Fréttablaðið - 11.08.2004, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 153 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 40 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 4 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 14 stk.
Húsnæði 16 stk.
Atvinna 32 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Hvað má gera fyrir 500 kall?
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagurinn 11.
ágúst, 224. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.41 13.31 20.23
Akureyri 6.41 13.31 20.23
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Sóley og Unnur Konráðsdætur eru átta ára
tvíburar sem ganga í 3. bekk Laugarnesskóla í
vetur. Kannski væri nær að segja hjóla því
þær segjast ætla að nota hjólin sem farartæki
í skólann. Eina stóra umferðargötu þurfa þær
að fara yfir, Sundlaugarveginn, en eru svo
heppnar að þar eru gönguljós svo þær geta
stöðvað bílana og komist yfir. Þær hlakka til
að byrja í skólanum en vita ekki alveg hvenær
hann verður settur þar sem endurbætur
standa yfir á húsnæðinu. „Það er verið að
stækka skólann okkar og setja í hann eldhús.
Við fáum örugglega að baka þar og þá getum
hætt að baka í skólastofunni,“ segja þær og
síðan kemur hin fjörlegasta frásögn af bökun-
ardegi í þrengslum skólastofunnar þar sem sá
heppnasti fékk yfir sig fulla skál af súkkulaði-
kökudeigi og sleikti að sjálfsögðu út um.
Þegar kemur að því að velja skemmtileg-
ustu námsgreinina er úr vöndu að ráða. „Ég
held það sé samfélagsfræðin þar sem við lær-
um um hnöttinn, líkamann og risaeðlurnar,“
segir Unnur. Nú eru þær spurðar hvað sé leið-
inlegast við skólann og í fyrstu segja þær að
ekkert sé leiðinlegt. Svo tínist smávegis til.
„Leiðinlegast er þegar maður þarf að standa í
langri biðröð með verkefni til kennarans og
frímínúturnar eru alveg að byrja,“ segir Unn-
ur. „Já, og að þurfa að fara út í frímínútum þó
að það sé hagl og snjór og rok og bylur og
demba,“ bætir Sóley við. „En við lifum það
samt af,“ segja þær svo hlæjandi.
gun@frettabladid.is
Tvíburasysturnar Sóley og Unnur:
Leiðinlegast að standa í langri biðröð
heimili@frettabladid.is
Konur ættu að spara meira
en karlmenn og leggja meira fyrir
til elliáranna samkvæmt banda-
rískri rannsókn. Ástæður þessa
eru aðallega tvær: Í fyrsta lagi eru
konur almennt með lægri laun
en karlmenn og því er prósentu-
tengdur sparnaður þeirra og líf-
eyrisinnlegg yfirleitt lægra en
einnig er starfsaldur kvenna oftar
styttri þar sem þær taka sér oft
lengra fæðingarorlof launalaust
og vinna svo í hlutastarfi meðan
börnin eru lítil. Svo má ekki
gleyma því að konur lifa almennt
lengur en karlmenn og eru því
lengur á ellilífeyri. Bandarískum
konum er því ráðlagt að huga
sérstaklega vel að fjárfestingum
til elliáranna svo þær geti notið
þeirra til fullnustu eins og vinkon-
urnar í hinum vinsæla sjónvarps-
þætti The Golden Girls og sjáfsagt
geta íslenskar kynsystur þeirra
tekið sér það til fyrirmyndar.
Orðfæri á fjármálamarkaði
er ekki mjög gagnsætt og það
getur oft virst nánast óyfirstígan-
legt að byrja að fóta sig á fram-
andi fjármálaslóðum þar sem
tungumálið er oft algerlega óskilj-
anlegt. Á heimasíðu KB banka
má finna greinargóða orðalista
yfir ýmis orð sem notuð eru í fjár-
málaheiminum bæði á íslensku
og ensku ásamt góðum útskýr-
ingum á hverju orði og hugtaki
fyrir sig. Slóðin er kbbanki.is og
eftir að hafa lesið orðalistann er
manni ekkert að vanbúnaði að
skella sér flugmælskur út í fjár-
málaheiminn.
Umsóknarfrestur námslána
hefur verið rýmkaður og er skila-
frestur umsókna nú til 30. sept-
ember í stað 15. ágúst eins og
áður var. Þeir sem ætla að sækja
um námslán geta því verið rólegir
enn um sinn þó auðvitað sé tekið
við umsóknum allt árið. Samhliða
verður boðið upp á nýja rafræna
umsókn og hagræði námsmanna
sem sækja um lán á netinu auk-
ið. Ýmsar breytingar hafa orðið á
úthlutunarreglum lánasjóðsins
milli ára nú sem endranær og má
helst til telja að grunnframfærsla
námsmanna hækkar um 2,6%
eða úr 77.500 krónum á mánuði í
79.500 krónur. Hlutfall tekna sem
koma til lækkunar á námsláni er
33% í stað 35% áður og einnig
gefst námsmönnum kostur á
100% sumarláni kjósi þeir að
flýta fyrir sér í námi með því að
taka sumarkúrsa.
Unnur og Sóley á hjólunum sem þær fengu í sumargjöf þegar þær voru fjögurra ára.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í FJÁRMÁLUM
Í fjalla- og ferðabílinn, KAB ökumanns-
sæti, drullutjakkur, neyðarstartpakki, 12
volta loftpressa. Vélar og þjónusta.
Reykjavík, sími 5 800 200. Akureyri,
sími 461 4040.
AUGLYSINGARVÖRUR! WWW.YMSAR-
VORUR.IS
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Í dag eru 1.614
smáauglýsingar á
www.visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.