Tíminn - 15.12.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 15.12.1972, Blaðsíða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SIMI: 19294 * * # 288. tölublað — Föstudagur 15. desember — 56. árgangur 2>Aótía/kvéÍKA. A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 Lokatillögur um nýja þjóðleið frá Akureyri í Fnjóskadal: VEGUR ÞVERT YFIR LEIRURN- AR OG AUSTUR UM VÍKURSKARÐ Þau liaust eru liðin, er sætast var sungið i Vaðlaheiðarvega- mannaverkfærageymsluskúr, og senniiega munu nýjar kynslóðir ekki eiga liugljúf kvöld í neinu sönghofi á þeim stað, sem fyrrum var mest rómaður. Hlutverki Vaðlaheiðarvegar verður að lík- indum lokið áður en mörg ár eru liðin og annar vegur kominn á öðrum stað, þar sem greiðfærara er. Fimm manna nefnd, skipuð þeim Sigúrði Jóhannssyni vega- málastjóra, er var formaður SB—Iteykjavik — Það verður gert eins og Tim- inn vill. sagöi talsmaður Kaup- mannasam takanna, er hann hringdi til blaðsins i gær. Sam- komulag hefur sem sé náðst um að hafa verzlanir opnar til klukk- hennar, Kofoed—Hansen flug- málastjóra, Zóphóniasi Pálssyni skipulagsstjdra, Bjarna Einars- syni, bæjarstjóra á Akureyri, og Valtý Kristjánssyni, bónda i Nesi, hefur kannað vegarstæði frá Akureyri austur i Fnjóskadal Hún hefur lagt siðustu hönd á álitsgerð sina, þar sem gert er ráð fyrir þjóðbraut austur yfir Eyja- fjarðarála og þaðan alla leið að nýju Fnjóskárbrúnni hjá Nesi. Verður að teljast einsýnt, að þar með sé þvi ráðið til lykta, hvar þessi framtiðarvegur frá Akur- eyri og austur um verður. an tiu á laugardagskvöldiö eins og venja hefur verið um árabil. Timinn skýrði frá þvi i gær, að i ár ætti að bregða út af þessari venju hafa i staðinn opið til klukk- an tiu á mánudagskvöldið 18. des. Brýr.þær.sem nú eru á Eyja- fjarðará, eru vart nothæfar öllu, lengur, og vegurinn yfir ár, hólmana ekki til neinnar fram- búðar. Liklegt er, að flugbraut verði gerð lengra til suðurs en nú er, þegar Akureyrarflugvöllur verður stækkaður, og náttilru- verndaryfirvöld leyfa ekki gerð nýs vegar yfir hólmana. Yrði þvi að krækja mun lengra fram eftir, ef vegur austur yfir ætti aö vera þeim megin flugvallarins. Með þetta i huga þótti einsýnt að leggja heldur nýjan veg þvert yfir leirurnar fyrir botni Eyja- Var það Verzlunarmannafélagið, sem vildi hafa þetta svona, þar sem kappsmál þess hefur verifvað losna helzt við að vinna á laugar- dögum. I gær náðist samkomulag milli Kaupmannasamtakanna, verzl- fjarðar, ekki langt innan við mar- bakkann, sem þar hefur myndazt af framburði Eyjafjarðarár. Þar á að nægja ein brú á ál Eyja- fjarðarár, að þvi er Timinn hefur fregnað, og mun vegurinn koma á land að austan á milli Varðgjár og Veigastaða. Að visu er gert ráð þvi, að flug- braut nái lengra til norðurs en að hinum fyrirhugaða vegi, þegar stækkun flugvallarins er lokið. En sú flugbraut verður ekki notuð að jafnaði, heldur einvörðungu, þegar stórar og þungar milli- landaflugvélar lenda. unarmannafélagsins og lögreglu- stjóraembættisins um að hafa op- ið til klukkan tiu að kvöldi á laugardaginn og loka klukkan sex á mánudaginn. Þá verður opið til miðnættis á Þorláksmessu að venju. Ljósabúnaður, sem settur verður upp, mun stöðva umferð um veginn, þegar flugvélar þurfa að nota flugbrautina, en komur slikra flugvéla verða ekki svo tiðar, að neinn teljandi bagi hljótist af. Aætlað er, að vegurinn yfir leirurnar verði nokkru dýrari en innri leiðin, en eigi að siður er hann talinn hagkvæmari, þegar til lengdar lætur, og meira til frambúðar. Miklu auðveldari leið um Vikurskarð Austan Eyjafjarðar mun veg- urinn liggja út Svalbarðsströnd allt út á svonefnt Krossnes, utan við Faxafall, þar sem hann byrjar að skáskera brekkurnar upp i Vikurskarð, sem er á milli Miðvikur við Eyjafjörð og Draflastaða i Fnjóskadal. Úr Vikurskarði kemur hann siðan inn Fnjóskadal að vestan að nýju brúnni. Þessi vegur veröur nokkru lengri en sá, sem nú er, en munurinn þó minni en ætla mætti i fljótu bragði. Bæði styttist vegurinty þegar verður farið yfir leirurnar, frá Akureyri i stað að krækja inn fyrir flugvöllinn, og svo eru allir krókarnir á nú- verandi Vaðlaheiðarvegi um Steinsskarð æði drjúgir. Hitt munar aftur afarmiklu, hversu auðveldari og snjóléttari leiðin um Vikurskarð verður. Það er um 220 metrum lægra en Steinsskarð og ekki brekkur, sem orð er á gerandi, og myndi sú leið verða miklu oftar og lengur fær en Vaðlaheiðin er nú — og minni tilkostnaður við snjóruðning. Jólabók ársins á Akur- eyri — — Nefndarálit um þessa vega- gerð verður jólabók ársins hér hjá okkur, sagði Bjarni Einars- son, bæjarstjóri á Akureyri, er Timinn náði tali af honum i gær. Auövitað eru ekki allir á einu máli um þetta hér nyrðra, en ég býst nú við, að hinir séu allmiklu fleiri, sem biða þess með óþreyju, að þetta komizt i framkvæmd. Það yrði að minnsta kosti mikill munur að aka þungfærum bilum hér austur yfir. Skafrenningur og ruddafærð á Vaðlaheiði. Nú vilja menn lika láta Vikurskarð leysa Steinsskarð af hólmi. /fGert eins og Tíminn vill" Samkomulag tókst um að hafa búðir opnar til klukkan 10 ó morgun Skíðaflugvél eina samgöngu- tækið, sem Borgfirðingar sjó Engar jólavörur, ef þriðja og síðasta skipaferðin bregst bregzt í Borgarfirði eystra er þriggja sæta skiðaflugvél eina samgöngutækið, er sést hefur uin langt skeið. ófært hefur verið landleiðina milli Borgarfjaröar og Héraðs á annan mánuð og strandferða- skip rfkisins, sem áttu að koma þar tvisvar viö fyrra hluta mánaðarins, hafa farið hjá. —Það var gert ráð fyrir tveim hringferðum austur um fram að áramótum, sagði Óli Jóhannsson stöðvarstjóri við fréttamann Timans i gær. 1 fyrra skiptið átti skipið að leggja af stað úr Reykjavik 30 nóvember, en hið siðara 13. desember. Ein hringferð var vestur um frá Reykjavik og hófst 7. desember. Jólavörurnar liggja allar á Reyðarfirði Nú eru tvö skipanna farin hjá. Þau komu hér ekki við vegna veðurs, og allar vörurr sem til okkar áttu að farty voru settar á land á Reyðar- firði, þar á meðal jóla- ávextirnir og kjötiðnaðar- vörur frá Akureyri. Við búumst við, að þetta liggi undir skemmdum að meira eða minna leyti, og komist varningur okkar ekki hingað með skipinu, sem nú ér ný- farið frá Reykjavik, sjáum við ekki kvint af þessu fyrir jól, enda verður mikið af þvi ónýtt, ef það biður öllu lengur. Skiðaflugvélin ekki til flutninga —Það geta allir gert sér i hugarlund, að okkur finnst ekki við okkur dekrað i sam- göngumálum. Það var mikil afturför fyrir okkur, þegar Herðubreiðar og Skjald- breiðar naut ekki lengur við, hélt Óli áfram. Nú er skiðaflugvélin, sem Flugþjónustan á Egilsstöðum hefur i förum, eina liftaugin. Flugmennirnir þar, Kristján Benediktsson og Þorsteinn Guðmundsson, færa okkur þó póst og fFytja farþega. Aætlað er, að þeir komi hingað þrisvar i viku, en i raun er það þó sjaldnar, þvi að oft hamlar veður. En varninginn getum við ek'ki fengið neitt að ráði með I flugvélinni, þvi að hún er of litil til þess. Samt höfum við fengið mjólkurvörur frá Egilsstöðum 0g fleira smávegis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.