Tíminn - 13.12.1972, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 13. desember 1972
TÍMINN
19
Það er venjulegast mjög margt um manninn i sportvöruverzlunum á þessum árstima, en sportvörur
eru vinsælar til jólagjafa. Þessi mynd var tekin i Sportvali i gær.
íþróttafólk gerir miklar
kröfur um góðan útbúnað
- og við reynum að verða við óskum þess,
segir Jón Aðalsteinn Jónasson í Sportvali
■
steinn Jónasson starf-
rækt i tæpan áratug,
fyrst i Hafnarfirði, en
siðan að Laugavegi i
Reykjavik, við vaxandi
orðstir.
t Sportvali getur áhugafólk um
iþróttir og útiveru fengið flest
það, sem til þarf tilað geta
stundað iþróttir og útilegur, en
sérstaklega er þó til þess tekið,
hversu mikið úrval verzlunin
hefur af skiðavörum.
tþróttasiðan sneri sér til Jóns
Aðalsteins og spurðist fyrir um
það, hvort ekki væri spurt mikið
eftir skiðavörum á þessum árs-
tima.
—Jú, það er mikil sala i skiða-
vörum. Það er greinilega mikill
og vaxandi áhugi á skiða-
iþróttinni. Sérstaklega jókst
áhuginn, þegar Bláfjallasvæðið
var uppgötvað, ef svo má að orði
kveða, en eftir að vegur var
lagður upp eftir, hefur fólk i
vaxandi mæli lagt leið sina i
þessa skiðaparadis höfuðborgar-
svæðisins.
—Þegar fólk kaupir sér skiða-
útbúnað er hann þá eingöngu
miðaður við keppnisiþróttir, eins
og stundum hfur heyrzt?
—Þetta hefur breytzt mjög til
batnaðarásiðariárum. Hér áður
fyrr var mjög algengt, að fólk
keypti skiðaútbúnað, sem
miðaður var við keppnisfólk i
alpagreinum. Nú eru miklu fleiri
gerðir á boðstólnum. T.d. er það
orðið mjög algengt, að keypt séu
gönguskiði. Áhugi á gönguskiðum
hefur vaxið gifurlega, einkum
meðai fólks um þritugt og þar
yfir.
Sportval selur skiði frá mörgum heimsþekktum fyrirtækjum m.a.
Fischer, og á þessari mynd sést Jón Aðalsteinn sýna viðskiptavini slik
skiði. ( Timamynd Róbert).
—Eru gönguskiði dýrari eða
ódýrari en svigskiði?
—Þau eru ódýrari. Það er hægt
að fá ágætis búnað fyrir 5-6
þúsund krónur, þ.e. skiði, bind-
ingar, stafi og mjúka skó
—Hvað um skiði handa börnum
og unglingum. Eru þau að jafnaði
til i miklu úrvali?
—Já. Hins vegar vill verða mis-
brestur á þvi, að foreldrar velji
skiði af réttri stærð handa
börnum sinum. Ég vil eindregið
benda fólki á að kaupa ekki of
löng skiði handa þeim. Það er
ágætt að hafa hæð krakkanna til
viðmiðunar. þegar skiði eru
valin. Skiði, sem eru 10 cm lengri
en þau eru á hæðina, henta i
flestum tilfellum vel.
—Nú höfum við rætt nokkuð um
sjálf skiðin. Eitthvað fleira þarf
til, þegar farið er i skiðaferð?
—Já, Fyrir utan skiði, bind-
ingar, skó og þ.h. þarf auðvitað
að hyggja að skiðafatnaðinum.
Við hjá Sportvali höfum kapp-
kostað að hafa á boðstólnum
mikið úrval af skiðafatnaði, m.a.
látum við framleiða sérstakan
slikan fatnað fyrir okkur. Skiða-
fatnaður þarf að vera vindþéttur
og „vatteraður” svo að hann
komi að gagni i okkar islenzku
veðráttu.
—Er skiðafatnaður eingöngu
framleiddur fyrir fullorðna
—Nei. Ég held að mér sé óhætt
að segja, að við eigum skiða-
fatnað i öllum stærðum og i
sumum tilfellum i nokkuð
mörgum gerðum.
—Er ekki eftirspurn eftir
öðrum vetrariþróttavörum?
—Jú, alltaf er talsvert mikið
spurt eftir skautum. Við höfum
verið með sérstaklega góða
skauta (með skóm) á mjög hag-
stæðu verði, 1500 krónur.
—En hvað um aðrar iþrótta-
vörur. Er t.d. spurt eftir knatt-
spyrnuskóm á þessum árstima?
—Já, talsvert mikið. Bæði er
spurt um knattspyrnuskó og
æfingabúninga. Sala á þessum
vörum jókst mjög mikið á þessum
árstima, þegar vetraræfingar
knattspyrnumanna hófust.
—Og það þarf auðvitað ekki að
spyrja að þvi, að mikið er spurt
um iþróttavörur, sem tilheyra
innanhússiþróttum?
—Það er alltaf mikil sala i
æfingaskóm (frá Adias),
peysum, sokkum og sliku.
—Að lokum, Jón Aðalsteinn. Er
ekki dálitið erfitt að sinna öllum
óskum iþróttafólks?
—Ég skal fúslega viðurkenna
það, að iþróttafólk gerir miklar
kröfur um góðan útbúnað, og þaö
er auðvitað markmið mitt að
hafa slikar vörur til sölu og verða
við óskum þess. Jafnframt verður
maður ávallt að hafa i huga að
bjóða góðar vörur á sanngjörnu
verði.
Þess má að lokum geta, að auk
þess, að Sportval býður upp á
iþróttavarning frá þekktum
fyrirtækjum erlendis, selur
verzlunin einnig og hefur umboö
fyrir Braun Piximat skugga-
myndavélar. Hefur sala þeirra
aukizt ár frá ári.
Auk Jóns Aðalsteins Jónas-
sonar starfa að jafnaði 8-10
manns i verzluninni, en það er
mismunandi eftir árstima. Flest
er starfsfólkið yfir sumar-
mánuðina.
i Sportvali fæst flest það, sem hugur Iþróttamannsins girnist.
Eflaust hafa flestir
þeir, sem stunda
iþróttir, annað hvort
með keppni i huga eða
sjálfum sér til gagns og
gamans, verzlað i Sport-
vali, sem er til húsa að
Laugavegi 116, en þá
verzlun hefur Jón Aðal-
Þannig litur skiðafatnaður út i
dag.
Seláseigendur
Félag landeigenda i Selási heldur fund að
Freyjugötu 27, föstudaginn 15. desember,
1972 kl. 20.00.
Fundarefni:
I. Tekin ákvörðun um uppskipti lands i sambandi við
framkvæmd skipuiagsins.
II. Önnur mál.
Stjórnin.