Tíminn - 21.12.1972, Síða 16
16
TÍMINN
ekki einu sinni losnaft, jafnvel þótt hún hefði viljað. Um leið gargaði
gammurinn einkennilega kokandi beint framan i hana, hún fálmaði
blint og óttaslegin með lausu hendinni i áttina að hljóðinu og náði taki á
hálsinum á honum. Hún fann lifandi hlýjuna undir fitugu, ötuðu fjöðr-
unum. Óttinn við að tapa gleraugunum jók henni krafta, henni tókst að
ná báðum höndum um hálsinn á gamminum. Hann veifaði vængjunum
til að reyna að losna, vængjaðarinn slóst i gagnaugað á henni, en hún
sleppti ekki takinu, og enginn — allra sizt gammurinn hefði trúað, að
hún væri svona sterk. Fljótlega veltisl hún á jörðinni með gamminn
undir sér. Hún kreisti með báðum höndum og klessli hausnum á fuglin-
um niður i sandinn um leið, og það var ekki fyrr en langt var siðan
nokkuð kokandi hljóð heyrðist frá fuglinum, og hann lá alveg hreyfing-
arlaus undir henni, að hún linaöi tökin.
Dauði luglinn var enn með gleraugun hennar i nel'inu. Hún losaði
þau varlega og setti þau á sig. i hita bardagans halði annar helmingur-
inn af brotna glerinu dottið úr og efri helmingurinn af sjónfleli hennar
var einkennilega þokukenndur. Hún lá á l'jórum fótum, gegnblaut af
svita og dauðþreytt eftir slaginn við gamminn. Hún hafði höfuðverk af
sólinni og óttinn gagntók huga hennar. Krampakippir fóru um dauða
fuglinn, hún stóð upp og trampaði á honum þar til ekkert var eftir nema
svört klessa i rykinu.
Ilún fékk allt i einu hugboð um, að allur þessi hringsólandi, svarti
hrægammahópur væri að undirbúa allsherjar árás á hana. ljeir hnit-
uðu hringi uppi yfir henni, rétt olan við trjáloppana.
Ilún skalf ákaflega og gröt i hljóði, en IIjótlega kom henni bjargræðið
i hug. Ilún hraðaði sér yfir að bálkestinum,tók af sér gleraugun með
skjállandi höndum, nolaði heila glerið og fann brennipunklinn fljót-
lega. Lauíin fuðruðu upp,og hún hló af gleði. Uegar larið var að loga
glatt, mundi hún cftir oliubrúsanum úr bilnum. Ilún hljóp yfir að kofan-
um, sótti brúsann og hellti innihaldi hans ylir eldinn, sem i sama bili
bálaði upp. Dauða gamminum kastaði hún á báliö.
Reykinn lagði háll i lol't upp, svartan og ógnandi. Hann lagði upp til
sveimandi gammanna og hrakti þá hærra upp, fylgdi þeim þangað og
stiikkli þeim loks á flótta, þótt þeim væri það greinilega þvert um geð.
Gammarnir inni i bilnum urðu viti sinu l jæraf hræðslu, þeir skræktu og
kúlveltust hver um annan þveran, ruddust sem mest þeir máttu til að
komast sem fyrst út. Þeir liktust uppblásnum, blóði drifnum
kalkúnum, þegar þeir flögruðu burt Irá bilnum og reyknum.
Hegar hitinn frá bálinu var orðinn of mikill, fór lrú Betteson lil frú
Portman og settist hjá henni. Frú Bctleson var ákaflega legin að hafa
boriðsigurorð af gömmunum, jafnvcl þótt það væri aðeins um stundar-
sakir.
t>á tók hún eftir þvi,að frú Portman var gjörbreytt. Hún var að dauða
komin. Á hörundi hennar var einkennilegur grár fölvi, hún svitnaði
ekki lengur, húðin var skrælþurr.
Reykurinn skyggði á þær um leið og hann hrakti gammana á brott.
Frú Betteson lagðisl niður l'ast upp við frú Portman.
Jafnvel þá fannst henni Irú Portmar, falleg. Andlitið var slétt og
mjúkt og yndislegt viðkomu. i samanburði við þetta andlit var hennar
eigið hrjúft og hræðilega ljótt. Hún laut áfram og lagði kinnina að
vanga Irú Portmans til að linna mýktina við húð sina. t>á sneri frú
Portman höfðinu og leit á hana. Hún hafði ekki þrótt til að tala, en var-
irnar bærðust, án þess hún kæmi upp nokkru hljóði.
1 miðju rjóðrinu logaði cldurinn glatt. Neistaflug og svartir reykjar-
bólstrar stigu til lofts, upp til gammanna.sem héldu sig i humátt, reyk-
urinn var aðvörun til þeirra um aðhalda sig i hæfilegri fjarlægð. Stund-
um var reykurinn svo þéttur, að hann byrgði sólina alveg. Bálið lifði
lengi eftir að frú Portman var dáin.
t>að var einmitt um þetta leyti, að Paterson, Tuesday og Naga —
drengurinn, fylgdarmaður þeirra, sáu reyksúluna. Þá voru þeir
komnir niður i gilbotninn og voru staddir nokkra kilómetra norðan við
bilbrakið. Naga — drengurinn.hafði reyndar fyrstur séð reykirin. Hann
var aðeins með eitt auga, hitt halði hann misst. Hann slasaðist á veið-
um, hafði rekið oddhvassa trjágrein upp i augað. Siðan hafði hann ætið
verið varkár. Hann hafði sagt, að þeim væri óhætt að fylgja gömmun-
um, nú gátu þeir lika farið eftir reyknum,og áttu þess vegna auðvelt
með að rata rétta leið.
17. KAFLl.
Peterson ákvað, að þau yrðu i litla þorpinu þrjú dægur i viðbót til að
frú Betteson og Connie gætu jafnað sig vel.
Timunum saman sat Tuesday undir stóru tré niðursokkinn i samræð-
ur við Naga — drenginn. Útvarpstækið varðveitti hann vendilega á hné
sér eins og vant var, og öðru hvoru hallaði hann höfðinu aftur á bak og
söng. Hann sló höndunum háttbundið á hliðarnar á tækinu og söng eftir
hljóðfallinu, sem þannig myndaðist. Svo var að sjá.sem hann væri
með þessu aö reyna að koma kassanum i gang.
Naga - drengurinn.sat allan timann sem heillaður af vörum Tues-
days, og með sinu eina auga fylgdist hann gaumgæfilega með öllu, sem
gerðist, breiður, varaþykkur munnurinn var opinn af undrun. Óhugnan-
lega örið eftir hitt augaö var rauðþrútið og samanherpt, og af og til fóru
kippir um þann hluta andlitsins. F’yrir kom, að hann réð ekki við sig og
teygði sig fram til að ná i þetta merkilega útvarpstæki. Þá hrifsaði
Tuesday það frá augunum á honum og sat lengi með það undir hendinni
i öruggri I jarlægö. Naga — drengurinn fór þá að skriða kringum Tues-
day i orðlausri aðdáun til að geta skoðað þaðsem bezt frá öllum hliðum.
Einu sinni kom hann svo nærri, að andadráttur hans skildi eftir rakan
móðubletl á slétlí; tækinu. Syndaselurinn fékk ósvikna dembu yfir
höfuðið, siðan upphófst mikið nudd með erminni á fótboltatreyjunni,
þar til öll verksummerki voru afmáð.
Eftir þetta hélt Tuesday honum i ennþá meiri fjarlægð og útskýrði
vandlega fyrir honum, að einungis eigandinn mætti snerta tækið.
Naga — drengurinn sat lengi i öngum sinum og horfði niður fyrir fæt-
ur sér. llann virtist vera að velta þvi fyrir sér, hvernig bezt væri að
fara að til að komast yfir svona lurðugrip. Hann sagði eitthvað með
miklu handapati, og skömmu eftir hádegi fór hann og kom aftur stundu
siðar með bogaræksni. Hann notaði allt það orðskrúð og andagift, sem
hann hal'ði ylir að ráða,til að sýna Tuesday fram á ágæti bogans. Lang-
ar tölur hélt hann um yfirburöi Naga-ættflokksins, sem hann taldi
heimsins mestu veiðim. og lauk máli sinu með þvi að benda honum á,
að þvilikur pryðisbogi væri mörgum sinnum gagnlegri og dýrmætari
heldur en kassi, sem ekkert heyrðist i. Hann gætti þess vel að segja sið-
ustu orðin ekki með vanþóknun, en lagði málið þannig fyrir, að áheyr-
andinn gat ekki verið i vafa um, að þessi dæmalausi bogi væri töluvert
meira virði en kassinn dásamlegi. Boginn var óneitanlega miklu nyt-
samari, til dæmis væri hægt að skjóta með honum skógarfugla og nú,
þegar óvinirnir væru væntanlegir, mætti nota hann gegn þeim. Aldrei
þyrlti maður aö óttast nokkurnhlut, ætti maður slikan boga. Hvaða
ánægju var eiginlega hægt að hafa af svona kassa? Ekki gat Naga —
drengurinn, imyndað sér það.
Lárétt
I) Stafir - !i) Hulduveru,- 7)
Bætti við (viðth.) 9) Hreyfast.-
II) Strax,- 12) Eins,- 13)
Nudd - 15) Brjálaða.- 16)
Skælur,- 1B) Konunni,-
Lóðrétt
11 11 lif.- 2) Liti.- 3) Eins,- 4)
Ái.- 6) Þvoði.- ít) Belja.- 10)
Eð,- 14) 1 kýrvömb,- 15) Voði.-
17) óreiða.
X
Ráðning gátu nr. 1289
Lárétt
1) Ral'all.- 5) osa - 7) Ket,- 9)
Sýg,- 11) KN.- 12) La.- 13)
Und.- 15) Kal,- 16) Opa - 18)
Skárri.-
Lóðrétt
1) Rokkur - 2) Fót,- 3) As,- 4)
Las,- 5) Ágalli.- 8) Enn,- 10)
Ýla,- 14) Dok - 15) Kar,- 17)
Pá .-
Fimnitudagur 21. deseniber 1972
1
I
Slflliiili!
F IMMTUDAGUR 21.
desember
7.00 Morgunútvarp .Veður-
Iregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30 , 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunhæn kl. 7.45,
Morgnnleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl
8.45: Herdis Egilsdóttir les
þrjú frumsamin ævintýri
um jólasveina og snjókarl.
Tilkynningar kl. 9.30, Þing-
fréttir kl. 9.45. Létt lög á
milli liða. Ileilnæmir lifs-
hættir kl. 10.25: Björn L.
Jónsson læknir nefnir þenn-
an þátt: Ekki er allt matur,
sem i magann kemur.
Morgunpopp kl. 10.45: Deep
Purple leika og syngja
Fréttir kl. 11.00. Hljóm-
plölusafniö (endurt. þáttur
G.G.)
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 á frivaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.15 Búnaðarþáttur. Hjálmar
Finnsson fram-
kvæmdastjóri Áburðar-
verksmiðju rikisins talar
um áburðarmálin. (endurt.)
14.30 Siðdegissagan: „Siðasta
skip suður” cftir Jökul Jak-
obsson. Höfundur les (4)
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarliátið i Berlin i sept.
s.l. Christiane Edinger
leikur Partitu i d-moll fyrir
einleiksfiðlu eftir Johann
Sebastian Bach. Anthony
Newmann leikur 'a sembal
„The Quadran Pavan” eftir
John Bull og Krómatiska
fantasiu og fúgu eftir Bach.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.
6.25 Popphorniö
17.10 Útvarpssaga barnanna:
„Egill á Bakka" eftir John
Lic.Bjarni Jónsson islenzk-
aði. Gunnar Valdimarsson
les (2)
17.45 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglcgt mál . Páll
Bjarnason menntaskóla-
kennari flytur þáttinn.
19.40 Glugginn. Umsjónar-
menn: Sigrún Björnsdóttir,
Guðrún Helgadóttirog Gylfi
Gislason.
20.20 Leikrit: „Jólaævintýri”
eftir Finn Methling (áður
útv. i des. 1960) Þýðandi:
Hannes Sigfússon. Leik-
stjóri: Klemens Jónsson
Persónur og leikendur:
Sögumaður..Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Baltas-
ar. Þorsteinn O Stephensen,
Melkior.. Lárus Pálsson,
Kaspar.. Jón Aðils, Þjón-
ustustúlkan.. Jóhanna
Norðfjörð, Maria.. Herdis
Þorvaidsdóttir, Jósep.. Jón
Sigurbjörnsson , Heródes..
Róbert Arnfinnsson, 1. eng-
i 11.. Margrét Guðmunds-
dóttir, 2. engill.. Helga
Bachmann,3. engill.. Arndis
Björnsdóttir, 1. hirðingi..
Valur Gislason, 2. hirðingi..
Baldvin Halldórsson,3. hirð-
ingi.. Ævar Kvaran, Þjónn
Heródesar.. Bessi Bjarna-
son,Raddir i höll Heródesar,
Valdimar Lárusson, Briet
Héðinsdóttir og Margrét H.
Jóhannsdóttir.
21.25 Á hókamarkaðinum.
Andrés Björnsson útvarps-
stjóri sér um kynningu á
nýjum bókum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir. Á bóka-
markaðimiin — framhald.
22.45 Manstu eftir þessu?Tón-
listarþáttur i umsjá Guð-
mundar Jónssonar pianó-
leikara.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Hminner
peningar
Auglýsúf
í Timanum