Fréttablaðið - 30.07.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
TOM WAITS TÓNAR Í DEIGL-
UNNI Þeir sem ákveðið hafa að eyða
helginni á Akureyri geta geta notið góðr-
ar kvöldstundar undir tónum laga Tom
Waits í Deiglunni klukkan 21.30. Kristján
Pétur Sigurðsson og félagar sjá um flutn-
inginn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SKÚRIR EÐA SÚLD Einkum um
sunnan og vestanvert landið. Skýjað með
köflum fyrir norðan og austan. Leiðinda
vindur til kvölds. Sjá síðu 6
30. júlí 2004 – 206. tölublað – 4. árgangur
HÖFNIN HÆKKAR BENSÍNVERÐ
Hafnarnefnd Reykjavíkurhafnar hefur hækk-
að vörugjald á bensíni um 23%. Talsmaður
olíufélags segir þetta fara beint út í verðlag-
ið. Sjá síðu 2
FÁMENNT VIÐ EMBÆTTISTÖKU
Helmingur þingmanna ríkisstjórnarflokk-
anna verður fjarverandi og helmingur ráð-
herra mæta ekki við embættistöku forseta
Ísland. Sjá síðu 6
AUGLÝSINGBANN ANDSTÆTT
EES Rannsóknir benda til að bann við
auglýsingum á áfengi hafi engin áhrif á
neyslu. Ólíklegt er talið að bannið standist
EES-reglur. Sjá síðu 12
ÞJARKAÐ UM FRÍVERSLUN Hörð
samningalota um fríverslun stendur nú yfir
í Genf. Fátæku löndin og ríku löndin gæta
ólíkra hagsmuna. Landbúnaðarmálin eru
viðkvæmust eins og venjulega. Sjá síðu 16
Kvikmyndir 30
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 24
Sjónvarp 36
LEIT Óttast var um hóp tuttugu
ferðamanna í gær eftir að neyðar-
kall kom í gegnum samtal á milli
Ferðafélags Íslands í Reykjavík og
skálavarðar í Hvanngili. Björgun-
arsveitir á Suðurlandi héldu af stað
á hálendið á öðrum tímanum í gær.
Ekkert var vitað um hópinn þegar
blaðið fór í prentun í gærkvöldi.
Hjálparbeiðnin barst frá Íslend-
ingi sem sagðist vera með tuttugu
manna hóp ferðamanna sem allir
væru orðnir meira eða minna veikir.
Var helst talið að um matareitrun
væri að ræða. Engar staðsetningar
komu fram um hvar hópurinn væri
niðurkominn. Beiðnin barst um rás
Ferðafélags Íslands í samtali félags-
manns í Reykjavík við skálavörð í
Hvanngili. Ferðafélagsmaðurinn í
Reykjavík heyrði kallið en skála-
vörðurinn ekki. Þá heyrðu leiðsögu-
maður við Nýjadal og áhugamaður í
Reykjavík einnig kallið en þeir voru
með stillt á rásina sem kallið kom
um. Talið er að það hafi komið um
endurvarpa í Bláfjöllum. Seint í
gærkvöld var leitarsvæðið þrengt
og leitin einskorðuð sunnan við
Kerlingarfjöll.
Björgunarsveitir frá Hellu,
Hvolsvelli, Landeyjum og Álfta-
veri hófu leitina. Leitarmenn í
Árnessýslu bættust síðan við. Frá
Rangárvallasýslu fóru um fjöru-
tíu leitarmenn á sjö bílum. Að
sögn Svans Lárussonar, formanns
Flugbjörgunarsveitarinnar á
Hellu, var farið í alla skála sem
ekki eru skálaverðir í frá Kerl-
ingafjöllum og inn að Snæfelli.
Auk þess var haft samband við
alla skálaverði á svæðinu og alla
ferðaþjónustuaðila en enginn
kannaðist við hópinn. Í fyrstu var
talið að kallið hafa komið um end-
urvarpa á Háskerðing fyrir sunn-
an Hrafntinnusker. Síðar þótti
líklegra að hafi komið um Bláfjöll.
Ekki er hægt að útiloka að um
gabb hafi verið að ræða þó kunn-
áttumenn telji það ólíklegt.
hrs@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Hagnaður fjögurra
banka nam 22 milljörðum króna á
fyrri helmingi ársins.
Hagnaðaraukningin milli ára
er 14,5 milljarðar króna. Gengis-
hagnaður verðbréfaeignar bank-
anna á stóran þátt í hagnaðinum.
Útlán og eignir bankanna hafa
vaxið mikið. Útlán viðskiptabank-
anna þriggja nema tæpum 1.200
milljörðum og hafa aukist um 190
milljarða. Landsbankinn á lang-
samlega mest af aukningunni eða
106 milljarða króna.
Íslenskt bankakerfi hefur vax-
ið mikið undanfarin misseri og
hafa allir bankarnir aukið erlend-
ar eignir og útlán að undanförnu.
Heildareignir bankanna eru um
1.750 milljarðar sem er ríflega
tveggja ára landsframleiðsla Ís-
lendinga. Eigið fé viðskiptabank-
anna þriggja var 115 milljarðar
króna í lok júní.
Landsbankinn hefur vaxið
hratt á þessu ári og eignir KB
banka munu ríflega tvöfaldast
við kaup á danska bankanum
FIH.
Útrás á erlenda markaði er á
stefnuskrá allra bankanna. Þjón-
usta við erlenda viðskiptavini er
vaxandi hluti starfsemi þeirra og
gætir hennar sífellt meira í upp-
gjörum íslenskra banka.
Sjá síðu 4
Góðæri í bankastarfsemi:
Hagnaðurinn 22 milljarðar
itÄt
nr. 30 2004
í hverri viku
kúrekar tíska fólk stjörnuspá matur heilabrot
um glæpagengi &
Hjálpræðisherinn
Flatey
aftur til fortíðar
Jón Atli
Margrét Eir
Svali
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
30
. jú
lí -
5
. á
gú
st
Um glæpagengi og
hjálpræðsiherinn
birta
Valgerður Guðnadóttir:
▲Fylgir Fréttablaðinu dag
● Flatey ● Margrét Eir ● matur ● tilboð
Hörður Torfa:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Eiginmaðurinn breytti
matarsmekknum
Leituðu tuttugu ferða-
manna á hálendinu
Í STJÓRNSTÖÐINNI
Björgunarsveitarmenn voru áhyggjufullir
enda í óvissu um afdrif um tuttugu
ferðamenn. Hér eru Erlingur Gíslason og
Þröstur Jónsson að reyna að ná sambandi.
SVANUR LÁRUSSON
Hann er formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Seint í gærkvöld var ákveðið að
þrengja leitina við svæðið sunnan Kerlingarfjalla.
Óttast var um tuttugu manna hóp ferðamanna eftir að neyðarkall kom í gegnum samtal á milli
Reykjavíkur og Hvanngils um rás Ferðafélags Íslands.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
01 29.7.2004 22:57 Page 1