Tíminn - 13.12.1972, Page 19

Tíminn - 13.12.1972, Page 19
Miðvikudagur 13. desember 1972 TÍMINN 19 Það er venjulegast mjög margt um manninn i sportvöruverzlunum á þessum árstima, en sportvörur eru vinsælar til jólagjafa. Þessi mynd var tekin i Sportvali i gær. íþróttafólk gerir miklar kröfur um góðan útbúnað - og við reynum að verða við óskum þess, segir Jón Aðalsteinn Jónasson í Sportvali ■ steinn Jónasson starf- rækt i tæpan áratug, fyrst i Hafnarfirði, en siðan að Laugavegi i Reykjavik, við vaxandi orðstir. t Sportvali getur áhugafólk um iþróttir og útiveru fengið flest það, sem til þarf tilað geta stundað iþróttir og útilegur, en sérstaklega er þó til þess tekið, hversu mikið úrval verzlunin hefur af skiðavörum. tþróttasiðan sneri sér til Jóns Aðalsteins og spurðist fyrir um það, hvort ekki væri spurt mikið eftir skiðavörum á þessum árs- tima. —Jú, það er mikil sala i skiða- vörum. Það er greinilega mikill og vaxandi áhugi á skiða- iþróttinni. Sérstaklega jókst áhuginn, þegar Bláfjallasvæðið var uppgötvað, ef svo má að orði kveða, en eftir að vegur var lagður upp eftir, hefur fólk i vaxandi mæli lagt leið sina i þessa skiðaparadis höfuðborgar- svæðisins. —Þegar fólk kaupir sér skiða- útbúnað er hann þá eingöngu miðaður við keppnisiþróttir, eins og stundum hfur heyrzt? —Þetta hefur breytzt mjög til batnaðarásiðariárum. Hér áður fyrr var mjög algengt, að fólk keypti skiðaútbúnað, sem miðaður var við keppnisfólk i alpagreinum. Nú eru miklu fleiri gerðir á boðstólnum. T.d. er það orðið mjög algengt, að keypt séu gönguskiði. Áhugi á gönguskiðum hefur vaxið gifurlega, einkum meðai fólks um þritugt og þar yfir. Sportval selur skiði frá mörgum heimsþekktum fyrirtækjum m.a. Fischer, og á þessari mynd sést Jón Aðalsteinn sýna viðskiptavini slik skiði. ( Timamynd Róbert). —Eru gönguskiði dýrari eða ódýrari en svigskiði? —Þau eru ódýrari. Það er hægt að fá ágætis búnað fyrir 5-6 þúsund krónur, þ.e. skiði, bind- ingar, stafi og mjúka skó —Hvað um skiði handa börnum og unglingum. Eru þau að jafnaði til i miklu úrvali? —Já. Hins vegar vill verða mis- brestur á þvi, að foreldrar velji skiði af réttri stærð handa börnum sinum. Ég vil eindregið benda fólki á að kaupa ekki of löng skiði handa þeim. Það er ágætt að hafa hæð krakkanna til viðmiðunar. þegar skiði eru valin. Skiði, sem eru 10 cm lengri en þau eru á hæðina, henta i flestum tilfellum vel. —Nú höfum við rætt nokkuð um sjálf skiðin. Eitthvað fleira þarf til, þegar farið er i skiðaferð? —Já, Fyrir utan skiði, bind- ingar, skó og þ.h. þarf auðvitað að hyggja að skiðafatnaðinum. Við hjá Sportvali höfum kapp- kostað að hafa á boðstólnum mikið úrval af skiðafatnaði, m.a. látum við framleiða sérstakan slikan fatnað fyrir okkur. Skiða- fatnaður þarf að vera vindþéttur og „vatteraður” svo að hann komi að gagni i okkar islenzku veðráttu. —Er skiðafatnaður eingöngu framleiddur fyrir fullorðna —Nei. Ég held að mér sé óhætt að segja, að við eigum skiða- fatnað i öllum stærðum og i sumum tilfellum i nokkuð mörgum gerðum. —Er ekki eftirspurn eftir öðrum vetrariþróttavörum? —Jú, alltaf er talsvert mikið spurt eftir skautum. Við höfum verið með sérstaklega góða skauta (með skóm) á mjög hag- stæðu verði, 1500 krónur. —En hvað um aðrar iþrótta- vörur. Er t.d. spurt eftir knatt- spyrnuskóm á þessum árstima? —Já, talsvert mikið. Bæði er spurt um knattspyrnuskó og æfingabúninga. Sala á þessum vörum jókst mjög mikið á þessum árstima, þegar vetraræfingar knattspyrnumanna hófust. —Og það þarf auðvitað ekki að spyrja að þvi, að mikið er spurt um iþróttavörur, sem tilheyra innanhússiþróttum? —Það er alltaf mikil sala i æfingaskóm (frá Adias), peysum, sokkum og sliku. —Að lokum, Jón Aðalsteinn. Er ekki dálitið erfitt að sinna öllum óskum iþróttafólks? —Ég skal fúslega viðurkenna það, að iþróttafólk gerir miklar kröfur um góðan útbúnað, og þaö er auðvitað markmið mitt að hafa slikar vörur til sölu og verða við óskum þess. Jafnframt verður maður ávallt að hafa i huga að bjóða góðar vörur á sanngjörnu verði. Þess má að lokum geta, að auk þess, að Sportval býður upp á iþróttavarning frá þekktum fyrirtækjum erlendis, selur verzlunin einnig og hefur umboö fyrir Braun Piximat skugga- myndavélar. Hefur sala þeirra aukizt ár frá ári. Auk Jóns Aðalsteins Jónas- sonar starfa að jafnaði 8-10 manns i verzluninni, en það er mismunandi eftir árstima. Flest er starfsfólkið yfir sumar- mánuðina. i Sportvali fæst flest það, sem hugur Iþróttamannsins girnist. Eflaust hafa flestir þeir, sem stunda iþróttir, annað hvort með keppni i huga eða sjálfum sér til gagns og gamans, verzlað i Sport- vali, sem er til húsa að Laugavegi 116, en þá verzlun hefur Jón Aðal- Þannig litur skiðafatnaður út i dag. Seláseigendur Félag landeigenda i Selási heldur fund að Freyjugötu 27, föstudaginn 15. desember, 1972 kl. 20.00. Fundarefni: I. Tekin ákvörðun um uppskipti lands i sambandi við framkvæmd skipuiagsins. II. Önnur mál. Stjórnin.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.