Fréttablaðið - 30.07.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 102 stk.
Keypt & selt 15 stk.
Þjónusta 36 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 14 stk.
Tómstundir & ferðir 17 stk.
Húsnæði 26 stk.
Atvinna 6 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Terta í barnaafmælið
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 30. júlí,
212. dagur ársins 2004.
Reykjavík 4.29 13.34 22.37
Akureyri 3.55 13.19 22.39
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Það jafnast ekkert á við heimabökuðu pits-
una okkar Massimos,“ segir Hörður Torfa-
son tónlistarmaður, en í matargerðar-
listinni opnaðist fyrir honum nýr heimur
þegar hann kynntist ítölskum eiginmanni
sínum. „Þá hækkaði gæðastaðallinn í minni
matarmenningu verulega. Það var svo gam-
an að kynnast því hvernig menn leggja sig
alla fram við matargerðina, setja upp svun-
tu, lesa uppskriftir og gefa sér svo þann
tíma sem þarf til að elda matinn og ekki síst
að njóta hans án þess að glápa á sjónvarp
eða lesa blöð á meðan.“
Hörður og Massimo eru nýfluttir til Ís-
lands frá London en Massimo er enn í út-
landinu að ganga frá. Það hindrar þó ekki
Hörð í að elda kvöldmat fyrir sig einan.
„Ég myndi aldrei panta mér skyndimat,“
segir hann og bendir á að himinn og haf
séu á milli heimagerðrar pitsu og hinnar
sem maður pantar. Hann segist heldur
ekkert sérstaklega djarfur að smakka
óhefðbundinn mat.
„Þegar við bjuggum í London, þar sem
allt er til, vorum við duglegir að heim-
sækja veitingastaði og eltast við
skemmtilegan mat og uppskriftir. Á
framandi veitingastöðum fylgist ég með
því sem hinir eru að panta og er óhrædd-
ur við að spyrja og fá útskýringar. En ég
byrja alltaf á að skoða salernin,“ segir
Hörður og hlær. „Ef þau eru illa þrifin
fer ég út.“
Það óvenjulegasta sem Hörður hefur
borðað er ísbjörn sem hann fékk í Finn-
landi og það leiðinlegasta þverskorin ýsa.
„Mig minnir að björninn hafi verið meyr
og fínn, en ýsunni fékk ég nóg af í æsku
eftir að hafa borðað hana fimm sinnum í
viku í áraraðir.“
Nú er Hörður að undirbúa haust-
tónleikana sína í september sem verða
þeir 28. í röðinni. „Það er líka ný plata á
leiðinni,“ segir hann, „með svokölluðum
I-land söngvum. Þeir fjalla um það sem
gerist á mörkum heilahvelanna í sér-
hverjum manni, skapgerðarbrestina og
fýlupokaganginn sem mér finnst alltaf
svo gaman að gera góðlátlegt grín að.
Sérviska mannanna er eilífðaruppspretta
að nýjum og grátbroslegum textum,“
segir listamaðurinn og snýr sér við svo
búið að matargerðinni á ný.“
edda@frettabladid.is
Fjölbreytt matarreynsla trúbadorsins:
Ísbjarnarkjöt og
þverskorin ýsa
tilbod@frettabladid.is
Töskur fyrir haustið eru á
góðu tilboði í versluninni Griffill.
Um er að ræða Jeva og
Beckmann skólatöskur.
Tuttugu prósent afslátt-
ur er af töskunum og
um að gera að grípa
tækifærið fyrir skól-
ann í haust. Best er
að grípa gæsina
meðan hún gefst
þar sem tilboðið
gildir aðeins meðan
birgðir endast eða út þennan
mánuð. Þá fer hver að verða síð-
astur og gott að renna við í Griffil
í Skeifuna 11 í Reykjavík.
Útilljós eru á tilboði í Raf-
kaupum Ármúla. „Við fengum
gott tilboð á útiljósum erlendis
og keyptum inn talsvert magn.
Þess vegna getum við nú boðið
útiljós á óvenju lágu verði,“ segir
Óskar Rafnsson hjá Rafkaupum.
Hann nefnir sem dæmi að ljós
sem þeir hafi áður haft til sölu á
nál. 5000 séu nú á tæp 2000.
Ljósin verða, að
hans sögn, líka
til sölu í Rafbúð-
inni að Álfa-
skeiði í Hafnar-
firði og átján
öðrum útsölu-
stöðum Raf-
kaupa víðs vegar um landið.
Meðal þess sem í boði er eru
garðstaurar, bæði stakir og í sett-
um. Eitt sett með fjórum
útistaurum úr stáli er á
14.850 krónur.
Allt að 50% afsláttur
er á útsölu sem nú
stendur yfir Í Raftækja-
verslun Íslands í Skútu-
vogi. Meðal vörutegunda
má nefna þvottavélar,
þurrkara og potta, sem eru á
mjög góðu verði. Einnig eru á út-
sölunni helluborð, sjónvörp, háfar
í eldhús, gashelluborð og
gaseldavélar. Þá eru ísskápar á
góðu verði. Verslunin er opin kl.
9–18 á virkum dögum en á laug-
ardögum er opið kl. 11–16. Út-
salan stendur yfir út ágústmánuð.
Öll þurfum við að sofa
og eflaust fagna margir þegar
verð lækkar á rúmum og dýnum.
Amerískar lúxus heilsudýnur eru
nú á sumartilboði hjá Rekkjunni í
Skipholti 35. Dýn-
urnar eru af hinum
ýmsu gerðum, í
mismunandi stærð-
um og með mis-
munandi stífleika.
Afslátturinn nemur
10–20 prósentum.
Hörður Torfason heldur mest upp á pitsu Margarítu sem hann og
Massimo elda heima. Með pitsunni drekka þeir íslenskt vatn.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
Tilboð á gelnöglum! Litaðir toppar frá
3.300-3.900 kr. Greyfynjan S. 587
9310.
Bílnum mínum TX 562 var stolið úr
Drápuhlíð 1. Þeir sem hafa séð hann
vinsamlegast látið lögregluna vita eða í
s. 895 8396.
Veiðiportið bara á sumrin, lærri álagn-
ing. Opið mánudaga - föstudaga frá 9-
18 og í Kolportinu um helgar. VEIÐI-
PORTIÐ, Grandagarði 3. Sími 898
3946.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Í dag eru 1.614
smáauglýsingar á
www.visir.is
21 (01) allt forsíða 29.7.2004 18:35 Page 1