Tíminn - 24.12.1972, Síða 1

Tíminn - 24.12.1972, Síða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIÐJAN SÍMI: 19294 * * 296. tölublað — Sunnudagur 24. desember—56. árgangur Z2/i*t A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 Séra Jón E. Einarsson, Saurbæ: Þín er leitað til blessunar i Kom blessuð, ljóssins hátið, —helgi þín minn hug og vilja göfgi, vermi, fylli, svo máttug verði og heilög hugsun min og hörpu mina Drottins andi stilli. Þannig kemst skáldiö, Guðmundur Guðmundsson, að oröi, er hann býður jólin vel- komin. Hann biður helgi jólanna að göfga, verma og fylla hug sinn og vilja, svo að hugsun hans veröi máttug og heilög og andi Drottins megi móta og helga lif hans og gjörðir. Hlýtur þetta ekki að vera bæn okkar tslendinga á hverjum jólum? Hljótum við ekki að biðja jólin og jólabarnið að helga lif okkar til meiri fegurðar, birtu og blessunar? Allir finna, að jólin hafa helg og bætandi áhrif á þá. Þeir finna fögnuð og unað fara um sig, finna, að það birtir ekki aðeins i kring um þá, heldur einnig innra með þeim sjálfum,og þá langar til að verða betri menn og lifa hreinna og helgara lifi. A jólunum verður undursamleg breyting á öllu. Þá finnum við betur en áður birtu himinsins og kærleika Krists umlykja okkur, finnum, að „Drottins nægð og náð” er okkur boðin, að himinn og jörð mætast, þvi að Guð er fæddur á jörðu. II Enn sem fyrr flytja jólin okkur einkum þrenns konar boðskap: Boöskapinn um gleðina, fögn- uðinn, sem veitast skyldi öllum mönnum. Boðskapinn um ljósið, sem er í heiminn komið til að upplýsa hvern mann og visa honum til átta i lifinu. Og i þriðja lagi boðskapinn um friðinn, frið i hjörtu okkar mannanna, frið á heimilum og i fjölskyldulifi, frið milli hjóna, frið milli foreldra og barna, frið i landi og á miðum, frið milli manna og þjóða, frið á foldu. En hvernig tekst okkur að veita boðskap jólanna viðtöku? Og hvaða áhrif hefur hann á lif og menningu okkar tslendinga i dag? Ber islenzkt þjóðlif þess nægilega vitni, að Kristur kom og að við höidum jólin vegna hans? Minnast skulum við þess, Islend- ingar, að lif þjóðarinnar hefur verið kraftaverk Guðs. Guð hefur leitt og varðveitt þessa þjóð, veitt henni styrk i lifsstriði aldanna, flutt henni frið, gleði og sigur. Hann hefur tendrað henni i hjarta ljós heilagrar trúar og vonar og mun enn á ný gefa henni styrk i baráttu og erfiðleikum komandi daga og varðveita hana i sinni náö og mildi. Það varðar giftu þjóðarinnar og framtið i þessu landi, að hún varðveiti jólaeldinn, glóð þess boðskapar og hugsjóna, sem Jesús Kristur hefur flutt þessari jörð, og láti þær hugsjónir móta og helga líf sitt, skoðanir sinar og menningu. 1 þessaru hugleiðingu vil ég vekja athygli á boðskap Jesú um Altari Hallgrimskirkju i Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Freskómynd eftir finnska listamanninn I.ennart Segerstrale. gildi og helgi mannlifsins og hvetja til mannverndar og virð- ingar fyrir helgi og heilagleik yfirleitt. Spyrja mætti, hver séu viðhorf manna til þess, sem heilagt er, og hvaða stoðir hiö helga eigi sér i siðgæðisvitund manna, lifsskoðunum þeirra og sáiarþroska. Hver eru viðhorf manna gagnvart helgi mann- lifsins, helgi heimilisins, helgi hjúskapar- og f jölskyldulifs, helgi einstaklingsins, helgi eignar- réttarins, helgi hvildardagsins, helgi sakramentanna, helgi kirkj- unnar, helgi jólanna? Jólin eru fæðingarhátið hans, sem hefur helgað mannlegt lif, vill hreinsa það frá öllum sora og syndum og lyfta þvi ljósinu og himninum nær. Jólabarnið finnur eitthvað heilagt og gott i hverjum manni, hverri einustu mannssál. Þann neista vill það varðveita og gæða nýju lifi. Það er ekki sizt vegna þessa, sem jólin hafa svo knýjandi boð- skap að flytja þeirri kynslóð, sem nú er uppi, þegar verðmæti lifsins eru mæld i peningum og vegin á vog hagvaxtar og lifsþæginda, án þess að um það sé spurt, hvort það hjálpi manninum helzt og fyrst til meiri hamingju og fegurra og bjartara mannlifs. Vissulega hefur núverandi kyn- slóð stigið mörg framfaraspor i leit sinni að betra lifi. Samt er eins og vandi mannsins aukist með ári hverju og mennskunni hnigni. Næstum daglega flytja fjölmiðlar okkur fréttir af myrkraverkum manna. Þar er brugðið upp myndum og frá- sögnum af hvers kyns ófriði, mannránum, flugvélaránum, uppreisnum, óeirðum og vald- beitingu, innbrotum, eiturlyfja- neyzlu og alls konar mengun og ómennsku. Það virðist augljóst, að þrátt fyrir aukna menntun og þekkingu, þá er maðurinn stöðugt að eitra lif sitt og umhverfi. 1 hinum svonefndu menningar- löndum, þar á meðal hér á íslandi, hefur á siðustu árum verið rekinn stórkostlegur áróður fyrir aukinni þekkingu i eðlis- fræði, enda hefur kennsla i þeirri fræðigrein verið stórum aukin i skólum. Skal það ekki lastað út af fyrir sig, enda mun nauðsyn bera til v'egna tæknivæðingar aldar- innar. En hinu vil ég vekja athygli á, að það er mjög var- hugavert aö kenna börnum og ungum mönnum eölisfræði, án þess að kenna þeim einnig og um leiö, hvernig nota á þá þekkingu i þágu hins góöa i lifinu, i þágu kærleika og friðar milli manna, i þágu guðsrikis á jörðu. Þekking eðlis og efnis verður að vera i tengslum við þekkingu andans og hljóta sitt lif hjá honum. Sagan sýnir, að einhliða þekking i eðlis- fræði, án þekkingar i siðfræði og siögæðilegrar viðmiðunar, er manninum hættuleg. Mengunin, sem svo viða ógnar lifi mannsins og umhverfi, er órækur vitnisburður þess, að manninum hefur mistekizt um beitingu þess valds og notkun þeirrar þekkingar, sem hann hefur öðlazt um eðli hlutanna. Menn eru nú að sjá það, aö þekkingin hefur verið notuð til of einhliða efnishyggju og andinn lotið i lægra haldi. Menn spyrja, hvort tæknin sé ef til vill að grafa manninum hans eigin gröf og hver verði framvinda lifsins á jörðinni, ef eitrunin heldur stöðugt áfram. Hver verður framtið tslands, ef hafið deyr? Það er fagnaðarefni, að á þessu ári hefur landhelgi Isiands verið stækkuö til mikilla muna og að skilningur fólks fer vaxandi á nauðsyn þess að vernda landið og miðin fyrir mengun og rányrkju. En hvað vilja menn gera til að efla áhrif kristinnar trúar og kristins siðgæðis með þjóðinni? Hvað vilja menn á sig leggja til að vernda þá mannhelgi og þau mannréttindi, sem eru ávöxtur kristinnar trúar og kirkju? Eða hvers virði er það að krefjast meiri landhelgi og hrópa um mengun jarðarinnar, ef ekki er einnig reynt að stemma stigu við mengun mannsins, uppræta sýklana, sem eitra mannlifið, og standa vörð um þann mannskiln- ing og þá mannhelgi, sem af heilagri trú eru vaxin? III Jólin hvetja okkur til aukinnar friðhelgi og mannverndar. Jóla- barnið, Jesús Kristur, vill eyða Ijótleika og myrkri mannlifsins, en efla og glæða hið fagra, sanna og góða. Boðskapur hans þarf aö hafa áhrif á hvern einasta mann, á siðferöi einstaklingslifsins og félagslifsins, viðskiptaiifsins, stjórnmálalifsins og þjóðlifsins alls. Það er vissulega kominn tími til að hlusta á boðskap Krists um mannvernd og mannhelgi af full- kominni alvöru og heilindum. Boðskapur hans hefur veriö nefndur fagnaðarerindi, gleðitiðindi. Vegna þess aö hann flytur þann fögnuð, þá gleði, sem allir þrá og þurfa. Hann er kominn með fögnuð og frið himinsins inn i mannheim. Hann er kominn til þin, lesandi góður, fæddur inn i lif þitt til að hjálpa þér að lifa, bera þér ljósiö, gleðina og friðinn En hann kallar þig til að vera samverkamaöur sinn, kallar þig til þjónustu og fórnar i þáguljóssinsog friöarins, til útbreiðslu guðsrikis meðal manna. Þú ert kallaöur og þin er leitað til að bera jólaljósið i lifi þinu og breytni, til að þiggja jóla- fögnuðinn og gefa hann heimili þinu og öðrum mönnum. Þin er leitaö til að veita gleði og ham- ingju, huggun og frið. Þin er ’leitað til að græða sár i lifi bræðra þinna og systra og á ásjónu lands þíns. Þin er leitað til að byrgja brunna eitursins og standa vörð um helgi mannlifsins. Þin er leitað til blessunar fyrir land þitt og þjóð. Það þarf þinar hendur og þin krafta Islandi til blessunar og heilla. Það þarf þina hjálp til að bera boðskap jólanna, boðskap og áhrif Jesú Krists inn i islenzkt mannlif og menningu. Það þarf þina rödd, þitt ljós og þin spor út veginn, þar sem stjarna himinsins visar til átta, veginn, sem liggur að jötunni, þar sem lávarður heimsins hvilir, hann, sem er jólin, hann, sem er kóngur dýrðar um eilif ár, konungur lifs vors og ljóss. Dýrð sé Guði i upphæðum, friður á jörðu og velþóknun yfir mönnunum. Gleðileg jól. • • • • • • • •

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.