Tíminn - 15.12.1972, Síða 4

Tíminn - 15.12.1972, Síða 4
4 TÍMINN Föstudagur 15. desember 1972 Eggjaát Breta og Norömanna OECD hefur sent frá sér skýrslu um eggjaát i Englandi og Noregi. Þar segir, að Bretar éti sem svarar 400 eggjum á mann á ári, en Norðmenn hins vegar aðeins milli 180 og 190 egg hver. Skýringin er sögð sú, að Norð- menn hafi allt of mikið að gera til þess að þeir megi vera að þvi að steikja sér egg og beikon á morgnana. t Noregi eru um 5500 eggjaframleiðendur, sem senda um 18.000 tonn af eggjum á markaðinn árlega i saman- burði við 33.000 framleiðendur, sem framleiddu aðeins 8000 egg árlega fyrir 12 árum þar i landi. Arið 1965 var heildsöluverð á eggjum kr. 6.20 norskar kilóið, en er nú kr. 6.50 sem er litil hækkun á svo löngum tima. Bilastöður bannaðar Þessi fallegi kvenlögregluþjónn lenti i svolitlum vandræðum, þegar hann kom að fallbyssu standandi við gangstéttarbrún eina i London. Bannað var að leggja ökutækjum á þessum staö, en var hægt að telja fallbyssuna til ökutækja, vegna þess að hún var á hjólum. Ekki er minnztá fallbyssur einu orði i umferðarlögum, og þvi var það, að unga stúlkan brá sér inn i pæsta hús og spurði, hvort menn þar vissu nokkur deili á fall- byssunni og eiganda hennar. Jú reyndar. 1 húsinu var bókaút- gáfufyrirtæki, og hafði verið tekið upp á þvi að stilla byssunni upp á götupni til þess að vekja athygli á útkomu bókarinnar ☆ Rak tengdasoninn á dyr transkeisari er heldur óánægður með tengdason sinn, Khosro Djahabani, sem er kvæntur dóttur keisarans, Shanaz. Allt var orðið kyrrt og hljótt i höllinni i Teheran fyrir nokkru, þegar allt i einu heyrðist mikill hávaði og rifrildi frá vinnuherbergi keisarans, og greinilega mátti heyra keisarann hrópa: Komdu þér út, og látlu ekki sjá þig meira. Sá, sem talað var til, var enginn annar en tengdasonurinn, Khosro. Hann og kona hans höfðu dvalizt i mánuð i heim- sókn hjá keisaranum, og allt hafði gengið nokkuð sæmilega þar til þennan morgun. Við morgunverðarborðið hafi tengdasonurinn ruggað sér stanzlaust á stólnum og ekki sýnt almennilega borðsiði? það hafði nægt til þess,að keisarinn gat ekki setið á sér lengur. Hann varð að fá útrás fyrir alla ó- ánægjuna, sem hafði hlaðizt upp innra með honum út af fram- komu Khosros undanfarið. Shanaz og Khosro héldu i skyndi aftur til Genfar, og þar mun Shanaz senn fæða annað barn sitt. A myndinni hér með getið þið séð, að tengdasonurinn er mjög nútimalegur i útliti og fellur eflaust i smekk ungs fólks, en ef til vill er ekki undar- legt, að tengdaföðurnum falli alls ekki hegðun hans, fram- koma og klæðaburður, þvi keisarinn klæðist enn eins og menn af gamla skólanum og hegðar sér áreiðanlega eins og keisara ber DENNI DÆMALAUSI Ég var alveg að detta úr kjöltu hans og greip þá i skeggið, og hvað heldurðu, það datt af.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.