Tíminn - 17.12.1972, Qupperneq 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 17. desember 1972
— býður ávallt beztu kaupin
Nú nýjar gerðir
Meiri afköst og styrkleiki
Meiri tæknibúnaður
og fylgihlutir
Sífellt aukin þjónusta
Lægstu verðin
ZETOR 4712—47 Hö.
Nýjasta vélin frá Zetor. Millistærð, sem sameinar
kosti minni og stærri véla. Frábærlega vel hönnuð og
tæknilega búin. Lipur og afkastamikil alhliða dráttarvél.
Meiri vél á minna verði.
Með öryggisgrind um kr. 245 þús.
Með húsi og miðstöð um kr. 265 þús.
ZETOR 2511—30 Hö.
Létt og lipur heimilisvél. Sterkbyggð og með mikið
dráttarafl miðað við stærð. Ómissandi á hverju búi.
Ódýrasta fáanlega dráttarvélin á markaðinum.
Verð um kr. 185 þús.
ZETOR 5718—60 Hö. OG 6718—70 Hö.
Kraftmiklar og sterkar vélar gerðar til mikilla átaka.
Með meiri tæknibúnað og fylgihluti en venja er til,
s. s. húsi, miðstöð, vökvastýri, lyftudráttarkrók o. fl.
Dráttarvélar í sérflokki á hagstæðum verðum:
5718 um kr. 350 þús.
6718 um kr. 385 þús.
,,ZETORMATIC“ fjölvirka vökvakerfið er í öllum vélunum.
Fullnýtir dráttaraflið og knýr öll vökvaknúin tæki.
Zetor eru nú mest seldu dráttarvélarnar á Islandi. Það eru ánægðir
Zetor eigendur, sem mæla með þeim.
Zetor kostar allt frá kr. 100 þús. minna en margar aðrar sambærilegar
tegundir dráttarvéla — það munar um minna.
Hafið samband við okkur og fáið nánari upplýsingar um Zetor.
ÍSTÉKKP
Lágmúla 5 Sími 84525
Áríðandi orðsending til bænda
Umsóknarfrestur Stofnlánadeildarinnar fyrir lánum vegna kaupa
á dráttarvélum fyrir 1973, rennur út 31. desember 1972. Leggið því inn
lánsumsóknir strax, eða hafið samband við okkur.
ÍSTÉKK H/F.
Árelíus Níelsson:
Athvarf hins allslausa
Nú dettur einhverjum, sem les
þessa fyrirsögn, i hug, að hér
verði talað um kirk.juna eða eitt-
hvert kristilegt og kirkjulegt hæli
fyrir umkomulaust fólk.
Svo verður samt ekki, En samt
verður bent á athvarf, sem er
áreiðanlega orðið til fyrir bænir
og starf hins blessandi góðleika.
Fyrir nokkrum árum bað bisk-
upinn, sem þá var hér á íslandi
um, að vekja athygli á útigöngu-
mönnum Reykjavikurborgar,
sem hann nefndi svo. En það var
og er enn fólk, sem drykkkju-
skapur og alls konar óhamingja
hefur dæmt úr leik i samfélaginu
og hefur að siðustu hvergi höfði
sinu að að halla.
Arum saman var útlifaður og
útataður togaraskrokkur við
hafnargarð einasta þakið, sem
skjól veitti þessum vesalingum.
En við þessi tilmæli á vegum
biskups og góðs fólks hófst nú
smámsaman markvisst starf til
úrbóta fyrir þessa utangarðs-
menn.
Læknisfrú fyrrverandi gekkst
fyrir þvi ásamt nokkrum vinum
sinum og vinkonum að gefa þess-
um einstæðingum góða og hlýja
stund á aðfangadagskvöld. Og
svo hefur verið gjört i meira en
áratug.
Prestsfrú kom á stofn félaga-
samtökum, sem kallast Vernd og
hafa þau sérstaklega á stefnuskrá
að liðsinna föngum og fyrrver-
andi föngum á ýmsan hátt. Og er
nú svo komið, að fangelsins hafa
fengið sérstakt prestsembætti og
Vernd veitir föngum hjálp og
húsaskjól.
En mjótt er bilið milli fangans
og hins allslausa drykkjusjúkl-
ings. Og þvi var oft opnað fyrir
þeim siðarnefnda, ef húsrúm
fékkst hjá Vernd.
Þá hafði einnig eldri kaupsýslu-
maður stofnað til opinberrar
fangahjálpar, fyrst á vegum
goodtemplarastúku, en siðar að
mestu eða öllu á eigin vegum og
orðið mörgum til stuðnings og at-
hvarfs.
Fyrir markvissa baráttu þess-
ara liknandi afla samfélagsins
var svo fyrir tveim árum opnað
gistiskýli i bingholtsstræti,
gamla F ar só tta r h ús i n u ,
sem kallað var, fyrir athvarfs-
lausa ofdrykkjumenn. Það er opið
frá kl. 10 að kvöldi til klukkan 10
að morgni Hrein og þokkaleg
gistiherbergi biða þar með upp-
reiddum rúmum. Og þar geta
gestir fengið bað og fá hressingu,
þegar þeir koma og morgunmat,
áður en þeir fara.
Þetta er geysilega mikill mun-
ur við það sem áður var.
En samt mun mörgum finnast
vont að þurfa að hrekja þessa
vesalinga út i kuldann allslausa
og oft illa klædda, hvernig sem
heilsa þeirra og aðbúnaður er á
morgnana.
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR —
aígreiddir
samdægurs.
Sendum um allt land.
HALLDÓR
Skólavörðustíg 2
Einkum er það erfitt , þegar
einhver er lasinn, þvi mjög sein-
legt er að útvega drykkjusjúkl-
ingum læknishjálp.
Hér skal þvi komið á framfæri
hugmynd til hjálpar eða bóta i
sliku bótalausu bölu.
Og það er svo sannarlega
ekkert guðsriki, sem hér er frá
sagt. En samt ógleymanlegt af-
rek góðvildar og gestrisni.
Á einum stað i miðri milljóna-
borginni Hamborg er ölkrá,
býsna stór salur og hreint ekki
fallegur.
Þar sitja menn og standa við
hátt „barborð”, eins og enginn
undrast, þvi hvarvetna finnast
slikir drykkjustaðir i stórbæjum
og hafnarborgum i tugatali. En
það, sem var og verður öllum,
sem þarna koma ógleymanlegþer,
að þar er vakað og veitt allan
sólarhringinn. Og við vegginn og
jafnvel i miðjum sal eru breiðir
trébekkir, sem fólk sefur eða
leggur sig á til hvildar, i fötum
þeim eða tötrum, sem það klæð-
ist. En úti i horni eru teppi, sem
lagt er yfir sofandann.
Oft hvila tveir, jafnvel bæði
kona og k'arl á sama bekk. Ekkert
virðist hér geta hneykstlað neinn.
Þegar einhver vaknar, kannski
eftir langan tima, fær hann heitan
baunagraut á stórum, djúpum
tindiski. Og ef hann eða hún vill,
er hægt að fara i bað á bak við
eitthvert þil eða vegg.
Þar virðist einnig einhver
geymsla með hreinlegum, en að
mestu notuðum klæðnaði, einkum
yfirhöfnum, sem klæðlitlum er
fengið orðalaust.
Yfirleitt virtist öll þjónusta
þarna ganga svo hljóðlega fyrir
sig, að undrun sætti. Enginn var
spurður, Enginn ávitaður. Fátt
var um kveðjur og þakkir. En
mikill var munur á sama manni,
þegar hann kom og fór yfirleitt.
Ekki veit égt hvort þetta var
einkafyrirtæki eða r’ekið á vegum
borgarinnar. En eitt er vist, orð
Meistarans: Hungraður var ég og
þér gáfuð mér að eta, þyrstur
varég og þér gáfuð mér að drekka
nakinn var ég og þér klædduð
mig, gestur og þér hýstuð mig,
ómuðu með nýju inntaki i eyrum
okkar, sem komum að sj^ hvaða
úrræði hafa fundizt þarna til að
skapa frjálst athvarf hinum alls-
lausa.
Þeir, sem drukku við „barinn”
borguðu fyrir sig, en hinum var
enginn reikningur réttur.
Gæti Reykjavik ekki eitthvað af
þessu lært?
Þvi miður er þess nú þegar
þörf. —- Stórborgin á hér strax sin
olnbogabörn.
Arelius Nielsson.
RowenÉa
Straujárn, gufustraujárn,
brauðristar, brauðgrill,
djúpsteikingarpottar,
fondue-pottar, hárþurrkur,
hárliðunarjárn og kaffivélar.
Heildsölubirgðir:
cHaUdór ^iríkááonj <2o.
Ármúla 1 Á, sími 86-114