Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 21. desember 1!)72
I'ÍMIW
7
Þæftir af sævíkingum ís-
iands í samfeildri útgáfu
MENNIRNIR I BRÚNNI
Þættir af starfandi skip-
stjórum
Ægisútgáfan.
Ægisútgáfan hefur sent frá sér
þrjú væn bindi með þessu efni, og
hafa skráð þættina Árni Johnson,
Ásgeir Jakobsson, Guðmundur
Jakobsson, Jón Kr. Gunnarsson,
Bárður Jakobsson og Gunnar M.
Magnúss. Þáttunum fylgja
margar myndir af skipstjórun-
um, sem við er rætt eða frá sagt,
skipum þeirra og verstöðvum og
jafnvel veiðum á miðum úti. I
hópi þessara skipstjóra eru
margir þekktustu, dugmestu og
aflasælustu skipstjórar landsins,
en valið annars ekki gert eftir
neinni sérstakri reglu. t fyrsta
bindi eru til að mynda þættir af
þeim Ásgeiri Guðbjartssyni,
Eggerti Gislasyni, Markúsi
Guðmundssyni, Hilmari Rós-
mundssyni, Haraldi Ágústssyni,
Hansi Sigurjónssyni og Þórarni
Ólafssyni.
t öðru bindi eru þeir Arinbjörn
Sigurðsson, Björgvin Gunnars-
son, Einnbogi Magnúss. Halldór
Halldórsson, Sigurður Kristjóns-
son, Þórður Guðjónsson og
Þorvaldur Árnason.
t þriðja bindi eru Gisli
Jóhannesson, Gunnar Hermanns-
son, Hrólfur Gunnarsson, Jóhann
Simonarson, Sigurjón Stefáns-
son, Þorsteinn Gislason.
Þetta eru allt saman nafn-
kunnir skipstjórar og sumir all-
frægir. Þeir hafa margan liskinn
fært að landi og i mörgum svaðil-
förum lent. Þættirnir eru ýmist
beinar frásagnir eða viðtöl, og
fylgir sumum aflaskvrslur skip-
stjóranna og ýmiss annar fróð-
leikur um skip, mið og ver-
stöðvar.
Margar ,,sjórnannabækur” eru
gefnar út árlega, og þjóðin hefur
mikinn áhuga á sævikingum
sinum. Með þessari útgáfu er
augsýnilega reyrxt að safna
þessu efni með skipulegum hætti
og gefa út i samræmdri heild, og
virðist auðsætt, að Ægisútgáfan
ætli að halda áfram með þennan
bókaflokk. Færi vel á þvi, að svo
sem eitt bindi kæmi á ári og
fengist þá hið fallegasta og
aðgengilegasta. heimilisbókasafn
um þennan gilda þátt þjóðlifsins,
og á einum stað saman komiö gott
safn neimilda af fiskiskipstiórum
landsins.
Bækur þessar eru hið skemmtT-
legasta lesefni öllum þeim
mörgu, sem eru með hugann
bundinn við sjó og sæfarir, og á
tslandsmiðum gerast ætið næg
söguefni. Bækur þessar eru
vandaðar i ytri búningi.
—AK
HEILSULIND HEIMILISINS
VIBROSAN
nuddtækiö nuddar einnig meö
örbylgjum/ en án hita. Gerir yfir-
leitt sama gagn og nuddpúöinn.
Regluleg notkun hindrar hrukku-
myndun. Á tækinu er styrk-
leikastiilir.
Fimm mismunandi munnstykki
fylgja.
Sex önnur fást aukalega, þ.á.m.
brjóstklukka, sem sett er í sam-
band viö tækiö. — Einnig fæst
loftpúði, sém hægt er aö setja i
samband viö tækið.
Nýi nuddpúðinn
frá Vibrosan
Vibramed Therm
hefur 3 styrkleika á nuddinu meö eöa án hita,
alls SJÖ stillingar. Á sex mínútum getið þér
lokiö nuddi meö VIBRAMED TK 'RM, sem
eykur veiliöan og hressir dásamlega.
Hvílík sæla
Gangöryggi, margs konar notkun og vönduö
framleiösla gerir VIBRAMED THERM nudd-
púöann að gjöf, sem öllum er kærkomin, kon-
um sem körlum, ungum sem gömlum.
i VIBRAMED THERM er
örbyIgjusegull, sem ekki
slitnar og þarf þvi ekkert
viðhald. Púöinn er léttur og
vel iagaöur og þvi hægt að
nota hann margvíslega,
jafnvel viö andlitsnudd.
Svissnesk dvergsmiö.
FIMM ÁRA ÁBYRGÐ.
ÞAÐ BEZTA ER ALDREI OF GOTT.
Fyrir
strákana:
FoTBOLTAR, þrjár gerðir,
vönduö handavinna.
FÓTBOLTASKÓR, stæröir 31-45,
úr ekta leðri meö plastsólum.
Ótrúlega ódýrir eöa aðeins 600.00
krónur pariö.
BADMINTONSETT OG BORÐ-
TENNISSPAÐAR.
Allt kinversk gæöavara i algerum
sérflokki.
BORGARFELL HF.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 23, sími 11372
Opið til kl. 10 föstudagskvöld
Útsölustaður í Keflavík:
Sportvík, Hafnargötir 3$^