Tíminn - 28.12.1972, Síða 5
Fimmtudagur 28. desember 1972.
TÍMINN
5
Hvað mundir þú gera, ef þú ynnir
milljón í Happdrætti SÍBS?
KAUPA
Allir eiga jú óskir sem geta rætzt.
T. d. eigi maður miða í Happdrætti SÍBS.
Einmitt nú þegar vinningunum fjölgar.
Og vitað er, að meira en fjórði hver
miði hlýtur vinning.
En það verður að gera eitthvað
til að heppnin sé með.
Dregið verður 10. janúar.
Kaupið miða strax í dag.
Umboðsmenn eru um allt land.
Alltaf er dálitið forvitnilegt
að fylgjast með, hvað kemur
af ungum stóðhestum, 4-5
vetra, á svona mót. A þvi má
nokkuð marka, hvort um
framför er að ræða eða ekki.
Ekki veit ég af hverju það
stafar, en á undanförnum
mótum hefur of litið sézt af
ungum efnilegum folum, flest
eru þetta hálfgerðir skuddar,
sem enginn hefur áhuga á.
Einn og einn foli sést, sem
vekur eftirtekt, en það er eins
vist, að þann sama fola er búið
að vana ári seinna. I mörgum
tilfellum eru það aðeins fé-
lagasamtök, sem hafa tök á
þvi að koma þessum folum
áleiðis. Einstaka landmiklir
bændur hafa aðstöðu til upp-
eldis á unghestum, en svo eru
það margir, sem enga aðstöðu
hafa og þá er ekki um annað
að ræða en vana þessa fola,
hversu efnilegir sem þeir eru.
Búnaðarfélagið kemur, mér
vitanlega, ekkert til móts við
þessa menn, skiptir sér litið af
ræktun hrossa, utan smá-
verðlauna til kynbótahrossa,
þegarlands- eða fjórðungsmót
eru haldin. Svo koma einstakl-
ingar og gefa bikara forljóta
og ómerkilega, sem eiga að
vera eins og skrautfjöður á
hatti, og þar með er verkið
fullkomnað.
Fátt af 5 vetra stóðhestum á
Hellu voru álitlegir. Þáttur frá
Kirkjubæ, sá efsti, er efnileg-
ur foli, léttbyggður og sver sig
i Kirkjubæjarkynið, efnilegur
stóðhestur, en mætti vera að-
eins stærri. Hann sómdi sér
vel efst. Ekki var útkoman
eins virðuleg á 4 vetra folun-
um, þar var hafður efstur Kol-
bakur frá Gufunesi. Hefði
þessi hestur verið á sýningu
30-40 árum áður hefði ekki
verið eins ótrúlegt að hann
væri svo ofarlega, þvi að
sennilega mundi hann sam-
ræma dráttarhestinn annars
vegar og hest, sem hægt væri
að riða á milli bæja hins veg-
ar, en trúlega of stirður i
smalamennsku. Skarp-
skyggnir eru þeir menn i
meira lagi, sem sjá gæðing i
þessum hesti, og litið fannst
áhorfendum til hans koma..
Næst efstur var Stígandi,
brúnskjóttur, ættaður frá
Hesti Borgarf. Hesturinn er of
smár, en vilja hefir hann og
tiðlegan gang og er þar af leið-
andi efnilegur foli, ef ekki
spillti honum skapillska svo
áberandi, að af þeim, sökum
er hann illalandi, lemjandi um
sig taglinu i tima og ótima og
er það ekki aðlaðandi sjón af
kynbótahrossi að vera. Þriðji
hesturinn i þessum flokki,
Flosi frá Sandgerði, vakti
óskipta athygli áhorfenda.
Hesturinn er með afbrigöum
fallegur, settur og prúður i
gangi og kom i alla staði vel
fyrir. Hann virðist vera með
sæmilegan vilja. Það eina,
sem spursmál er um, hvort
þessi hestur hafi nógu sterkar
fætur en það kemur væntan-
lega i ljós siðar. Þetta er einn
af þeim fallegustu folum, sem
komið hefur á syningu mörg
undanfarin ár.
Eitthvað heyrði ég um að
þessi hestur væri bara klár-
hestur með tölti, en þá er ég
illa svikinn, ef þessi hestur á
ekki til skeið og mun það sann-
azt, þótt seinna verði. Þessi
foli var augnayndi margra
áhorfenda og ekki spillti litur-
inn, leirljósblesóttur.
SMÁRI
Veljið yður í hag - Úrsmíði er okkar fag
Nivada
OMEGA
rOAMEr
JUphuL
Magnús E. Baldvlnsson
^ Laugavegi 12 - Simi 22804
I. Tilboð óskast i.lögn hitaveitu i iðnaðarhverfi á Artúns-
höfða, 1. áfanga.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn kr. 5.000-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 16. janúar
n.k. kl. 11.00.
II. Tilboð óskast i lögn hitaveitu i iðnaðarhverfi við
Elliðavog.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn kr. 5.000.-
skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 23. janúar
n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
NEW YORK
ALLA DAGA
OSLO STOKKHOLMUR KAUPMANNAHÖFN LUXEMBOURG GLASGOW
MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALLA DAGA LAUGARDAGA
FOSTUDAGA FOSTUDAGA SUNNUDAGA
LONDON
LAUGARDAGA