Fréttablaðið - 18.07.2004, Blaðsíða 19
17MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
Kennarar athugið
Tálknafjörður er toppurinn
Við grunnskólann á Tálknafirði vantar kenn-
ara til starfa. Mögulegar kennslugreinar,
stærðfræði, íslenska og raungreinar á ung-
lingastigi sem og kennsla í upplýsinga og
tæknimennt. Að auki umsjón með fjarnáms-
veri fyrir nemendur í framhaldsnámi.
Grunnskólinn á Tálknafirði er í samstarfi við
Grunnskóla Vesturbyggðar um verkefni sem
hefur hlotið nafnið „Dreifmennt í Vestur Barð-
astrandarsýslu.“ Verkefnið byggir á notkun
nýjustu tölvu- og fjarskiptatækni til að tengja
skólana t.d. þannig að sami kennari kennir í
þeim öllum á sama tíma m.a. um fjarfunda-
búnað. Einnig hafa skólarnir sl. tvö ár tekið
þátt í Olweusarverkefni Menntamálaráðun-
eytisins gegn einelti. Öll aðstaða í skólanum
er með því besta sem gerist. Kennarar fá far-
tölvur til afnota vegna starfsins, auk þess sem
nemendur hafa aðgang að fartölvuveri.
Vinnuaðstaða kennara er til fyrirmyndar. Í
húsnæði skólans er einnig starfræktur Tón-
listarskóli.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí.
Allar frekari upplýsingar gefur skólastjóri,
Ingólfur Kjartansson
Símar: 456 2660 og 897 6872
Netföng: ingolfur@talknafjordur.is,
grunnskolinn@talknafjordur.is
Veffang: www.talknafjordur.is
Æskulýðsfull trúi
S E L T J A R N A R N E S B Æ R
A
ug
l.
Þó
rh
ild
ar
2
2
0
0
.2
18
Starfsfólk óskast í
Félagsmiðstöðina Selið
á Seltjarnarnesi
Félagsmiðstöðin Selið á Seltjarnarnesi auglýsir eftir
starfsfólki í hlutastörf veturinn 2004 – 2005.
Um er að ræða störf leiðbeinenda í tómstundastarfi
fyrir börn og unglinga á aldrinum 10–16 ára.
Skilyrði er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri
og æskilegt er að þeir hafi einhverja reynslu,
þekkingu eða menntun í starfi með börnum og
unglingum. Umsóknum með upplýsingum um
menntun og fyrri störf skal skilað inn í Félags-
miðstöðina Selið v/Suðurströnd fyrir 15. ágúst n.k.
Hreppsnefnd Höfðahrepps auglýsir
eftirfarandi stöður:
Tómstunda- og íþrótta-
fulltrúa,
75% starf, sem hefði eftirfarandi hlutverk:
• Yfirumsjón með tómstunda- og íþróttamálum á
Skagaströnd.
• Umsjón með félagsmiðstöð unglinga.
• Framkvæmdastjórn ungmennafélagsins.
Um er að ræða nýtt starf og því er reiknað með að
umræddur starfsmaður hafi mikil áhrif á mótun
þess. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun
september.
Umsjónarmanns
Námsstofu,
25% starf, sem hefði eftirfarandi hlutverk:
• Umsjón og aðstoð vegna fullorðinsfræðslu og
fjarnáms í Námsstofu
• Eftirlit með aðstöðu og búnaði Námsstofunnar.
• Kynning á starfsemi Námsstofunnar.
• Umsjón tengsla við menntastofnanir.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun sept-
ember.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Hö-
fðahrepps og skulu umsóknir sendar þangað
fyrir 23. júlí nk.
Sveitarstjóri.
Sérfræðingar:
Félagsvísindi – Hagfræði
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri er öfl-
ug og sívaxandi rannsóknastofnun sem vaxið hefur
mikið á undanförnum árum. Stofnunin fæst einkum
við rannsóknir á byggðamálum í breiðum skilningi,
sveitarstjórnarmálum, atvinnumálum, samgöngu-
málum, stjórnsýslu, nýsköpunarmálum, mati á um-
hverfisáhrifum auk framkvæmdar kannana af ýmsu
tagi. Vegna fyrirsjáanlegrar aukningar á verkefnum
er því auglýst eftir tveimur sérfræðingum til rann-
sókna- og ráðgjafastarfa í fullu starfi. Nauðsynlegt er
að þeir einstaklingar sem ráðnir verða hafi reynslu
af þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum og
tali og riti dönsku, sænsku eða norsku. Þá er nauð-
synlegt að umsækjendur hafi góð tök á megindlegri
aðferðafræði og reynslu af tölfræðilegum greining-
um. Fyrst og fremst er leitað að starfskröftum með
háskólapróf í hagfræði, félagsfræði eða stjórnmála-
fræði og er meistarapróf skilyrði. Búseta og starfs-
staður viðkomandi er Akureyri, en höfuðborgar-
svæðið getur undir ákveðnum kringumstæðum
einnig komið til greina.
Launakjör eru skv. kjarasamningum Félags háskóla-
kennara á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar gefur dr. Grétar Þór Eyþórsson
forstöðumaður í síma 892 0561 eða á netfanginu
gretar@unak.is. Einnig má kynna sér stofnunina á
www.unak.is/rha.
Umsóknarfrestur er til og með 3. ágúst og skulu
umsóknir ásamt staðfestum prófvottorðum og
ferilskrá sendar til Rannsóknastofnunar Háskólans á
Akureyri, Þórunnarstræti 99, 600 Akureyri.
ATVINNA
Framtíð fjölmiðlamanna:
Þurfa að vinna við
fleiri miðla en einn
Nú er komin út skýrsla sem fjallar
um framtíð fjölmiðlamanna á
vinnumarkaðinum en danska
blaðamannafélagið er meðal þeir-
ra sem stóðu að verkefninu. Leit-
að var til um það bil hundrað
vinnuveitenda í fjölmiðlaiðn-
aðinum í Danmörku en könnun
fór síðan fram í fyrrahaust.
Rannsókn þessi bendir til þess
að eftir um tvö ár muni það ráða
úrslitum um samkeppnishæfni
blaðamanna og fjölmiðlamanna á
vinnumarkaðinum hvort þeir hafi
getu og þekkingu til að vinna við
og framleiða efni fyrir fleiri fjölmi-
ðla en einn. Þeir sem aðeins sér-
hæfa sig á einu sviði og geta ekki
framleitt og unnið efni fyrir útvarp,
sjónvarp og/eða prentmiðla,
munu líklegast hverfa úr starfi.
Í skýrslunni er einnig bent á
það að atvinnurekendum finnist
mikilvægt að menntun nýrra blaðamanna og endurmenntun
þeirra sem þegar eru á vinnumarkaðinum geri þeim kleift að
starfa við fleiri fjölmiðla en einn. ■
Sjónvarpskonan Oprah
Winfrey vinnur eingöngu
við sjónvarp og því gæti
hún verið í vondum málum
eftir um það bil tvö ár.
Arnar Snæbjörnsson er bílastæðavörður með aðsetur í ráðhúsinu.
Hann er ánægður með starfið og starfsandann.
Starfið mitt
Fólk óánægt
með sektirnar
Arnar Snæbjörnsson bílastæðavörður hefur verið í starf-
inu sínu í tæp sjö ár. Hann byrjaði sem stöðumælavörður
en er nú bílastæðavörður í ráðhúsinu.
„Það var stundum talsvert álag að vera úti við stöðu-
mælavörsluna, fólk er auðvitað aldrei ánægt með sekt-
irnar og lætur það stundum bitna á vörðunum. En við
erum bara að vinna starfið okkar,“ segir Arnar.
Nú sér Arnar um bílastæðahúsið undir ráðhúsinu og
stæðið í Vonarstræti og hefur aðsetur í ráðhúsinu. „Mér
líkar þetta vel, starfið er auðvitað frekar einhæft en á
móti kemur að hér er margt skemmtilegt fólk og góður
andi. Ég vinn alla virka daga kl. 8–18 og er á bakvöktum
þriðju hverja helgi. Bakvaktirnar felast meðal annars í að
opna fyrir fólki sem hefur orðið innlyksa með bílana sína
í bílastæðahúsum, en það gerist þó æ sjaldnar. Dagsdag-
lega hef ég umsjón með bílastæðunum, sel út laus stæði og
passa að alltaf séu laus stæði fyrir fólk sem hefur keypt
sér mánaðarkort. Ég aðstoða líka fólk ef það lendir í vand-
ræðum með sjálfsalann og þvíumlíkt.“
Arnar segist ekki fá miklar kvartanir enda séu á-
kveðnar vinnureglur í gangi.
„Við bjóðum fólki einfaldlega að fylla út kvörtunar-
eyðublöð og sendum þau svo til Bílastæðasjóðs sem
skoðar málið.“
Hann segist ekki kvarta yfir kaupinu, en yfirvinnan sé
auðvitað það sem heldur kaupinu uppi. „Svo eru ákveðin
fríðindi, við fáum föt, afslátt af matarmiðum í ráðhúsinu
og frítt í strætó.“
En bílastæði?
„Jú, við höfum bílastæði, en þurfum að víkja ef allt er
orðið fullt,“ segir Arnar, og tekur undir það að bílastæðin
í miðbænum séu ekki nógu mörg. ■
18-19 (02-03) Alt Atvinna 17.7.2004 19:54 Page 3