Tíminn - 28.12.1972, Qupperneq 16
„Hræðilegt að sjá borgina”
- rætt við Sigríði Loftsdóttur, sem bjó í Managua
SB—Rcykjavik
islendingarnir, sem störfuðu á
vegum SÞ i IVIanagua i Nicara-
gua, sátu i gær fund i San Salva-
dor, ásamt öðrum starfsmönnum
SÞ til að ráðgast um, hvort þeir
ættu að fara aftur til Managua og
freista þess að bjarga einhverju
af eigum sinum þar. Meðan fund-
urinn stóð yfir, ræddi Timinn við
Sigriði Loftsdóttur, eiginkonu
Einars Sveinssonar, en þau hafa
vcrið búsett i Managua i átta
mánuði, en dveljast nú i San
Salvador i EI Salvador eins og
hinir Islendingarnir.
— Við Einar höfðum setið úti og
spjallað saman um kvöldið, en
vorum að búa okkur undir að fara
i háttinn, þegar fyrri kippurinn
kom, sagði Sigriður. — Það var
um kl. hálf eitt á Þorláksmessu-
kvöld. Einar var farinn inn til að
slökkva á plötuspilaranum, en ég
var að tina saman glös og þess
háttar. Ég datt á grasið, en Einar
varö að styðja sig við veggi og
dyrastafi til að komast út. Raf-
magnið fór og allt var koldimmt
svo ekki sáust handa skil. Ég
hrópaði til hans, að barnið væri
inni, dóttir okkar, sem er þriggja
ára. Einar sótti hana og við fórum
Hjálpar-
beiðni
Um hátiðarnar barst hing-
að til lands hjálparbeiðni
vegna hörmunganna i Mana-
qua i Nicaragua.
A jóladag sendi Kauði
kross islands fjárhæð til
hjálparstarfsins og sama
gerði lljálparstofnun kirkj-
unnar.
Iljálparstofnun kirkjunnar
og Itauði kross islands hafa
ákvcðið að efna til skyndi-
fjársöfnunar til styrktar
fórnarlömbum jarðskjálft-
anna. Söfnunin mun standa
til þrettándakvölds, <i. janú-
ar, og verða þegar gerðar
ráðstafanir til scndingar á
innkoinnu fé, er söfnuninni
lýkur.
Eramlögum iná koma til
þcssara aðila.sem hér segir:
Kauði kross islands tckur
við framlögum I skrifstof-
unni að öldugötu 4 og á gfró-
reikning IIOOIIO. Hjálparstofn-
un kirkjunnar tekur á móti
framlögum i Biskupsstofu,
hjá sóknarprestuin og á giró-
reikning 20001.
Sem kunnugt er, má greiða
inn á giróreikninga í öllum
bönkum, sparisjóðum og
próstafgreiðslum landsins.
Þvi fé, sem Itauða krossi
islands berst, verður ráð-
stafað i samráði við Alþjóða-
samband Kauða kross félaga
og þvi fé, sem Hjálparstofn-
un kirkjunnar berst, verður
ráðstafað í samráði við Al-
kirkjuráðið í Genf.
öll út á tún þar serri engin tré voru
i grenndinni, ef þau kynnu að
falla. Þegar við vorum komin
þangað og sezt fyrir, kom annar
kippur. Siðan fór ég inn til að
sækja peysur og teppi, þvi við sá-
um fram á að vera þarna alla
nóttina og undarlega kalt var orð-
ið úti, mér fannst alveg einkenni-
legt veðrið eftir þessi ósköp.
Við höfðum miklar áhyggjur af
hinum Islendingunum og reynd-
um að hringja annað slagið, en
simasambandið var rofnað. Strax
kl. 7 um morguninn fórum við til
Jóns Jónssonar og fjöl-
skyldu hans, Guðrúnar og fjög-
urra barna. Þar var allt i lagi, en
Jón var farinn til Guðmundar
Sigvaldasonar, en þar hafði húsið
hrunið. Svo vel vildi til,að Guð-
mundur og konan voru ekki hátt-
uð, þvi húsveggurinn hrundi ofan
i rúm þeirra.
Siðan var ákveðið, að allir
skyldu koma út til okkar Einars.
Við búum tólf og hálfan kilómetra
frá sjálfri borginni. Allir tóku
með sér jólamatinn og siðan var
tekið til við að elda undir beru
lofti. Alla jólanóttina sátum við
svo úti. Ég fékk garðyrkjumann
til að klippa skjól út úr háu gras-
inu i móunum þarna og þar héld-
um við til. Um nóttina komu nýir
kippir annað slagið.
Um morguninn fóru þeir Einar
og Guðmundur út á flugvöll til að
reyna að fá far til San Salvador
fyrir okkur. Við fengum tiu sið-
ustu sætin i vélinni, en Einar og
Guðmundur komu á jeppa yfir á
eftir.
— Eru jarðskjálftar algengir
þarna?
— Við höfum ekki verið hérna
nema i átta mánuði, en aldrei
fundið jaröskjálfta fyrr en núna i
desember. Þeir hafa fundizt öðru
hvoru allan mánuðinn, en aðeins
veikir, maður tók varla eftir
þeim, fyrr en þessi ósköp komu.
— Hvernig var um að litast i
borginni?
— Við skruppum þangað um
morguninn og þar var alveg
hræðilegt að sjá það. Engin leið
var að þekkja göturnar, sem
maður var svo vanur að aka um.
Hvergi stóð steinn yfir steini i
miðborginni, en ástandið var
skárra eftir þvi sem lengra dró
út á við.
Maður furðaði sig á þvi, hvað
fólkið var rólegt, það hefur senni-
lega ekki verið búið að átta sig á
hvað hafði gerzt.
— Hvað hefur verið gert i borg-
inni siðan?
— Það er verið að sprengja og
brenna það.sem eftir er af henni,
og koma fólkinu burtu. Heyrzt
hefur, að skæð barnaveiki sé farin
að geisa. Hún var að ganga
þarna, en var i rénuin-, en mun nú
hafa blossað upp aftur.og börnin
hrynja niður, sérstaklega þau
yngstu.
— Er nokkuð vitað, hvort
íslendingarnir koma heim, eða
lara eitthvert annað?
— Nei, ekki enn. Þarna störfuðu
27 fjölskyldur á vegum SÞ við
ýmislegt,og það getur tekið tima
að ákveða, hvað verður næst. Við
höfum það gott hérna i San Salva-
dor, vantar bara eigur okkar, og
það er ekki útséð um,að við fáum
eitthvað af þeim hingað. Allir biðja
að heilsa heim og óska gleðilegra
jóla. Hér gleymdust jólin alveg,
sagði Sigriður að endingu.
Ekki er enn ljóst, hversu marg-
ir hafa týnt lifi i hamförunum, en
talið er.að þeir geti skipt tugum
þúsunda.
Möðruvallakirkja
talin ónýt
SB—Reykjavik.
I óveðrinu fyrir jólin stór-
skemmdist kirkjan að Mörðu-
völlum i Eyjafirði, svo að hún er
jafnvel talin ónýt. Lyftist kirkjan
upp og færðist til á grunninum,
um það bil hálfa breidd sina,
þannig að tröppurnar, sem áður
voru fyrir miðju, eru nú við
suðurhornið. Festingar slitnuðu,
nema ein, sem tók með sér undir-
. stöðuna, sem hún er múruð i.
Altaristafla kirkjunnar, sem er
ævagömul og úr alabasti,
skemmdist ekkert, né heldur
klukknaportið, sem stendur
framan við kirkjuna,og er einnig
mjög merkur forngripur.
Margrét Friðbjarnardóttir (t.v.) og Sveinbjörg Eyvindardóttir með jólabörnin sin. (Timamynd Gunnar)
Tvö jólabörn á fæðingardeildinni
SB—Kcykjavik Uandspitalans eru tveir drengir,
Jólabörnin á Fæðingardeild scm fæddust meö rúmlcga
,,Jólagjöfum" frá Nixon rignir:
20 þúsund tonn af
klukkustundar millibili á að-
fangadag. Timinn brá sér i heim-
sókn og fékk að mynda jólabörnin
i fangi mæðra sinna. Fyrri dreng-
urinn, sonur Margrétar Erlu
Friðbjarnardóttur og Þorkels
Júliussonar, og þriðja barn
þeirra, fæddist kl. 4.20 og vó 2840
grömm. Sagðist Margrét hafa átt
von á jólabarni.
sprengjum á viku
NTB—Saigon
Herstjórn Bandarikjamanna i
Saigon upplýsti i gær, að flug-
vellir, járnbrautarstöðvar, orku-
ver og birgðastöðvar f N-VIetnam
heföi verið eyðilagt á einni viku,
fyrir tilstilli 1100 flugvéla. Um 20
þús. lestum af sprengjum hefur
verið varpað yfir allt N-Vietnam
siðan 18. desember.
1 siðari heimsstyrjöldinni var
varpað um 5 milljónum lesta af
sprengjum Bandamanna á
Evrópu og Japan til samans.
Talan er nú orðin hærri i Vietnam
i þaö heila. Talsmaður her-
stjórnarinnar sagði, að loft-
árásunum yrði haldið áfram. Tólf
flugvélar af gerðinni B-52 hafa
verið skotnar niður og sex af
öðrum gerðum.
Heimildir hersins i Saigon telja
þetta mestu sóknrsem gerð hefur
verið i lofti gegn N-Vietnam.og
hafi nú allt verið eyðilagt, sem N-
Vietnamar kynnu að hafa byggt
upp hernaðarlega, meðan hlé var
á loftárásum norðan 20. breiddar-
baugsins.
Sonur Sveinbjargar Eyvindar-
dóttur og Sturlu Rögnvaldssonar
er fyrsta barn þeirra og fæddist
hann kl. 5.40. Hann vó 3650
grömm. Sveinbjörg sagði, að
hann hefði átt að fæðast á að-
fangadag, en hún hefði samt vilj-
að, að hann hefði beðið svolitið
lengur með að koma i heiminn.
Timinn óskar jólabörnunum og
foreldrum þeirra til hamingju.
Munið jólatrésskemmtun Framsóknarfélaganna á
Hótel Sögu á
laugardaginn
- Sjá nánar
á bls. 10
----------;----------------\
Fimmtudagur
28. desember 1972.
Trumanlátinn
SB—Reykjavik
Ilarry S. Truman, fyrrum for-
seti Bandarikjanna, sá 33. i
rööinni, lézt i Kansas City á
annan jóladag, 88 ára að aídri.
Hann hafði legið þrjár vikur á
sjúkrahúsi. Hann verður jarð-
settur i heimabæ sfnum,
Indipendence f Missouri, þar sem
hann hefur átt heima sfðan hann
flutti úr Hvita húsinu.
Truman varð forseti Banda-
rikjanna 1945, er Franklin D.
Roosevelt féll frá, en Truman var
varaforseti hans. Hann var for-
seti til 1953, er Eisenhower var
kjörinn.
Meðal þess, sem Trumans
verður sérstaklega minnzt fyrir,
er, að hann lét varpa kjarnorku-
sprengjum á Hiroshima og
Nagasaki, einu kjarnorku-
sprengjunum, sem notaðar hafa
verið i styrjöld; hann kom á fót
„Marshall-aðstoðinni” svo-
nefndu, sem til þess var að að-
stoða við uppbyggingu Evrópu
eftir striðið. Hann var einnig
maðurinn, sem sendi banda-
riskan her til Kóreu árið 1950, i
samráði við SÞ.
I dag er sendiráð Banda-
rikjanna á íslandi og Menningar-
stofnunin lokuð til mánningar um
Truman.Minningabók mun liggja
frammi i sendiráðinu frá kl. 9.30
til 12.30 Og 2.30 til 5.30 á föstu-
daginn fyrir þá, sem vilja votta
virðingu sina.
Pearson
dauðvona
NTB—Ottawa
Lester Pearson, fyrrum for-
sætisráðherra Kanada, e:r mjög
langt leiddur af krabbameini og
er nú búinn að missa meðvitund.
Hann er 75 ára.
Pearson dvelst á heimili sinu,
skammt frá Ottawa.og fær
læknismeðferð þar. Krabba-
meinið hefur nú náð til lifrar-
innar ogsegja læknar, að Pearson
eigi ekki langt eftir. Fram til
þessa hefur þvi verið haldið
leyndu, að Pearson gengi með
krabbamein. Hann fékk friðar-
verðlaun Nóbels árið 1957.