Tíminn - 28.12.1972, Side 8
8
Itannveig Sigursson
TÍMINN
Fimmtudagur 28. desember 1972.
Fimmtudagur 28. desember 1972.
TÍMINN
9
Semur, stjórnar
og leikur
Stutt spjall við íslenzka listakonu, sem
starfrækir eiginn leikflokk í Skotlandi
Um þessar mundir er
stödd hér á landi um stutt-
an tima Rannveig Sigurs-
son íslenzk leikkona og
leikstjóri, sem búsett er í
Edinborg og rekur þar eigið
leikhús. Rannveig er upp-
alin í Reykjavík, hélt ung
utan, fyrst til söngnáms í
Edinborg, en síðan lá leiðin
til Englands og árið 1963
lauk hún prófi frá Royal
Academy of Dramatic Art
and Music. Lagði hún þar
bæði stund á leiklist og lát-
bragðsleik og einnig lítils-
háttar á leikstjórn. Blaða-
maður Tímans hitti hana
að máli fyrir skemmstu, en
hún býr nú hjá systur sinni í
Reykjavík.
Eftir að ég lauk námi i Lundún-
um var ég af og til með leikflokk-
um, sem ferðuðust um og sýndu
bæði enskum og skozkum, en
fastréð mig hvergi. Ég kynntist
fljótlega mörgu áhugafólki um
leiklist, sem oft á tiðum höfðu
ekki tima eða ástæður til að sinna
þessu áhugamáli sinu, eins og
hugur þess stóð til, eða fullnuma
sig i greininni. Ég veitti þvi lika
athygli að margir atvinnuleikar-
ar töldu sig yfir það hafna að
vinna með sliku fólki. Þessu var
öfugt farið með mig, mér finnst
mjög gaman að vinna með fólki,
sem hefur listina i sér, ef svo má
segja, fólki, sem hefur virkilega
hæfileika til að bera, þótt það hafi
ekki hlotið skólun i listinni. Þetta
verður svo til þess að ég stofna 50
manna leikflokk árið 1968 og hef
starfrækt hann siðan. Leik-
flokkurinn heitir The Masquerad-
ers Company, á iselnzku gæti
hann heitið Grimurnar.
—Ertu þá að mestu með ólært
áhugafólk, eða hefur þú kennt
þeim sjálf?
— Ég hef kennt'þeim sjálf, það
sem þau hafa lært. —
Hvers konar verk takið þið
aðallega til sýningar?
—• Við höfum tekið nokkur
stærri verk til sýninga t.d. „They
don’t grow in Trees” og „Wait
until dark”, en það held ég að sé
bezta sýning á minum vegum.
Þegar við erum ekki með stærri
verk höfum við á boðstólum það
sem við köllum á ensku „A
variety show”, það er ýmiskonar
blandað efni, látbragðslist, ball-
ett, skozkir dansar og söngvar og
popptónlist —
í leikskrám, sem Rannveig
sýnir mér, sé ég að hún hefur sjálf
samið töluvert af efni sýninganna
og auk þess að stjórna uppsetn-
ingum leikur hún gjarna sjálf og
oft mörg hlutverk i sama verkinu.
— Þetta, sem ég sem, eru þætt-
ir, sem byggjast á látbragðslist,
óg er vist eini starfandi leikarinn i
Skotlandi, sem er sérhæfður i
þeirri tegund leiklistar. Þessa
þætti vinn ég þannig.aðéghlusta á
tónlist og fæ hugmyndir minar i
gegnum hana. Ég reyni aö skynja
einhverja sögu út úr tónlistinni og
kem henni á framfæri i formi lát-
bragðsleiks. Þegar þættirnir eru
svo sýndir læt ég tónlistina
hljóma á bak við, reyni að láta
leikinn og tónlistina mynda eina
heild. Látbragðsleikur er mjög
erfið listgrein, og það þarf að
gera hlutina mjög nákvæmlega,
svo að tilætluð áhrif náist.
Rannveig sýnir mér ýmis
plögg, leikskrár og myndir frá
sýningum hennar. Ég rekst þar á
blaðaúrklippur, þar sem fjallað
er um fyrstu sýningu flokksins.
Dómarnir eru mjög lofsamlegir,
ekki hvað sizt þar sem fjallað er
um hlut Rannveigar. „Án efa er
Rannveig Sigurson máttarstoð
leikflokksins. Auk þess að stjórna
sýningunni og semja suma
þættina leikur hún sjálf og bregð-
ur sér i hin ýmsu gerfi jafn auð-
veldlega og að skipta um kápu”,
segir i einni umsögninni, og aðrar
eru á lika lund.
— „Skotar eru góðir áhorfendur
og áhugi á leikhúsunum er mik-
ill”, segir Rannveig. „Ég held að
fólk sé að vera leitt á að hlusta á
útvarp eða horfa á sjónvarp og
aðsóknin að leikhúsunum vex að
sama skapi. Skotar eru lika lifs-
glatt fólk og hafa mjög gaman af
að lyfta sér upp og skemmta sér.
— Hvað er nú framundan hjá
þér?
— Ég fer utan eftir áramótin,
þvi að við förum að æfa undir
nýja sýningu. Siðan þurfum við
að æfa fyrir Edinborgarhátiðina,
sem verður haldin i ágúst og
september, en þar kemur
flokkurinn okkar fram. Siðan er
óráðið hvað ég tek mér fyrir
hendur. Ég er nú búin að vera bú-
sett erlendis i tuttugu ár og vildi
Illuti leikflokksins The Masqueraders
gjarna komast heim, ef mér byð-
ist starf tengt leiklistinni, sem ég
gæti fellt mig við.
— Það er ein spurning að lok-
um. Okkur íslendingum dettur
gjarna fyrst i hug, þegar talað er
um svona starfsemi: hvernig fer
það að bera sig fjárhagslega?
— Það er allt of langt mál aö
fara að útskýra það, fjármál eru
svo flókin.
Að endingu skal þess getið, að
Royal Academy of Dramatic Art
and Music sæmdi Rannveigu
æðsta heiðursmerki sinu, þegar
hún lauk þar leiklistarnámi sinu.
,,Fámennið er ykkar mesta lán
XBSS585Öð&XK
f I
— Spjallað við enskan stúdent, sem hér dvelst við íslenzkunám
t vetur dvelst hér við islenzku-
nám enskur piltur, Paul Turner
að nafni. Við héldum á hans fund
fyrir nokkrum dögum i þvi skyni
að fræðast iitið eitt af honum um
orsakir þær, sem að baki liggja
verunni hér á landi, fyrra nám
hans i Englandi og siðast en ekki
siztkynni hans af landi og þjóð og
samanburð hans á þeim við það,
sem hann áður þekkti.
Páll hinn enski er ósköp venju-
legur i ytra útliti, meðalmaður á
hæð, skolhærður og sker sig á
engan hátt frá tslendingum, utan
hvað hann virðist til muna bros-
mildari og hressilegri i viðmóti en
það fólk, sem við cigum að
kynnast dags daglega. Manni
virðist nefnilega oft, að islenzkt
æskufólk taki sjálft sig svo alvar-
lcga, að það megi ekki láta sjást á
sér gleðibragð. Það sé sem sagt
alveg að kikna undan hinni þungu
byrði , sem þvi sé á herðar iögð af
vondum stjórnvöldum og öðrum.
Til að vinna sig I álit hjá hinum
ráðsettuitekur það því þann kost-
inn að ganga um með jarðar-
fararsvip.
Er fundum okkar enska-Páls
lýstur saman, veröur mér, alvar-
lega hugsandi tslendingi, fyrst
fyrir að spyrja um ætt hans og
uppruna, en er ekki tekst að koma
honum.i ætt við nokkurn þann, er
ég kannast við, sný ég blaöinu við
og spyr um hvaðan frá hann sé,
eins og siður er hér, þegar gest
ber að garði.
— Ég er fæddur og uppalinn i
London, i austurbænum þar, en
það er aðaliönaöarhverfið i borg-
inni.
— Þar sem Islendingar fylgjast
af áhuga með ensku knattspyrn-
unni,væri ekki úr vegi að spyrja
þig um uppáhaldsliðið þitt.
— Auðvitað West Ham, hvernig á
annað að vera á þessu svæði. Það
er eitt alskemmtilegasta liðið og
dregur til sin fjölda áhorfenda,
enda leikur það knattspyrnu með
sóknarleik fyrir augum, en
pakkar ekki 8-9 mönnum i vörn
eins og sumra liöa er siður, ef þau
leika við sér sterkari lið að dómi
forráðamanna. Þetta hefur líka
borið þann árangur, að liðið var
lengi vel í haust markhæst i
fyrstu deildinni. f
Finnandi til vanmáttar míns
gagnvart þessum enska knatt-
spyrnujöfri, ákveð ég að breyta
um umræöuefni og sný mér að
skólavist hans erlendis.
— Ég lauk námi frá menntaskóla
i London vorið 1971, segir Páll, en
þar lagði ég mesta áherzlu á mál-
fræöi, tungumál og enskar bók-
menntir. Ég hef geysigaman af
alls lags málvisindum, einkum
upprunafræði. Þvi ákvað ég að
setjast i University College i
London i fyrrahaust og læra þar
islenzku og norsku hjá Peter
Foote. Þá komst ég i kynni við
fornbókmenntirnar ykkar, en
áöur hafði ég ekkert af islenzkum
bókmenntum lesið. Mér er nefni-
lega illa við að lesa bækur i þýð-
ingum.
Nú, svo ákvað ég að_ koma
hingað til frekara náms i
islenzku, bæði sökum áhuga á
málinu sjálfu, og eins er nauðsyn-
legt að kunna töluvert i þvi til að
átta sig á germönskum málum,
en islenzkan er lang likust þvi,
sem talið er.að germanska frum-
málið hafi verið, af þeim öllum.
Það getur verið algjör nauðsyn að
kunna islenzku til að átta sig á
uppruna og skyldleika orða i
ensku.
Til námsins hér hef ég fengið
styrk frá islenzka ríkinu, sem
nemur 25.000 krónum fyrir 3
mánuði. Ég er ákaflega þakk-
látur fyrir hann, en hann hrekkur
um það bil fyrir mat og húsnæði á
Nýja-Garði, þar sem ég bý.
Stúlkurnar
en kaldar
stórfallegar,
i viðmóti
Þá er komið að hinni sigildu
spurningu, hvernig likar þér hér?
— Alveg einstaklega vel. Einkum
lifið á Garði-, það er svo frjálst og
óbundið, eins og raunar allt lif hér
á landi virðist vera. Þar er þaö
einkum fámennið, sem kemur
til. Það er ykkar mesta lán að
vera svo fá, sem raun ber vitni,
þið hafið fyrir bragöið aðstöðu til
að vera þið sjálf, frjálsir einstakl-
ingar, en ekki múgsálir, þrúgaöar
af fjöldanum.
1 London finnur maður oft til
innilokunarkenndar, sökum þess
gifurlega fólksfjölda, sem þar er
að finna, og bygginganna, sem
þrengja að manni á alla vegu.
Sliku er ekki til að dreifa hér. Til
þess er Reykjavik enn ekki orðin
nógu stér i sniðum, þvi betur.
— Hvað viltu segja um tslend-
inga?
— Ég hef ekkert nema gott af
þeim ab segja. Þeir eru nokkuð
seinteknir, en ágætir i reynd.
Manni virðist þeir nokkuð kulda
legir i upphafi, en það fer af við
nánari kynni.
Stúlkurnar hér eru stórfalleg-
ar, en þvi miður er viðmót þeirra
margra heldur kalt. Það kemur
t.d. vel fram á danshúsum, að þú
getur boðið upp hverri dömunni
af annarri og fengið afsvar hjá
þeim öllum. E.t.v. á þetta bara
við um útlendinga og að þjóð-
erniskenndin sé svona sterk. En
ég held þó fremur, að þetta stafi
af þvi, að stúlkurnar áliti, að hver
sá,sem býöur þeim i dans, stefni
að þvi að enda með þær i bólinu.
Þvi er sökin e.t.v. fremur ykkar
karlmannanna megin i þessum
efnum.
Takmarkið virðist að
verða fullur
Ekki er laust viö, að ég finni til
sneypu undir þessu tali, ef það
skyldi rétt reynast, að það ætt.i við
alla islenzka karlmenn. Þvi
ákveð ég að leiða talið frá sliku,
en vik mér að öðrum þætti, eigi
alls óskyldum, sem sé vin-
„menningu” lslendinga.
— Ég er ekki viss um, að tslend-
ingar drekki svo mikið, segir
Turner. Hins vegar drekka þeir
nokkuð öðru visi en aðrar þjóðir,
eða mestmegnis aðeins tvö kvöld,
i stað þess að vera að sulla með
þetta upp á hvern dag. Aftur á
móti virðist það takmark þeirra
með drykkju sinni að verða fullir -
þvi miður- og það er þetta atriði,
sem svo mjög setur svip sinn á
lifið hér um helgar.
— Þetta gæti meðfram stafað af
þvi, að tslendingar eru greinilega
duglegir og vinna mjög mikið.
Það hlýtur á hinn bóginn að ala af
sér streitu, sem svo brýzt út i
helgarfylliriunum, þegar menn
reyna að varpa áhyggjunum frá
sér með drykkju og gleymsku.
„Algjörlega á ykkar
bandi i landhelgisdeil-
unni”
Á þessum timum, þegar Land-
helgismálið hefur algeran for-
gang, eins og lýðum hefur verið
gert ljóst, verður ekki skilizt svo
við samræður við Englending, að
maður ekki grennslist eftir áliti
hans á þvi máli og afstöðu til
þess.
— Eins og áður kom fram, er ég
frá London, og þar er ekki mikið
um þessi mál hugsaö, og þau eru
litt i sviðsljósinu, þar eð þau
skipta hagsmuni Londonbúa litlu
eða engu. Aftur á móti verður þvi
ekki i móti mælt, að fyrir út-
gerðarbæina i Norður-Englandi
og Skotlandi er þarna um töluvert
að tefla, en það eru aðeins hags-
munir örlítils brots þjóðarinnar,
en ekki hennar allrar, sem i veði
eru.
Aðra sögu er að segja hér-
leqdis. Fiskveiðar eruómótmælan
lega ykkar lifibrauö, og þvi er
eðlilegt, að þið viljið einir njóta
fiskimiðanna við landið, sem eru
ykkar langstærsta auðlind.
Sjónarmið ykkar um verndun og
skynsamlega nýtingu fiskimiö-
anna hljóta þvi allir þeir, sem
hugsa rökrétt um málin, að virða.
Svo sem sjá má er Paul Turner ekki meö neina fýlu út í lifiö og til-
veruna. Timamynd: Róbert.
Ég fyrir mittleyti er algjörlega
sammála ykkar málstað, og hið
sama held ég.að megi segja um
þorra Englendinga semum málin
hugsa á annað borð. Þegar lifs-
hagsmunir einnar þjóðar rekast á
við hagsmuni brots annarrar,
held ég, að ekki sé hægt að taka
aðra afstöðu, auk þess sem
stöðva verður rányrkju i hverri
mynd, sem hún birtist.
Hér fellum við Páll taliö, enda
er hann á förum heim til sin, þar
sem hann mun dveljast yfir jólin,
en i janúar biða hans próf við
háskólann sinn þar, þvi að vera
hans hér er aðeins þáttur i námi
hans bar.
Þakklátur fyrir spjallið kveð
ég þennan lifsglaða Englending
og óska honum góðrar ferðar og
heimkomu.
Enn höldum við áfram með
upptalningu jólafrimerkjanna;
það skal tekið fram vegna fyrir-
spurna, að blokkir eru aðeins
taldar sem eitt merki i upptaln-
ingu.
Gibraltar. 1967 (2) 1968 (2) 1969
(3) 1970 (1) 1971 (2)
Gilbert & Ellis eyjar 1969 (2) 1970
(3) 1971 (3)
Bretland.1966 (2) 1967 (3) 1968 (3)
1969 (3) 1970 (3) 1971 (3)
Guernsey. 1970 (4) 1971 (4)
Grikkland.1970 (3)
Grenada.1968 (4) 1969 (4) 1970 (8)
1971 (5)
Guyana. 1967 (2) 1968 (4) 1969 (4)
1970 (4) 1971 (4)
llaiti. 1954 (2) 1970 (2) 1971 (3)
Ungverjaland. 1941 (1) 1943 (3)
1970 (2)
irland. 1960 (2) 1971 (2)
ítalia. 1970 (2) 1971 (2)
Jórdania. 1970 (4)
Júgósiavia. 1966 (6)
Kórea. 1957 (3) 1958 (3) 1960 (3)
1965 (2) 1967 (2) 1968 (2) 1969 (2)
1970 (1)
Liberia. 1970 (7)
Liechtenstein. 1965 (3) 1970 (1)
1971 (1)
Malawi. 1964 (4) 1966 (4) 1967 (4)
1968 (4) 1969 (5) 1970 (5) 1971 (4)
Mali. 1970 (3)
Malta. 1964 (3) 1965 (3) 1966 (3)
1967 (3) 1968 (3) 1969 (3) 1970 (3)
1971 (3)
Mónakó. 1971 (3)
Monserrat. 1968 (4) 1969 (3) 1970
(4) 1971 (4)
Brezku Nýju Hebrides eyjar. 1970
(2) 1971 (2)
Frönsku Nýju Hebrides eyjar.
1970 (2) 1971 (2)
Nýja Sjáland. 1960 (1) 1961 (1)
1962 (1) 1963 (1) 1964 (1) 1965 (1)
1966 (1) 1967 (1) 1968 (1)
1969 (2) 1970 (3) 1971 (3)
Nikaragúa. 1970 (10)
Niger. 1971 (3)
Niue. 1967 (1) 1969 (1) 1970 (1)
1971 (1)
Norfolk eyjar. 1960 (1) 1961 (1)
1962 (1) 1963 (1) 1964 '( 1) 1965 (1)
1966 (1) 1967 (1) 1968 (1) 1969 (1)
1970 (1) 1971 (1)
Perú. 1965 (3) 1969 (3) 1970 (2)
1971 (3)
Filippseyjar. 1967 (2) 1968 (3)
Kússland. 1960 (1)
Rúanda. 1965 (6) 1968 (1) 1969 (1)
1970 (1) 1971 (1)
St. Kitts-Nevis-Anguilla. 1968 (4)
1969 (4) 1970 (3)
St. Lucia. 1967 (2) 1968 (4) 1969 (4)
1970 (4) 1971 (4)
St. Pierre & Miquelon. 1941 (30)
1962 (1)
St. Vincent. 1970 (4) 1971 (4)
Samóa. 1968 (4) 1969 (4) 1970 (4)
1971 (2)
San Marino. 1968 (3)
Seychelles. 1971 (3)
Singapore. 1971 (1)
Spánn. 1955 (1) 1956 (1) 1959 (1)
1960 (3) 1961 (1) 1962 (4) 1963 (1)
1964 (1) 1965 (1) 1966 (1) 1967 (1)
1968 (1) 1969 (2) 1970 (1) 1971 (2)
Súdan. 1964 (3)
Súrinam. 1966 (1)
Sviþjóð.1971 (7)
Sviss. 1945 (12) 1958 (1) 1965 (1)
1966 (4) 1967 (3)
Togo. 1968 (6) 1969 (1) 1970 (6)
1971 (6)
Tokelau eyjar. 1969 (1) 1970 (1)
Trinidad & Tobago. 1970 (5) 1971
(4)
Turks & Caicos eyjar. 1969 (4)
1971 (6)
Bandarikin. 1962 (1) 1963 (1) 1964
(3) 1965 (1) 1966 (1) 1967 (1) 1968
(1) 1969 (1) 1970 (5) 1971 (2)
Efri Volta. 1970 (2)
Páfagarður. 1959 (3) 1960 (3) 1961
(3) 1962 (3) 1963 (3) 1964 (3) 1965
(3) 1966 (3) 1967 (4) 1968 (3)
Venezúeia. 1965 (1) 1966 (1) 1967
(1) 1968 (1) 1969 (2) 1970 (1) 1971
(2)
Þá er þessari upptalningu lokið
samkvæmt áreiðanlegum heims-
verðlistum yfir frimerki, og er
þetta ekki svo litið safn, þegar á
allt er litið. nú
getur hver og einn tekið sig til og
farið að gæta að, hvað hann á af
jólafrimerkjum (ekki jólamerkj-
um ),og reynt að fylla upp i skorö-
in, sem á vantar.
Sigurður H. Þorsteinsson