Tíminn - 14.12.1972, Síða 1

Tíminn - 14.12.1972, Síða 1
IGNIS K4ELISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SlMI: 19294 * kæli- skápar RAFTÆKJADÉILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 Engin kvöldverzlun síðasta laugardag fyrir Þorláksmessu l>aft vildi til, þegar ögri var lagstur að bryggju i gærdag, að skipið sleit skyndilega alla vira og rann framan á togarann Úranus og sleit hann frá bryggju. Eins og sjá má á myndinni skemmdist Úranus fremst á hvalbaknum. Helzt er talið, aðbilun i skiptibúnaði hafi valdið þessu. Timamynd: GE Vikið frá venju, sem lengi hefur haldizt Klp—Ileykjavik Það er vist ekki öllum kunnugt um það, að næsta laugardag, sem er siðasti laugardagur fyrir Þorláksmessu, leggst niður sú gamla liefð að hafa allar verzl- anir opnar til klukkan tiu. Það er fyrst nú, að verzlunarfólk er að átta sig á þessu, og má segja að meðal þess sé almenn óánægja með þessa breytingu. Við fengum þær upplýsingar hjá Verzlunarmannafélaginu, að i siðustu kjarasamningum hefði þetta verið samþykkt, og jafn- framt, i stað þess að hafa opið til klukkan tiu þennan laugardag, yrði opið til klukkan tiu mánu- daginn þar á eftir. Hjörtur Jónsson, formaður Kaupmannasamtakanna, tjáði okkur, að þetta hefði komið fram i reglugerð um lokunartima sölu- búða frá árinu 1970 og verið endurtekið i siðustu kjarasamn- ingum. „Við vildum heldur hafa opið lengur þennan laugardag i staö þess að hafa opið einhvern annan dag i miðri viku”, sagði Hjörtur. ,,En Verzlunarmanna- félagið vildi það ekki, þar sem aðalkeppsmál þess var að losna við laugardagana með öllu. Eg tel þetta vera óhagstætt fyrir alla aðila, þvi með þessu kemur ruglingur á lokunar- timann. Flestir landsmenn vissu, aö þennan laugardag eru allar verzlanir opnar til klukkan tiu, en nú kemur annar dagur i staðinn. Samkvæmt reglugerðinni frá 1970 má einnig hafa opið til tiu á þriðjudögum og föstudögum. Það hafa ekki allir notfært sér, þó svo að sumir geri það i næstu viku til að vega upp á móti þessum laugardegi, sem hefur ætið verið vinsæll meðal almennings”, Eins og fyrr segir eru verzlunarmenn almennt óánægðir með þessa breytingu. Framhald á 3. siöu. ÖGRI í HEIMAHÖFN ÞÓ—Reykjavik Nýr skuttogari bættist i islenzka fiskiskipaflotann i gær. Er það Örgi RE 72, en ögri er systurskip Vigra, sem kom til landsins fyrir rúmum mánuði og bæði skipin eru i eign ögurvíkur h.f. Ögri er nákvæmlega jafnstór og Vigri eða 801 brúttorúmlest að stærð og er smíðaður i skipa- smiðastöðinni i Gdansk i Pól- landi. Margt manna fagnaði komu ögra, er hann lagðist að togara- bryggjunni i gær, enda hafa margir áhuga á hinum nýju skut- togurum, sem eru óðum að bætast við flota Islendinga. Skip- stjóri á Ögra verður Brynjólfur Halldórsson, en hann var áður 1. stýrimaður á Sigurði, og hefur hann oft leyst Arinbjörn Sigurðs- son skipstjóri á Sigurði af. Brynjólfur hefur fiskað mjög vel, er hann hefur verið skipstjóri, og til marks um það fékk hann 400 tonnaf fiski, i skiðasta skiptið, sem hann fór út á Sigurði sem skipstjóri. Brynjólfur sagði við komuna til landsins i gær, að þeir á ögra hefðu hreppt versta veður á heimleiðinni, að jafnaði var veðrið frá sex til tólf vindstig. ögri reyndist mjög gott sjóskip, og Brynjólfur sagði, að hann gæfi togurum eins og Vikingi, Sigurði og Mai ekkert eftir, nema siður væri. Framhald á bls. 23 Alþjóðlegir eiturlyfja- salar komnir hingað llollendingurinn og Banda- rikjamaöurinn, sem hand- teknir voru á Keflavikurflug- vclli með eitt kiló af hassi i fórum sínum 8. des. s.l., sitja enn i gæzluvaröhaldi i hegningarhúsinu viö Skóla- vöröustig. islenzk yfirvöld báöu um sakaferilsskýslu i hcimalöndum mannanna og er sakavottorö llollendingsins komiö, en cnn er beöiö eftir sy ndaregistri Bandarikja- mannsins. i Ijós er komið, aö llollendingurinn hefur hlotiö dóma i fööurlandi sinu fyrir neyziu og dreifingu eiturlyfja. Þótt engin gögn séu komin um Bandarikjamanninn, gæti vegabréf hans veitt visbend- ingu um, að hann hafi ekki hreint mél i pokanum. 1 þvi sést, að maðurinn hefur gert sér tiðförult til Tyrklands, Indlands og Afganistans á undanförnum árum, en i þess- um löndum er auðvelt að fá eiturlyf, fyrir litið verö, enda eru þau framleidd þar og þeim dreift þaðan viða um heim. 1 vasa mannsins fannst litil, en nákvæm vog, sem mælir hluta úr grammi. Og hverjir nota vogir, ef ekki kaupmenn? Bendir þvi flest til, að hér séu á feröinni alþjóðlegir eiturlyfjasalar og að þeir hafi ekki með öllu farið erindis- leysu til Islands, þvi eins og fram er komið fundust 250 þúsund krónur i ibúð Banda- rikjamannsins og hassið, sem fannst hjá mönnunum, er metið á þrjú hundruð þúsund krónur. Ólafur Jóhannesson forsætisróðherra ó alþingi í gær: Ákvörðunum í efnahagsmálum verður hraðað eftir föngum — stefnt að afgreiðslu fjórlaga fyrir jól — þing fram yfir hótíðar? EJ—Reykjavik. Rikisstjórnin hefur ekki enn tekið ákvörðun um sérstakar efnahagsaðgerðir, og er þvi ekki hægt að fullyrða hér og nú um það, hvort þær verða af- greiddar fyrir jólaleyfi þingmanna. Ef þær verða ekki afgreiddar fyrir jólaleyfi, þykir mér það eðli- leg krafa frá stjórnarandstöðunni, að þingið sitji áfram og geti komið saman til fundar, hvenær sem er milli jóla og nýárs eða eftir áramótin, og mun ég taka slika kröfu til greina. Hins vegar er stefnt að þvi, að afgreiða fjárlögin fyrir jól, — sagði Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, i umræðum utan dagskrár i neðri deild i gær um væntanlegar efna- hagsráðstafanir og tillögur valkostanefndarinnar. Sjá nánar á þingsíðu - bls. 10

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.