Fréttablaðið - 23.07.2004, Blaðsíða 30
Á dögunum var Sjósundfélag
Íslands stofnað. Meginmarkmið
félagsins er að glæða áhuga al-
mennings á sjósundi við Íslands-
strendur, vekja athygli hans á
gildi þess fyrir líkama og sál og
skapa skilyrði og aðstæður fyrir
áhugasama til að iðka sjósund sér
til ánægju og yndisauka.
Á heimasíðu félagsins, sjo-
sundfelagislands.com, sem enn
er í vinnslu er hægt að nálgast
frekar upplýsingar um félagið og
hvernig má bera sig að við sjó-
sundsiðkun. Í framtíðinni verða
þar m.a. skráð gögn um þreksund
og önnur söguleg sund og byggt
upp myndagallerí og félagatal.
Einnig verður unnt að nálgast þar
upplýsingar um skilyrðin í sjón-
um, fyrirhugaðar sjósundferðir
o.s.frv.
Síðustu misseri hefur færst í
vöxt að menn skelli sér í sjóinn í
styttri sund eða bara til að baða
sig sér til skemmtunar og heilsu-
bótar. Enn vantar óyggjandi
rannsóknir á áhrif sjávar, bæði
með tilliti til seltunnar og kuld-
ans, á líkamann og ónæmiskerfið.
Til eru þeir sem fullyrða að sjó-
sund hafi læknað sig af kvillum
eins og asma og lifrarbólgu, þrá-
látu kvefi, hæsi og öðrum
óþverra í öndunarfærum, jafnvel
kvíða og þunglyndi og þannig
mætti lengi telja. Sjálfur hef ég
nú nokkra reynslu af sjósundi og
finn hvernig sjórinn leysir mig
ekki aðeins undan kuldahrolli og
árvissum kvefpestum, heldur
hreinsar orkustöðvarnar í líkam-
anum um leið og hann hefur
styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið
sem er auðvitað grundvöllur
góðrar heilsu.
Í samfélagi þar sem gripið er
æ meir til lyfja og annarra
skammvinnra og ávanabindandi
úrræða við nútímameinum – í
þjóðfélagi þar sem kostnaðurinn
í heilbrigðiskerfinu æðir stjórn-
laust áfram án þess að sýnilegur
árangur náist við hinum ótelj-
andi kvillum – hljótum við að
þurfa að doka aðeins við og
spyrja okkur sjálf að því hvað
hafi misfarist í okkar „háþróaða
og hamingjusama“ velferðar-
kerfi. Væri ekki nær að leita
lausnanna í okkur sjálfum og í
því umhverfi sem okkur hefur
verið gefið í vöggugjöf. Kann að
vera að við höfum leitað of langt
yfir skammt og að við eigum enn
langt í land með að virkja þá
kosti sem við búum sjálf yfir og
finnum í okkar nánasta umhverfi
á bæði ódýran og umhverfisvæn-
an hátt. Lausnir eins og sjálfs-
rækt og sjósund standa okkur
frítt til boða (sjá seinna auglýs-
ingar um sahaja-jóga). Við þurf-
um bara að vakna til meðvitund-
ar um gildi þess fyrir okkur. Við
ylströndina í Nauthólsvík eru að-
stæður til sjósundiðkunar væn-
legar, þar geta byrjendur og
aðrir hlýjað sér í heitum potti og
upphitaðri sjávartjörn áður og
eftir að hafa baðað sig í köldum
sjónum. Sjósundfélag Íslands
tekur á móti fólki kl. 17–17.15 á
þriðjudögum og föstudögum.
Þátttaka í Sjósundfélagi Íslands
er öllum að kostnaðarlausu og
aðgangur að sturtuaðstöðu á yl-
ströndinni kostar aðeins 200 kr.
Sjáumst í heilbrigðri sál og
hraustum líkama! ■
21FÖSTUDAGUR 23. júlí 2004
Sjósund er allra meina bót
Gildir á meðan birgðir endast.
Stuttermabolir 2 í pakka
hvítir, st. S-XXL 999kr
Hlírabolir
hvítir svartir, st. S-XXL 799kr
Stuttermabolir
hvítir svartir, st. S-XXL 799kr
Stuttermabolir
hvítir, st. S-XXL 799kr
Nærbuxur 2 í pakka
hvítar, st. S-XXL 799kr Nærbuxur 3 í pakka2 litir, st. S-XXL 999kr Boxer 2 í pakka3 litir, st. S-XXL 999kr Boxer 2 í pakka2 litir, st. S-XXL 1.299kr
Frábært verð
á gæða undirfatnaði fyrir herra
Femínismi og sálgreining
Hvað sem líður skiptum skoðunum um
samleið femínisma og sálgreiningar þá er
það staðreynd að fá kenningakerfi hafa
blómstrað eins vel innan femínískra fræða
undanfarna áratugi eins og einmitt sálgrein-
ingin. Fræðimenn sem beita þessu tvennu í
starfi sínu, sálgreiningu og feminísku sjónar-
horni, er að finna í flestum greinum mann-
vísinda svo sem sálfræði, félagsfræði,
mannfræði, bókmenntafræði og heimspeki,
svo fátt eitt sé nefnt. Hér á landi hefur þó
ekki borið mikið á þessari samfléttun í
fræðistarfi mannvísinda og reyndar hefur
sálgreining sem slík ekki átt upp á pallborð-
ið innar sálarfræðigeirans, ef svo má að orði
komast, eins og sjá má með því til dæmis
að skoða kennsluskrá Háskóla Íslands og þá
sérstaklega námskeið í sálarfræði.
Soffía Auður Birgisdóttir á kistan.is
Sigur auðvaldsins
Í fjölmiðlum í dag er sagt frá því að Davíð og
Halldór hafi náð samkomulagi um að draga
íþyngjandi ákvæði í garð fjölmiðla til baka úr
fjölmiðlafrumvarpinu. Niðurstaðan hlýtur að
vera áfall öllum sem styðja lýðræðislega um-
ræðu og lýðræðislega aðferðafræði hér á
landi. Jafnframt er ljóst að um er að ræða
gífurlegan áfangasigur auðvaldsins, sem í
baráttunni beitti óspart eignum sínum til að
koma í veg fyrir lagasetninguna. Þá verður
að telja skoðanakannanir annan sigurvegara
en forseti Íslands vísaði til þeirra sem grund-
vallarforsendu ákvörðunar sinnar þegar
hann hafnaði lögunum staðfestingar.
Halldór E. á annal.is/elli
Bóndinn bullar á bæjarhellunni
Eru ekki samkeppnislög í landinu? Má ekki
beita þeim á fjölmiðla eins og önnur fyrir-
tæki? Þarf einhver sérstök lög um fjölmiðla
frekar en banka eða bakarí? Svo bullar
bóndinn á bæjarhellunni að vanda og segir
að allir sem barist hafa gegn fjölmiðlafrum-
varpinu gangi erinda Norðurljósa! Er hægt
að taka mark á slíkri vænisýki? Ef einhver
hefur gengið erinda vissra fyrirtækja og sér-
staklega eins, nefnilega Íslenskrar erfða-
greiningar hf., hverra stjórnendur hafa haft
milljarða af landsmönnum með vafasömum
hætti, þá er það bóndinn sjálfur og einka-
vinur blekkingarmeistarans sjálfs og skóla-
bróður úr MR.
Örn Bárður á annáll.is/elli
Ofbeldi mæðra
Ef marka má reglulega umfjöllun vandaðra
blaða og tímarita um heimilisofbeldi mætti
ætla að það væri aðeins af tvennum toga:
líkamlegt ofbeldi eiginmanna gagnvart eig-
inkonum sínum og kynferðislegt ofbeldi
feðra, stjúpfeðra, bræðra og ættingja gagn-
vart stúlkubörnum. Undanfarin misseri hafa
vakið athygli mína ýmis óskyld dæmi um lík-
amlegt ofbeldi mæðra gegn börnum sínum.
Ég velti því fyrir mér hvort um sé að ræða til-
viljanir eða toppinn á einhverjum ísjaka sem
ekki fær litið dagsins ljós í umræðunni.
Ágúst Borgþór á agustborgthor.blog-
spot.com
Verður að ganga sinn gang
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar-
flokksins, í fréttum Stöðvar 2 1. júní:
Kristján Már Unnarsson: Eitt sem menn hafa
nefnt er sá möguleiki hreinlega að ríkis-
stjórnin leggi fram frumvarp um að afnema
nýsett lög, koma þannig í veg fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna, er það í spilunum?
Halldór Ásgrímsson: Nei, þetta mál verður
að ganga sinn gang eins og til þess er stofn-
að og ég held það verði ekkert undan því
vikist.
Upprifjun fjölmiðlamáls á murinn.is
BENEDIKT S. LAFLEUR
FORM. SJÓSUNDFÉLAGS ÍSLANDS
UMRÆÐAN
SJÓSUND
BRÉF TIL BLAÐSINS
20-29 (20-21) Umræðan 22.7.2004 18:09 Page 3