að
þá koma allar aðrar stéttir á eftir
og útkoman er óbreytt.
Það hefur verið barizt fyrir
styttingu vinnutimans, en hver er
útkoman, ef litið er á dæmið i
dag? Halda menn, að unglingar
þeir, sem ekki eru i skólum, hefðu
ekki betra af þvi að vinna svolitið
lengri vinnudag? Hvernig
stendur á þvi, að alls konar
óknyttir hafa aukizt stórlega hin
siðari ár? Þá má benda á það sem
staðreynd.að börn og unglingar,
sem i skóla ganga, hafa aldrei
haft meiri peninga undir höndum
en nú til dags, þótt forráðamenn
þessara unglinga hafi ekki mann-
sæmandi laun og geri kröfu til
enn stærri sneiðar af þjóðarkök-
unni.
Um langt árabil hafa islenzkir
stjórnmála- og blaðamenn reynt
að niða skóinn hver af öðrum.
Þessir menn hafa unnið fyrir
ákveðna flokka. Þeir hafa fengið
ákveðna linu, eins og i Rússlandi
og öðrum einræðisrikjum. Menn
mega helzt ekki hafa sjálfstæða
skoðun. Undantekning frá þessari
almennu reglu er þó Björn Páls-
son alþingismaður á Löngumýri.
Hann segir það, sem honum
finnst sjálfum bezt og réttast i
hvert skipti.
Menn vilja lifa glaðir og kátir
til hins siðasta. Það virðist ekkert
hugsað um komandi kynslóðir.
Hvernig halda menn að ástandið
verði hér um næstu aldamót?
Hafa menn ekkert hugsað um
börn sin og barnabörn? A úlfúð og
ósamlyndi að rikja hér árum
saman? Það er ekki nóg að skara
eld aö eigin köku. Það er stig
steinaldarmanna, en ekki þeirra
manna, sem nú lifa. Hugsunar-
háttur Islendings er nú að komast
á stig steinaldarmannsins, sem
hefursennilega aðeins hugsað um
komandi dag. Þeir hafa sjálfsagt
verið eins gáfaðir og við. Það
voru hinir fornu Rómverjar lika,
en riki þeirra hrundi til grunna.
Þvi hefur stundum verið haldið
fram, að fólk hér lifði ekki eins
góðu lifi og fólk annars staðar á
Norðurlöndum. En hvernig er lif
alþýðufólksá Norðurlöndum? Þvi
má svara hiklaust, að það er ekki
betra en hér á landi. Að visu hafa
ýmsir postular haldið þvi fram,
að það væri mun betra en hér.
óðaverðbólga tröllariður þessum
þjóðum,og ekki er annað sýnilegt
en til vandræða horfi. Það þýðir
ekkertað vitna i önnur þjóðfélög i
austri eða vestri og segja, að
svona hafi menn það gott i þessu
eða hinu landinu. Það eina, sem
hefur nokkurt gildi er, að Islend-
ingar sjái að sér i tima. Við getum
ekki beðið eftir einhverju happi
úr austri eða vestri, sem bjargað
getur fjárhag okkar i bili. Þjóðin
verður sjálf að finna^að hún er
komin á villigötur. Ef allar kröfur
skammsýnna Islendingar væru
uppfylltar , er ekki annað sýnilegt
en að erlendar þjóðir þurfi að
gefa okkur steinaldarmönnunum
á Islandi, stórfé. öðru visi verður
þjóðarskútunni ekki haldið á
réttum kili. Vilja tslendingar
þetta i raun og veru? Ég spyr. —
Hættan er framundan, ef ekki
verður hugarfarsbreyting hjá
öllum þorra manna, er voðinn vis.
íslendingar mega ekki ganga það
langt, að þeir verði einhverri ein-
ræðisstefnu að bráð. Það skiptir
engu máli, hvort það er austrænt
eða vestrænt einræði, eða einhver
ný tegund einræöis.
atlanti
Magnús
E. Baldvinsson
laugavegi 12 - Simi
Fjármálaráðuneytið,
1 í. des. 1972.
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi.að gjald
dagi söluskatts fyrir nóvembermánuð er 15. desember
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikis
sjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti.
UR
i ÖRvali
UR OG SKARTGRIPIR
KORNELlUS
JONSSON
JONSSON
SKÚLAVÖRÐUSTlG S
BANKASTRÆTI6
18588-18600
BÍLASKODUN & STILLING
Skúlagötu 32.
HJÓLASTILLINGAR
MOTORSTILLINGAR LJÖSASTILLINGAR
Látið stilia i tima.
Fljót og örugg þjónusta.
Ingólfsstræti 2 Sími 13271
viðurkenndir úrvals pennar fyrir
atvinnumenn, kennara og námsfólk.
Rotring teiknipennar og teikniáhöld
fást í þægilegum einingum fyrir
skóla og teiknistofur.
PENNAVIÐGERÐIN
v@tring
teiknipennar
Ljósaperur, kúlu- og kertaperur
8/
( \ rl m »0.
Rafhornið
ÁRAAÚLA 7 — SÍMI 84450