Fréttablaðið - 24.07.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
LAUGARDAGUR
ALÞJÓÐLEG MIÐBORG
Magadanssýning og flamengókennsla í
Alþjóðahúsinu, útimarkaðir, tyrkneskur
matur á Café Cultura og upplestur rithöf-
unda er meðal þess sem boðið verður
upp á á vegum verkefnisins Mögnuð
miðborg í dag.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Hætt við
smáskúrum á víð og dreif, einkum þegar
líður á daginn. Hiti 10-19 stig, hlýjast
austantil. Sjá síðu 6.
25. júlí 2004 – 200. tölublað – 4. árgangur
ÓFREMDARÁSTAND Álag á bráða-
og slysadeild Landspítala - háskólasjúkra-
húss í Fossvogi hefur sjaldan verið meira.
Deildin er undirmönnuð og biðtími í ein-
staka tilfellum getur orðið allt að fjórir
klukkutímar. Sjá síðu 2
STRAUMUR HAGNAST Straumur
fjárfestingarbanki hagnaðist um 1,1 millj-
arð eftir skatta á öðrum árshelmingi.
Hagnaður það sem af er árs er 3,1 millj-
arður króna. Sjá síðu 2
FUGLADRÁP Á VEGUM Virðingarleysi
við umhverfið sést á dauðum fuglum við
þjóðvegi landsins. Árekstur fugla við bifreið-
ar er þriðja stærsta orsök dauða þeirra. Ung-
ar verða helst fyrir bílum. Sjá síðu 6
ÖLLUM REGLUM FYLGT Starfsmað-
ur einkavæðingarnefndar segir að farið hafi
verið að reglum þegar hlutur ríkisins í Ís-
lenskum aðalverktökum var seldur. Verð-
mæti fyrirtækisins margfaldaðist skömmu
eftir að útboðinu lauk. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 30
Tónlist 33
Leikhús 33
Myndlist 33
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
Fimm tónlistarmenn af yngri
kynslóðinni lýsa ástríðu sinni
fyrir tónunum.
Stríðið gegn aukakílóunum:
SÍÐA 22 & 23
▲
Ungir djassistar:
SÍÐUR 20 & 21
▲
Sigrún Daníelsdóttir segir
offitustríðið háð á röngum
forsendum.
M
YN
D
/A
P
SÓLBLÓM Í MANNSMYND Sólblómin hafa vakið mönnum þrá til listsköpunar um langt skeið. Frægust eru sennilega málverk
Vincents Van Gogh sem hann málaði í Arles á árunum 1888 og 1889 en fleiri hafa reynt sig við listsköpun tengda sólblómum. Þeirra á
meðal eru þeir sem voru á ferð á engi í Sviss og plokkuðu fræ úr sólblómum þar til þau tóku á sig andlitsmynd.
Kynskiptingar á Flórída:
Ákaflega
öfugsnúið
FLÓRÍDA, AP Kynskiptingar mega
ekki ganga í hjónaband á Flórída,
nema þeir hneigist að eigin kyni.
Þetta kom í ljós þegar yfirvöld neit-
uðu að staðfesta hjónaband
Michaels Kantaras og unnustu hans.
Kantaras gekkst undir kyn-
skiptaaðgerð árið 1987 og lét breyta
sér úr konu í karl. Tveimur árum
síðar giftist „hann“ Lindu sem var
eiginkona hans til fimmtán ára.
Það var ekki fyrr en Kantaras
kvæntist aftur að babb kom í bát-
inn. Yfirvöld sögðu að Michael væri
kona þrátt fyrir aðgerðina og þar
sem hjónabönd samkynhneigðra
eru bönnuð í Flórída má hann ekki
kvænast.
Michael, sem telst enn kona
þrátt fyrir kynskiptaaðgerðina,
ætti að vera heimilt að kvænast
karlmanni. ■
● bílar
Aníta Hauksdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Í mótorkrossi
frá 10 ára aldri
● en er 40 ára í dag
Ástrós Gunnarsdóttir:
▲
SÍÐA 16
Hélt upp á
daginn í júní
● skrautlegir karakterar
Cuckoos:
▲
SÍÐA 16
Kabarett í
Reykjavík
● íslenska landsliðið gerði jafntefli
Nína Ósk Kristinsdóttir:
▲
SÍÐA 27
Skoraði eina
markið
TYRKLAND, AP Tyrknesk stjórnvöld
sæta harðri gagnrýni eftir lestar-
slys sem kostaði 36 manns lífið í
fyrrakvöld. Stjórnin er sökuð um
kæruleysi fyrir að hafa ekki tekið
mark á viðvörunum um að lesta-
kerfi landsins, sem er komið til
ára sinna, réði ekki við nýju hrað-
lestina sem fór út af spori sínu á
miklum hraða í fyrrakvöld.
Tyrknesku blöðin voru harð-
orð. „Fjöldamorð“, „Þau létust
fyrir sakir sýndarmennsku,“ og
„Morð,“ voru fyrirsagnir sem
mátti lesa í dagblöðunum í gær.
Ekki liggur fyrir hvað olli slys-
inu en stjórnvöld hafa útilokað
skemmdarverk. Nokkrir farþegar
höfðu á orði að þeim hefði þótt
lestin ferðast á miklum hraða og
kváðust sérstaklega hafa orðið
þess varir í beygjum.
Sérfræðingar höfðu lagt hart
að stjórnvöldum að endurnýja
lestakerfið. Þeir sögðu að leggja
þyrfti ný spor áður en hægt væri
að taka hraðlestina í notkun. Ekki
var hlustað á það. „Lestakerfi okk-
ar var ekki byggt fyrir svona mik-
inn hraða. Það var ekkert mark
tekið á aðvörunum okkar,“ sagði
verkfræðiprófessorinn Aydin
Erel. ■
Tyrklandsstjórn gagnrýnd eftir mannskætt lestarslys:
Vanrækslu líkt við fjöldamorð
DÓMSMÁL 26 ára kona, Fanta Sillah,
frá Sierra Leone var í Héraðsdómi
Reykjaness dæmd í fimm ára
fangelsi en hún var tekin á Kefla-
víkurflugvelli tíunda júní með um
5034 e-töflur. Fanta var ekki við-
stödd dómsuppsögn en hún liggur
á sjúkrahúsi vegna veikinda á
meðgöngu en hún er barnshafandi
komin sjö mánuði á leið.
„Mér þykir þetta strangur dóm-
ur en dómendur féllust ekki á frá-
sögn ákærðu um tildrög þess að
hún kom til landsins. Ég krafðist
sýknu því hennar frásögn byggðist
á því að hún hafi ekki haft vit-
neskju um fíkniefnin og það er ekk-
ert sem benti til þess eins og bak-
pokinn var útbúinn. En dómendum
fannst það ótrúverðug frásögn og á
því byggja þeir sína niðurstöðu.“
segir Guðmundur B. Ólafsson,
verjandi Föntu, eftir að dómurinn
var kveðinn upp.
Hann segist búast við að Fanta
verði á spítala þar til eftir fæðingu
sem verður í lok september eða
byrjun október. Sækjandi í málinu
krafðist áframhaldandi gæsluvarð-
halds meðan mál hennar er enn til
meðferðar komi til áfrýjunar til
Hæstaréttar. Guðmundur segir
ákvörðun um áfrýjun ekki hafa
verið tekna þar sem hann eigi eftir
að fara yfir forsendur dómsins og
tala við skjólstæðing sinn. Hann
segist búast við að konan muni af-
plána dóm sinn í fangelsinu í Kópa-
vogi og þar sé aðstaða til að vera
með börn. Hann viti um slík tilvik.
„Ég mun fara yfir afplánunarstað
með henni en staða hennar er svo-
lítið óljós því hún er frá Sierra Le-
one og ekki liggur fyrir hvort að
hún sé með ríkisfang í Hollandi þó
að hún sé með passa þaðan. Veit
ekki hvort að hún fái leyfi til að af-
plána þar. En ég mun hugsanlega
óska eftir því af mannúðarsjónar-
miðum þar sem hún á fimm ára
gamalt barn í Hollandi,“ segir Guð-
mundur.
hrs@frettabladid.is
Sjá síðu 4
Ófrísk kona dæmd
í fimm ára fangelsi
26 ára barnshafandi kona frá Sierra Leone, Fanta Sillah, var dæmd í
fimm ára fangelsi en hún var tekin á Keflavíkurflugvelli með um 5034
e-töflur. Hún er á sjúkrahúsi vegna veikinda á meðgöngu.
Í GÍSLINGU VÍGAMANNA
Myndband sem sýnir Mohammed
Mamdouh Helmi Qutb í haldi vígamanna
var sent Al-Jazeera sjónvarpsstöðinni.
Þrýst á Egypta:
Sendimaður
í gíslingu
ÍRAK, AP Vígamenn tóku egypskan
sendimann í gíslingu og kröfðust
þess að egypsk stjórnvöld lýstu
því yfir að þau myndu ekki senda
herlið til Íraks til að styðja bráða-
birgðastjórnina.
Gíslatakan er áfall fyrir til-
raunir Iyad Allawi, forsætisráð-
herra Íraks, sem vill fá hersveitir
frá araba- og múslimaríkjum til
að verja þá sem eru í Írak á veg-
um Sameinuðu þjóðanna. Á
fimmtudag ræddi Allawi við
Hosni Mubarak í von um að
Egyptar sendi herlið til Íraks í
þessum tilgangi.
Rúmlega 70 útlendingar hafa
verið teknir í gíslingu síðustu
mánuði. Sjö þeirra eru í haldi
vígamanna sem krefjast þess að
kúveiskt fyrirtæki sem þeir vinna
fyrir greiði fjölskyldum þeirra
sem féllu fyrir hendi Bandaríkja-
manna í Fallujah bætur. ■
01 23.7.2004 21:56 Page 1