Tíminn - 21.12.1972, Page 24
Krá æfiiifíu á Marfu Stúart. l.cikNtjórinn Ulrich Erfurth leiðbeinir
lcikurunum. Lcngsl til hægri er Geirlaug Þorvaldsdóttir. Kristbjörg
Kjcld. i svarta kjólnum leikur Mariu Stúart, cn Briet Iiéðinsdóttir fer
nicð hlutvcrk Elisabetar I.
María Stúart frum-
sýnd annan jóladag
Jólaleikrit Þjóðleikhússins,
Maria Stúart eftir þýzka skáldið
Friedrich Schiller, verður frum-
sýnt annan i jólum. Leikritið
fjallar um siðustu æfidaga Mariu
Stúart Skotadrottningar og
samskipti hennar og Elisabetar
Englandsdrottningar. Er verkið
byggt á sögulegum staðreyndum
en með skáldlegu ivafi.
Schiller skrifaði Mariu Stúart
árið 1800 og var það lrumsýnt
sama ár. Um siðustu jól sýndi
Þjóðleikhúsið Fást eftir G'ólhe en
hann og Schiller voru samtima-
menn og miklir vinir.
Þýðingu leikritsins gerði Alex-
ander Jóhannesson, fyrrum
rektor, en Þorsteinn frá Hamri
yfirfór þýðinguna og gerði nokkr-
ar breytingar fyrir þessa
uppsetningu. Leikstjóri er Ulrich
Erfurth, þýzkur leikstjóri sem
búsettur er i Hamborg, en hann
hefur um árabil verið einn af
þekktustu leikhúsmönnum
Þýzkalands. Er uppsetningin i
Þjóðleikhúsinu hin 192 i röðinni af
þeim leikritum, sem hann hel'ur
sviðsett. Er þvi hér um gamal-
reyndan leikstjóra að ræða, en
hann hefur tvisvar sinnum áður
sett leikritið upp. Erfurth sagði á
blaðamannafundi, að hann hafi
haft sérstaka ánægju al' að vinna
að verkinu hér. Kvað hann leik-
húsmennt á tslandi standa mjög
framarlega og mættu þýzkir
leikarar vissulega margt af is-
lenzkum starfsbræðrum sinum
læra, sérstaklega hvað snerti
vönduð vinnubrögð og
starfsáhuga. í Vestur-Þýzkalandi
sagði hann að leikhúslif væri
i upplausn og i stað þess að vinna,
legðu þarlendir leikarar mest
upp úr að rexa og pexa og væri
starfsárangur þeirra eftir þvi. En
hér á landi er þessu öðru visi farið
og væri hann forsjóninni og Þjóð-
leikhúsinu þakklátur fyrir að hafa
l'engið tækifæri til að vinna hér.
Valur Gislason sagði, að hann
talaði áreiðanlega fyrir munn
allra leikaranna, sem þátt taka i
sýningunni, er hann þakkaði leik-
stjóranum l'yrir vel unnið verk.
Sagði hann kröfuharðan en það
væri einmitt þakkarvert, þvi ekki
væri mögulegt að setja sýningu
sem þessa á svið, nema með þvi
Framhald á bls. 23
Erl-Rcykjavik
Stúdcntaráð og SiNE boðuðu i
gær til blaðaiiiannafundar um
láuamál stúdcnta i tilefni af
þriðju umræðu um fjárlagafrum-
varpið, scm hcfst i dag.
Jón Ásgeir Sigurðsson kynnti á
fundinum kröfur og útreikninga
stúdenta á þeirri fjárhæð, sem
þeir teldu sig þurfa, og benti i þvi
sambandi á að eins og baráttu
þeirra væri nú háttað, væri það
eingöngu varnarbarátta, að
reyna að halda þvi, sem áður
hefði verið, en ekki virtist að svo
stöddu þýða að stefna að þvi, sem
áður hefði verið að stefnt, að lánin
hækkuðu verulega á þessu ári, og
hinu næsta unz náð væri greiðslu
á 100% umframfjárþörf árið 1974.
Slikt hefði verið praktisk stefna
rikisstjórnarinnar, og yfirlýst
stefna hinnar fyrrverandi, en
ekki liti vel út með að slikt rættist
aö svo stöddu.
Til að halda óbreyttu raungildi
lána telja stúdentar sig þurfa að
fá i Lánasjóðinn greiðslur að upp-
hæð 423,4 milljónir, en til að stað-
iðverði viðfyrri fyrirætlanir telja
þeir að greiðslurnar þurfi að
nema 477,4 milljónum, og sé
gengisbreytingin fullreiknuð þar
inn i, um 490 milljónum króna.
Ætlun fjárveitinganefndar telja
þeir hins vegar þá, að úthluta
399,3 milljónum i Lánasjóðinn,
þar af séu 75 milljónir fengnar að
láni hjá bönkunum. Þetta telja
stúdentar óviðunandi, og finnst
afleitt að raungildi lána lækki svo
mjög sem horfur eru á. Það sé i
fyrsta sinn sem slikt hendi, til
þessa hafi raungildi lána alltaf
farið hækkandi og vilja þeir að
sliku verði framhaldið, unz áður
aðstefndu marki verði náð 1974.
Inni i áðurnefndum tölum eru
ekki fólgnar verðlagsbreytingar,
sem orðið hafa á árinu og nema
1.5 stigum erlendis og 6.7 stigum
hér á landi, en þá fyrir lengri
tima, sem enn hefur ekki verið
leiðrétt.
Að lokum bentu stúdentarnir á,
að ef þessi lágmarkskrafa þeirra
um óbreytt raungildi lána fengist
ekki i gegn, myndu þeir alls ekki
sætta sig við slíkt, og hlyti þá að
verða gripið til einhverra að-
gerða, til að knýja á um málin.
Slikar aðgerðir, hverjar sem þær
yrðu, væru að sjálfsögðu aldrei
æskilegar, en til hvers væri ekki
gripið, ef kjör manna væru stór-
lega skert i stað bóta, eins og
áætlað hefði verið.
B.v. Bjarni Ben.
rakst á bryggju
— heimferðin tefst fram yfir dramót
SB-líeykjavik.
Skuttogarinn Bjarni
Bencdiktsson rakst á bryggju í
San Scbastian á Spáni á
þrið judagsmorguninn, er
skipið var að leggja af stað i
rcynsluför. Skipið dældaðist
nokkuð við áreksturinn og
inun viðgcrð taka um eina
viku. Af þessum sökum tefst
hcimferð skipsins fram yfir
áramót, en hún var fyrirhuguð
nú i vikulokin.
1 reynsluferð þessari átti að
reyna togvörpuna i drætti og
setti skipasmiðastöðin
spánskan skipstjóra til að
stjórna skipinu. Þegar hann
-var að leggja frá bryggjunni
og hafði tekið afturá, lét hann
skipið taka áfram á allt of
mikilli ferð, þannig að bak-
borðskinnungur þess rakst i
bryggjuna og dældaðist hann
nokkuð aftan við akkerið og i
akkerishæð. Skipið verður
tekið i þurrkvi til viðgerðar.
Eeynsluferðin var farin,
þrátt fyrir óhappið og tók hún
um niu klst. Þó að veður væri
óhagstætt, varð einhver
árangur af ferðinni.
Tjónið mun að likindum
verða bætt af skipasmiðastöð-
inni, þar sem skipið er enn i
hennar umsjá og tryggt fyrir
140 milljónir peseta.
Háar upphæðir
á jólamarkaðinn
Bætur Almannatrygginga til Reykvíkinga
um 200 milljónir í jólamánuðinum
Lágmarkskrafa stúdenta:
Raungildi námslána
haldist óbreytt
Erl-Reykjavik
<lriðarlcgar fjárhæðir hafa
streymt út á meðal manna það
sem af cr þessum mánuði, og
miklu liærri cn nokkru sinni áður.
Tryggingastofnun Rikisins er
stærsti aðilinn i þessum út-
horgunum, cn á timabilinu frá 7.-
19. dcs. hefur hún greitt út til
Reykvikinga einna 174,5 milljónir
króna, en alls er i mánuðinum út-
hlutað tæplega 200 niilljónum til
bótaþcga i borginni. Mesta
greiðsla á dag var 11. des., 25
millj. Grciðslur þessar munu fara
til eitthvað yfir 20.000 aðila.
Siðasti útborgunardagur á bót-
um Almannatrygginga verður
föstudagurinn 22. des. og þurfa
þeir, sem ætla að vitja bóta sinna
að koma i afgreiðsluna i siðasta
lagi kl. 15.00 þann dag, en af-
greiðslan er opin til sama tima i
dag.
Aðrir stórir útborgunaraðiljar i
jólamánuðinum eru happdrættin.
Hjá Happdrætti DAS, nam and-
virði vinninga i mánuðinum á
fimmtu milljón króna, en enda-
dráttur hjá þeim er ekki fyrr en i
april, en þá verður ðinbýlishúsið
góða dregið út ásamt fleiri og
stærri vinningum en eru i öðrum
mánuðum.
Upphæð vinninga hjá Happ-
drætti SIBS i desember var rúm-
ar 7 milljónir króna. og er búið að
greiða langmest af þvi út.
Hjá Happdrætti HI nam upp-
hæð vinninga mánaðarins 101
milljón króna. Af þeim hafa á
þeim þrem dögum frá þvi greiðsl-
ur hófust verið greiddar út rösk-
lega 41 milljón þar af 24,3 i
Reykjavik. Hafa menn verið
óvenju röskir við að sækja vinn-
inga sina þessa daga, enda stutt
til jóla. Þess má geta, að stóra
Stokkseyrarvinninginn er ekki
enn búið að borga út, en þá fara 4
milljónir.
Það er þvi hátt i 300 milljónir,
sem likur eru á að Almanna-
tryggingar og Happdrættin leggi
Reykvikingum á borðið i desem-
bermánuði til ráðstöfunar I jóla-
innkaupunum.
GS-lsafirði 20.-12.
Þrátt fyrir leiðindaveður hafa
bátar verið á sjó i gær og dag og
aflað vel, flestir með 10-14 tonn i
róðrinum. Eins hefur frétzt af
góðum afla skuttogarans nýja
Júliusar Geirmundssonar, en
hann er væntanlegur inn i fyrra-
málið.
Ekki hefur komið flugvél i þrjá
daga, og er það mjög bagalegt,
bæði vegna vöru- og fólksflutn-
inga, en fjöldi fólks biður á báðum
endastöðvum flugleiðarinnar.
Efnismikið
jólablað
Jólablað Timans er komið
út, stórt og vandað, alls 80
blaðsiður. Efni blaðsins er
fjölbreytt og hér er talið það
helzta: Viðtal við séra Þor-
berg Kristjánsson i Kópavogi,
greinin Hver var gamli Sun?
eftir Sigvalda Hjálmarsson,
barnasagan Jonni i jóla-
sveinalandi, eftir Snjólaugu
Bragadóttur, grein um að-
draganda og myndun þjóð-
stjórnar 1939 eftir Þórarinn
Þórarinsson, grein um
Norðurá i Borgarfirði eftir
Sigurð Hreiðar, þýðing úr
ferðabókinni Róm, borgin
eilifa, gerð af Arnheiði
Sigurðardóttur, grein um dr.
Helga Pjeturss., eftir Kjartan
Norðdahl, grein um Pólland,
grein um mannlifið á Islandi
fyrr á árum eftir Valgeir
Sigurðsson, sagan jólanótt i
Uppsölum eftir Albert
Engstr., grein um
Leirársveit eftir Jón Helga-
son, Vor i Vin eftir Völu Þóru,
Jarðir á íslandi eftir Benedikt
frá Hofteigi, mikil grein um
Loftleiðir eftir Steingrim
Pétursson, grein um Nýju
Guineu i þýðingu Jóns Guðna
Kristjánssonar, Björn gamli á
Skák, smásaga eftir Aslaugu
Sólbjörtu, Jólin, kristileg
hátið? eftir Svanberg K.
Jakobsson og frásögn eftir Jón
Helgason um stórflóð við
strendur Islands, þar sem seg-
ir frá þvi er Básendakaup-
staður fór i kaf. Einnig eru
kvæði og söngvar eftir Böðvar
Guðlaugsson, jólaföndur, stór
verðlaunakrossgáta o.fl.
Jólablaðið kostar 50 krónur i
lausasölu.
Stúlkan á batavegi
en maðurinn ófundinn
Ingibjörg ólafsdóttir, sem
stungin var á hol úti á götu i
Breiðholti aö morgni þriðjudags,
er rétt að byrja að ná sér eftir
mikinn uppskurð, sem á henni
var gerður rétt eftir árásina.
Ileilsa hcnnar ieyfir ekki, að tekin
verði nákvæm skýrsla af henni
enn sem komið er. Er þvi litlu við
lýsingu á manninum sem réðst á
liana, að bæta en hann er ófund-
inn.
Enginn hefur gefið sig fram,
sem séð hefur atburðinn. Fátt
fólk var á ferli svo snemma
morguns, og var Ingibjörg það
snemma á íerðinni á leið til
strætisvagnsins, að fleiri voru
ekki komnir á stjá af þeim, sem
tóku þann vagn i bæinn.
Á þessu svæði Breiðholtsins eru
engin göuljós komin. Var þvi að
eins skima meðfram húsinu sem
Ingibjörg býr i, og var á gangi
meðfram, þegar maðurinn
veitti henni eftirför. Langt er
liðið siðan ljósastaurar voru sett-
ir þarna upp, en ekki er búið að
setja upp sjálfa kúplana. Raf-
veitustjóri sagði Timanum fyrir
siðustu helgi, að von væri til að
hverfið yrði upplýst i þessari
viku, eða fyrir jól.
Útvarpstœki
sprakk
i gær laust niður eldingu i
útvarpsloftnet að Lindargötu 13 i
Reykjavik og sprengdi eldingin
útvarpsloftnetið. Þá læsti
eldingin sig eftir raflinu yfir i
Lindargötu 15 og urðu nokkrar
skemmdir af þessum sökum i
báðum húsunum.
Fim intu dagur
21. dcsember 1972
ísaf jörður:
Aflinn lofar
góðu fyrir
vetrarvértíð