Fréttablaðið - 23.07.2004, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 23.07.2004, Blaðsíða 24
FÖSTUDAGUR 23. júlí 2004 Jour de fête! Frönsk vínstemmning dagana 14. júlí til 7. ágúst ÍSLEN SKA A U G LÝSIN G A STO FA N EH F./SIA .IS A V R 25316 07/2004 NÝTT frá Jóa Fel basil & hvitlauks sósa rósapipar sósa dijon hunangs sósa Frægir franskir réttir Frönsk lauksúpa Var oft elduð í veit- ingahúsum Parísar eldsnemma á morgnana svo verkafólk gæti fengið sér eitt- hvað nærandi áður en erfiði dagsins hæfist og oft komust þeir sem enn voru á götunum eftir svall næturinnar í súpupottana áður en þeir gengu til náða. Frönsk súkkulaði- kaka Þekkt fyrir að vera þétt, þung og blaut enda inniheldur hún mikið af súkkulaði, smjöri og eggjum en minna af hveiti og ekkert lyftiduft. Borðuð með þeyttum rjóma. Napoleónshattar Smákökur sem brotið er upp á á þrjá vegu yfir fyllingu þannig að þær myndi þríhyrn- inga. Nafnið er dregið af höttunum sem franskir her- menn notuðu á tímum Napóleons keisara. Crêpes Þunnar pönnukökur sem bornar eru fram samanbrotnar í fernt með fyllingu inni í. Var fyrst eingöngu eftirréttur og þá borinn fram í þunnri kara- mellusósu, fylltur með appelsínum eða mandarínum og appelsínusafa eða líkjör hellt yfir. Sá rétt- ur heitir Crêpes Suzette. Á seinni árum hefur fjölbreytnin aukist í fyllingum og crêpes orðið saðsamur smáréttur. Baguette Orðið þýðir lítill stafur eða sproti og er heiti á mjóum og löngum hveitibrauðum sem Frakkar hafa bakað í gegnum aldirnar en eru nú þekkt um all- an hinn vestræna heim. Kassavínið vinsæla Terra Vecchia frá Korsíku hefur fengið andlits- lyftingu eins og sjá má á frönskum dögum í Vínbúðum en þeir standa til 7. ágúst. Eyjan fagra Korsíka er lítt þekkt vínsvæði hérlendis þótt vín það- an séu þekkt á alþjóðavettvangi. Vínrækt á eyjunni hófst löngu áður en frægasti sonur hennar, Napoleón Bonaparte, fæddist eða á tímum Róm- verja. Vínin á Korsíku, eiga líkt og tungumál eyjaskeggja, ýmislegt sameig- inlegt með Ítalíu og Terra Vecchia er gott dæmi þess. Þrúgurnar eru annars vegar „alþjóðlegar“ eins og merlot, cabernet sauvignon, grenache og syrah, og hins vegar upprunnar frá eyjunni sbr. niellucio sem er nátengd sangiovese. Vínið verður nokkuð þétt og öflugt, ávaxta- ríkt og með ágætis fyllingu. Það er sólríkt eins og eyjan sjálf án þess að vera sætt, er þægilega mjúkt og endar á krydduðum nót- um. Terra Vecchia hentar því mjög vel með öllum léttari máltíðum, mildum eða létt- krydduðum ostum – og að sjálfsögðu með grillmat á sólardegi. Kynningarverð á frönskum dögum 2.930 kr. Terra Vecchia Nýtt útlit og lækkað verð Franskir dagar Dopff og Irion heita tvær franskar fjölskyldur stunduðu fyrst víngerð á 17. öld í hinu þekkta víngerðarsvæði Alsace í Frakk- landi. Fjölskyldurnar sameinuðu víngerðir sínar og er fyrirtæk- ið í dag með þekktustu vínframleiðendum í Alsace. Það hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir vín sín á alþjóð- legum sýningum meðal annars San Francisco Wine Competit- ion, London International Wine Challenge og London International Wine & Spirit Competition. Eitt bestu vína víngerðarinnar er Dopff & Irion Gewurzstraminer sem er einstaklega fágað og fjölbreytt mat- arvín. Vínið hefur sterkan angan blóma, ilmríkt með anískeim. Vínið er í góðu jafnvægi, dálítið þurrt og kryddað. Skemmtilegt og öðruvísi vín sem skilur eftir sig langt og mikið eftirbragð. Kynningarverð á frönskum dögum 1.390 kr. Gewurztraminer Fágað og fjölbreytt Franskir dagar 22-23 (02-03) Allt matur 22.7.2004 18:11 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.