Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.12.1972, Blaðsíða 2
2 ’I'ÍMIW Kiistudagur 22. drsember li(72 HBS Verksmiðjan Höttur, Borgarnesi framleiðir margar gerðir og liti af léttum, hlýjum loðliúfum úr íslenzk um skinnum. Merkiðl tryggir gæðin. rkið trygj m •• Gleymið ekki HOFUÐATRIÐINU í kuldanum! Útsölustaðir:kaupfélögin og sérverzlanir um land allt Augjýs l endur Auglýsingar, sem eiga aö koma I blaöinu á sunnudögum þurfa aft berast fyrir kl. 4 á föstudögum. Augl.stofa Timans er i Bankastræti 7. Simar: 19523 - 18300. LÖGKKGI.UÞJÓNAR M Kf) KNDURSKINSMERKI. Mér varð á að hugsa, hvort ekki væri rétt að skylda alla lögreglu þjóna til þess að bera endurskins- merki á búningum sinum, þegar ég var nærri búinn aö aka niður einn slikan nú um daginn. Ég kom akandi eftir Hringbrautinni, og þegar ég kom aö horni Sóleyjar- götu og Hringbrautar, kom allt i einu lögregluþjónn út á götuna til þess að stöðva umferðina. Skyggni var mjög slæmt þetta kvöld og komið myrkur. Ég verð að viðurkenna, aö ég kom ekki auga á lögregluþjóninn fyrr en á siðustu stundu, þar sem hann var i sinum svarta búningi, og hvergi var hvitur blettur á honum. Hann var heldur ekki með ljós i hend- inni, eins og lögregluþjónar eru oft við umferðargæzlu. Mér tókst að stöðva bflinn, en átti á hættu,að annar bill lenti aftan á minum, þar sem umferð var mikil, og ekki hafði verið hægt að draga smátt og smátt úr hraðanum, þar sem lögregluþjónninn birtist svo skyndilega. Nú vil ég endilega leggja til, að lögregluþjónar verði látnir ganga á undan með gott fordæmi og látnih nota endurskinsmerkin, sem fólk er svo eindregið hvatt til þess að prýða fatnað sinn með og fatnað barna sinna, og svo sann- arlega ekki að ástæðulausu. Aðdáandi endurskinsmerkja TILKYNNING frá Seðlabankanum Seðlabankinn vill að gefnu tilefni benda á, að samkvæmt 1. gr., sbr. 3. gr. laga nr. 71/1966, er óheimilt að stofna til fjárskuld- bindinga i islenzkum krónum eða öðrum verðmæli með ákvæðum þess efnis, að greiðslur, þar með taldir vextir, skuli breytast i hlutfalli við breytmgu á visi- tölum, vöruverði, verðmæti gulls, silfurs eða annars verðmælis, nema að fengnu leyfi bankans. Sérstaklega skal á það bent, að óheimilt er að miða greiðslur við verðmæti gulls eða annarra góðmálma. Þá er óheimilt, skv. 2. gr. nefndra laga, að stofna til fjár- skuldbindinga með endurgreiðslu miðað við gengi erlends gjaldeyris, nema um endurlán erlends lánsfjár sé að ræða, og að hin erlenda lántaka sé heimiluð lögum samkvæmt. Reykjavik, 20. desember 1972. SEÐLABANKI ÍSLANDS ,sA-A7il,V> f.|M i i. l/gLP//'f FLUGUVEIÐI Fljótlega eftir áramótin verður haldinn stofn- fundur nýs veiðifélags áhugamanna um flugu- veiði. Markmið félagsins verður fyrst og fremst það, að taka á leigu góða laxveiðiá, endurleigja hana til félagsmanna á kostnaðarverði, án ihlutunar erlendra manna og ferðaskrifstofa. Oskað er eftir nöfnum 20 manna, hvar á landi sem þeir búa, sem hafa áhuga á f luguveiði, og náttúruvernd. Þeir sem vilja sitja stofnfundinn eru vinsam- legast beðnir að senda nafn og heimilisfang á afgreiðslu Timans merkt ,,island fyrir Islend- inga", 1371. Innkaupastjórar verzlana athugiö Okkar ágætu viðskiptavinum viljum við benda á, að Simar heildsölunnar eru 91-11971 og 91-17080 i Reykjavik. Verksmiðjan A Borgarnesi ^ígpr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.