Fréttablaðið - 11.08.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.08.2004, Blaðsíða 36
24 11. ágúst 2004 MIÐVIKUDAGUR FÓTBOLTI Efstu liðin unnu öll í 11. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu í gær og staðan breyttist ekkert í deildinni, hvorki á toppi né botni. Valskonur halda áfram fimm stiga forskoti og botnbaráttan er enn í einum hnút. Breiðablik gerði góða ferð í Grafarvoginn í gærkvöld en þá bar liðið sigurorð af Fjölni, 1-3, í Landsbankadeild kvenna í knatt- spyrnu. Þar með er staða Fjölnis við botninn orðin afar erfið og vandséð að liðið nái að bjarga sér frá falli í 1. deild. Hlutirnir litu reyndar ljómandi út fyrir heima- stelpur í byrjun leiks en strax á 1. mínútu komst liðið yfir. Í kjölfar- ið var jafnræði ríkjandi þar sem hvorugt liðið náði afgerandi tök- um á leiknum og nánast engin færi litu dagsins ljós. Tvö mörk á einni mínútu En á innan við einni mínútu breyttist gangur leiksins allveru- lega og það fyrir tilstilli eins leik- manns – Ernu B. Sigurðardóttur. Hún skoraði tvö mörk og var ann- að þeirra af laglegri gerðinni. Eft- ir þessa rispu Ernu tók Breiðablik völdin og segja má að liðið hafi aldrei látið þau af hendi. Liðið tryggði sér svo endanlega sigur- inn í upphafi seinni hálfleiks og hefði hæglega getað bætt við fleiri mörkum en stelpurnar fóru illa að ráði sínu uppi við markið. Fjölnisstelpur sýndu ágætis takta á köflum en liðið náði sér aldrei eftir mörkin tvö hjá Ernu. Allt annað var að sjá til Breiðabliks í þessum leik en þeim síðasta en þá tapaði liðið afar óvænt fyrir FH. Margrét Sigurðardóttir, þjálfari Breiðabliks, tók undir það: „Þetta var allt annað en á móti FH enda var einbeitingin núna í lagi. Liðið spilaði mjög vel í síðari hálfleik og við hefðum átt að setja nokkur mörk í viðbót. Þetta er búið að vera lærdómsríkt sumar hjá Breiðabliki – það er uppbygging í gangi og við verðum að vera þol- inmóðar,“ sagði Margrét Sigurð- ardóttir. Tvö mörk frá Rötku Ratka Zivkovic skoraði tvö mörk KR í auðveldum 4–1 sigri á FH. Ratka hefur skorað í báðum leikjum sínum með Vestur- bæjarliðinu eftir að hafa komið frá Fjölni á dögunum. KR sótti af miklum krafti í byrjun en lét sér nægja fjögur mörk þegar upp var staðið. Liðið vantaði tilfinnanlega meiri sóknarþunga til þess að nýta sér betur yfirburði sína en tapið í Eyjum í síðustu umferð höfðu gert titilvonir liðsins að engu. Markadrottningarnar Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga Færseth sáu um að skora og legg- ja upp mörkin í 0–3 sigri ÍBV á Stjörnunni í leiðinlegum leik á nýja gervigrasvellinum í Garða- bæ í gær. Stjörnuliðið var algjör- lega bitlaust framundan og þess bíður hörð fallbarátta en Eyjastúlkur virtust mæta til leiksins með hálfum hug. Margrét Lára skoraði tvö mörk eftir sendingar frá Olgu en Olga kom ÍBV á bragðið í upphafi leiks eftir sendingu frá Margréti Láru. Þetta var fjórði sigur ÍBV í röð en þær eru enn fimm stigum á eftir Valsliðinu í baráttunni um titilinn. Valskonur á sigurbraut Valskonur óðu í færum á Akureyri en fengu þó óvænta mótstöðu frá norðanstúlkum sem náðu að skora tvisvar hjá bestu vörn deildarinnar. Valur vann leikinn að lokum 2–5 og heldur fimm stiga forskoti á toppnum þegar aðeins þrír leikir eru eftir. „Það hefur verið okkar akkiles- arhæll í sumar að vera ekki grimmar fyrir framan markið en það voru þrjú stig í húfi og við náðum þeim. Þetta leit illa út, á tímabili einu marki yfir en við urðu kærulausar og hleyptum þeim inn í leikinn. Við náðum að hrifsa upp um okkur buxurnar og kláruðum leikinn. Við hugsum ekkert um það hversu lítið eða mikið við þurfum til að verða meistarar heldur tökum einn leik í einu. Við eigum næst Fjölni og þar eru þrjú stig sem við ætlum að taka.“ sagði Íris Andrésdóttir eftir leikinn. BLIKASIGUR Í GRAFARVOGINUM Það var hart barist í leik Fjölnis og Breiðabliks í Landsbankadeild kvenna í gær en Blikastúlkur höfðu 1–3 sigur eftir að hafa lent undir eftir aðeins eina mínútu. Fréttablaðið/Róbert Allt hélst óbreytt Fjögur efstu lið Landsbankadeildar kvenna unnu góða sigra í 11. umferð í gærkvöldi og engin breyting varð á stöðunni í deildinni. [ STAÐAN ] LEIKIR GÆRDAGSINS Valur 11 10 1 0 44–6 31 ÍBV 11 8 2 1 56–9 26 KR 11 7 2 2 43–17 23 Breiðablik 11 5 0 6 23–26 15 Þór/KA/KS11 1 5 5 12–36 8 FH 11 2 2 7 10–49 8 Stjarnan 11 1 4 6 11–38 7 Fjölnir 11 1 2 8 6–24 5 MARKAHÆSTAR Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 21 Olga Færseth, ÍBV 15 Hólmfríður Magnúsdóttir, KR 13 Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 12 Guðlaug Jónsdóttir, KR 9 Kristín ýr Bjarnadóttir, Val 9 Dóra Stefánsdóttir, Val 7 Elín Anna Steinarsdóttir, ÍBV 7 Erna Björk Sigurðardóttir, Breiðabliki 7 NÆSTU LEIKIR ÍBV–Þór/KA/KS lau. 14. ág. 16.00 FH–Stjarnan mán. 16. ág. 19.00 Valur–Fjölnir mán. 16. ág. 19.0013 Breiðablik–KR mán. 16. ág. 19.00 Meistaradeild Evrópu: Gerrard var með 2 mörk FÓTBOLTI Enska liðið Liverpool er í góðum málum eftir fyrri leik sinn gegn austurríska liðinu Graz Ak en Liverpool vann leikinn 0–2 sem fram fór í Austurríki. Það var fyrirliðinn Steven Gerrard sem skoraði bæði mörkin. Steven Gerrard skoraði í sitt- hvorum hálfleiknum, fyrra mark- ið kom með glæsilegu langskoti eftir fallega sókn á 23. mínútu og það seinna eftir góðan undirbún- ing frá Djibril Cisse 12 mínútum fyrir leikslok. Gerrard skoraði reyndar þriðja markið sitt skömmu áður en hann kom Liverpool í 0–2 en það mark var dæmt af. Liverpool vann þar með sigur í fyrsta alvöru leik undir stjórn Rafels Benitez en Spánverjinn lét Michael Owen dúsa á bekknum allan tímann sem þykir auka líkurnar á að Owen verði seldur til Real Madrid. Ef Owen hefði spilað leikinn í Austurríki í gær þá hefði Real Madrid ekki getað notað hann í Evrópukeppninni seinna í vetur. Milan Baros og Djibril Cisse léku saman í framlínunni og fengu báðir nokkur góð færi til að skora í leiknum. Benitez var ánægður með leikinn. „Við vorum mjög sterkir varnarlega og áttum einnig góða kafla í sókninni. Það var mjög mikilvægt fyrir okkur að ná góðum tökum á leiknum frá byrj- un,“ sagði Benitez eftir leikinn. Seinni leikur liðanna fer fram á Anfield eftir tvær vikur og það verður að teljast mjög ólíklegt að leikmenn Liverpool glutri niður tveggja marka forskoti. Graz AZ verður að skora þrjú mörk og til þess þarf það kraftaverk. 0–1 Olga Færseth 9. 0–2 Margrét Lára Viðarsdóttir 31. 0–3 Margrét Lára Viðarsdóttir 52. BEST Á VELLINUM Rachel Kruze ÍBV TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 2–17 (2–9) Horn 0–10 Aukaspyrnur fengnar 10–6 Rangstöður 1–2 GÓÐAR Nanna Rut Jónsdóttir Stjörnunni Erna Birgisdóttir Stjörnunni Rachel Kruze ÍBV Margrét Lára Viðarsdóttir ÍBV Olga Færseth ÍBV Samantha Britton ÍBV 0-3 STJARNAN ÍBV 1–0 Rúna Sif Stefánsdóttir 1. 1–1 Erna Björk Sigurðardóttir 24. 1–2 Erna Björk Sigurðardóttir 25. 1–3 Sandra Sif Stefánsdóttir 52. BEST Á VELLINUM Erna Björk Sigurðardóttir Breiðabliki TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 8–20 (4–8) Horn 2–8 Aukaspyrnur fengnar 17–5 Rangstöður 7–3 GÓÐAR Guðný Jónsdóttir Fjölni Andrea Rowe Fjölni Rúna Sif Stefánsdóttir Fjölni Kristrún Kristjánsdóttir Fjölni Erna Björk Sigurardóttir Breiðabliki Hildur Sævarsdóttir Breiðabliki Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir Breiðabliki Hjördís Þorsteinsdóttir Breiðabliki Greta Mjöll Samúelsdóttir Breiðabliki 1-3 FJÖLNIR BREIÐABLIK 1–0 Ratka Zivkovic 21. 2–0 Hólmfríður Magnúsdóttir 45. 3–0 Guðlaug Jónsdóttir 65. 4–0 Ratka Zivkovic 66. 4–1 Sigríður Guðmundsdóttir 87. BEST Á VELLINUM Ratka Zivkovic KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 37–6 (19–4) Horn 16–1 Aukaspyrnur fengnar 14–15 Rangstöður 5–0 MJÖG GÓÐAR Ratka Zivkovic KR Hólmfríður Magnúsdóttir KR GÓÐAR Edda Garðarsdóttir KR Katrín Ómarsdóttir KR Sif Atladóttir KR Kristín Sigurðardóttir FH Sigríður Guðmundsdóttir FH Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir FH Leikurinn var skotspónn þeirra félaga í 70 mínútum á sjónvarpsstöðinni Popp tíví þegar Auðunn Blöndal hljóp inn á völlinn og sparkaði boltanum út af þegar leikurinn var í fullum gangi. Leikmenn liðanna létu þó eins og ekkert hefði í skorist, dómarinn dæmdi uppkast og leikurinn hélt áfram. 4-1 KR FH 0–1 Katrín Jónsdóttir 11. 0–2 Rakel Logadóttir 26. 0–3 Laufey Ólafsdóttir 44. 1–3 Laufey Björnsdóttir 61. 2–3 Telma Ýr Unnsteinsdóttir 69. 2–4 Dóra Stefánsdóttir 86. 2–5 Kristín Ýr Bjarnadóttir 88. BEST Á VELLINUM Dóra Stefánsdóttir Val TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 2–34 (2–20) Horn 1–8 Aukaspyrnur fengnar 11–13 Rangstöður 1–3 MJÖG GÓÐAR Dóra Stefánsdóttir Val GÓÐAR Sandra Sigurðardóttir Þór/KA/KS Telma Ýr Unnsteinsdóttir Þór/KA/KS Rakel Logadóttir Val Dóra María Lárusdóttir Val Kristín Ýr Bjarnadóttir Val 2-5 ÞÓR/KA/KS VALUR LANDSBANKADEILD KVENNA LEIKIR GÆRDAGSINS LANDSBANKADEILD KVENNA GLÆSIMARK FRÁ GERRARD Fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, sést hér skora annað tveggja marka sinna gegn Graz AK í forkeppni meistaradeildar Evrópu í gær. Íslenska handboltalandsliðið hefur leik á Ólympíuleikunum á laugardaginn: Strákarnir eru komnir til Aþenu HANDBOLTI Íslenska handbolta- landsliðið er komið til Aþenu þar sem „strákarnir okkar“ hefja leik gegn heimsmeisturum Króata á laugardaginn. Það er mjög heitt í Aþenu og því munu þeir nota dagana fram að leik til að venjast loftslaginu. Íþróttafólk allstaðar að úr heim- inum streymir nú til Aþenuborgar þar sem Ólympíuleikarnir verða settir með mikilli viðhöfn á föstu- dagskvöldið. Fréttablaðið er með sína menn á staðnum sem koma til með að senda fréttir heim af gangi mála en þetta er í fyrsta sinn í 12 ár sem íslenska handboltalandsliðið er með á leikunum. LENTIR Í AÞENU Íslensku strákarnir í handboltalandsliðinu sjást hér við komuna til Aþenu þar sem þeir spila sinn fyrsta leik á laugardaginn. Fréttablaðið/Teitur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.