Tíminn - 09.03.1973, Síða 5
Föstudagur 9. marz 1973
TÍMINN
5
Fóstra óskast
Fóstru vantar að dagheimili Kleppsspital-
ans.
Nánari upplýsingar hjá forstööukonu Kleppsspitalans,
slmi 38160.
Reykjavik, 7. marz 1973
Sknfstofa rikisspítalanna.
Um klukkan þrjú á miövikudaginn varð vart viö eld I yfirgefnum sumarbústaö, sem stendur skammt
frá Eddubæ viö EUiöaár. Slökkviliöið i Reykjavik var kallað á staöinn, og sendi m.a. tankbfi meö vatn á
staðinn. Ljósmyndari Timans G.E. tók þessa mynd, þegar slökkviliösmenn voru aö slökkva I bústaön-
YFIR 200 REYKVÍKINGAR
FENGU VIÐURKENNINGU
FYRIR ÖRUGGAN AKSTUR
AÐALFUNDUR klúbbsins
öruggur akstur I Reykjavlk var
haldinn um siðustu helgi. Á þess-
um fundi voru afhent 225 viöur-
kenningar- og verölaunamerki
Samvinnutrygginga 1972 fyrir
öruggan akstur. 10 fengu viöur-
kenningu fyrir 20 ára öruggan
akstur, 68 fyrir 10 ára akstur og
145 fyrir 5 ára öruggan akstur.
Á fundinum flutti Árni Þór
Eymundsson fulltrúi erindi um
umferðarslys á Islandi og Stefán
Jasonarson frá Vorsabæ,
formaður landsamtaka klúbb-
anna, talaði um klúbbana og um-
ferðaröryggið.
Á annað hundrað manns sóttu
þennan fund og stóðu umr. um
ýmis rriálefni, er varða umferðar-
öryggi og fleira langt fram á nótt.
Samþykktar voru allmargar til-
lögur og voru þessar helztar:
Aðalfundur klúbbsins öruggur
akstur i Reykjavi; haldinn að
Hótel Borg fimmtudaginn 1. marz
1973,skorar á dómsmálaráðherra
að gera nú þegar ráðstafanir til
að efla starfsgrundvöll og starf-
semi Umferðarráðs.
1 þessu sambandi bendir fund-
urinn á og ítrekar ályktun siðasta
aðalfundar Samvinnutrygginga
um, að gert sé ráð fyrir þvi við
ákvörðun iðgjalda af bifreiða-
tryggingum, að t.d. 1% þeirra
gangi til Umferðarráðs.
Þá vill fundurinn einnig vekja
athygli dómsmálaráðherra á
nauðsyn þess, að lágmarksupp-
hæðir lögboðinna ábyrgðartrygg-
inga ökutækja séu hækkaðar til
samræmis við þær miklu verð-
lagsbreytingar, sem orðið hafa i
landinu siðan 1970, að þessar
upphæðir voru siðast ákvarðaðar,
enda eru þegar komin i ljós
allmörg tjónsatvik, þar sem
tryggingarupphæðin hrekkur
ekki til og eigendur bifreiða verða
sjálfir að greiða það, sem
umfram er.
Þá vill aðalfundurinn ennfrem-
ur koma á framfæri við hæstvirt-
an dómsmálaráðherra og aðra
forráðamenn umferðarmála
eftirfarandi:
1. Fundurinn telur, að þörf sé
skýrari ákvæða um notkun ak-
reina, svo og um framúrakstur og
staðsetningu ökutækja i umferð-
inni.
2. Fundurinn leggur til, að tekin
verði svo fljótt sem mögulegt er
afstaða til þess, hvort taka eigi
hér upp hið svo nefnda punkta-
kerfi.
3. Fundurinn bendir á nauðsyn
þess, að sett séu ákvæði, sem
banni, að börn séu höfð sem
farþegar i framsæti bifreiða,
nema hægt sé að hafa um þau
öryggisbelti.
4. Fundurinn telur æskilegt, að
sett verði inn i reglugerð um bún-
að öryggisbelta i bifreiðum, að
notuð verði eingöngu rúllubelti.
5. Fundurinn álitur mikilvægt
að gildistimi bráðabirgðaöku-
skirteina verði framlengdur um 2
ár.
6. Fundurinn vill benda á, að
breytinga er þörf á framkvæmd
rannsókna á umferðarslysum.
Hið tvöfalda kerfi, sem notað er i
dag, er að mestu óþarft og of
kostnaðarsamt. Sá háttur verði
tekinn upp að ljúka sem flestum
árekstrarmálum þegar á staðn-
um með vettvangsrannsókn og it-
arlegri skýrslutöku af aðilum og
tiltækum vitnum sem látin verði
staðfesta skýrslur sina með
undirskriftum þegar eftir að þær
hafa verið lesnar fyrir þeim. Ekki
fari önnur mál til framhaldsrann-
sóknar en þau, sem teljist meiri
háttar tjón eða þegar um meiðsli
á fólki er að ræða.
1 framhaldi af þessu verði sá
háttur tekinn upp um land allt, að
minni háttar umferðarslys verði
afgreidd með lögreglustjórasátt,
en ekki hjá sakadómi, eins og nú
er gert hér i Reykjavik.
Aðalfundur klúbbsins öruggur
akstur I Reykjavik, haldinn að
Hótel Borg fimmtudaginn 1. marz
1973, tekur fyrir sitt leyti eindreg-
ið undir þær opinberu óskir fjöl-
margra einstaklinga og félaga-
samtaka, að hætt verði við fyrir-
hugaa þjóðhátið á Þingvöllum
1974, i tilefni af 1100 ára búsetu i
landinu.
Til viðbótar þeim almennu
rökum, sem hafa komið til stuðn-
ings þessu viðhorfi — svo sem
Vestmannaeyjahamfarirnar,
óhemjulegur tilkostnaður I marg-
háttuðum efnahagsvanda o.fl. —-
bendir fundurinn sérstaklega á þá
slysahættu, þ.m.t. umferðar-
slysahættu, sem búast má við, að
þjóðhátiðarhald á Þingvöllum
hljóti að hafa i för með sér, miðað
við ófagra reynslu af almennu
samkomuhaldi landsmanna að
undanförnu.
Ennfremur kemur til sem rök
gegn umtöluðu þjóðhátiðarhaldi
mikil hætta á örtröð og skaðleg-
um landspjöllum á Þingvöllum,
sem frá landverndarsjónarmiði
ber að forðast.
Þar sem ekki verður séð, að
umferðaröryggis sé að neinu get-
ið i frumvarpi þvi til laga um
grunnskóla, sem nú liggur fyrir
alþingi, hvorki i kaflanum um
námsefni né heldur atkvæðis-
orðaskrá, leyfir aðalfundur
klúbbsins öruggur akstur,
Reykjavik 1973, sér að spyrjast
fyrir um það hjá hæstvirtum
menntamálaráðherra, hvað
koma eigi i stað gildandi lands-
laga er kveða á um umferðar-
fræðslu I skólum sem skyldu-
námsgrein.
Þar sem vitað er, að
fyrirkomulag ökukennslu I land-
inu er a.m.k. 10 árum eftir timan-
um miöað viö nágrannalönd okk-
ar, beinir aðalfundur klúbbsins
öruggur akstur i Reykjavik þvi
til UMFERÐARRÁÐS, aö það
beiti sér fyrir þvi við viökomandi
ráðamenn, aö gengið veröi til
verks um endurskipulagningu
þeirrar kennslu með það fyrir
augum að stórbæta hana og færa
til samræmingar:
a. innanlands
b. við hliðstæða kennslu erlendis
eftir þvi, sem við getur átt.
Snerti þetta bæði kennslu-
krafta, kennslutæki, útbúnað og
aðstöðu alla.
Fundurinn telur, að ekki nái
nokkurri átt, að slikur herskari
allra mögulegra og ómögulegra
manna, sem nú eru að verki, hafi
ökukennsluna með höndum,
heldur að fáum einum úrvals-
mönnum, vel menntuðum, verði
falin kennslan I þvi skólaformi,
sem bezt þætti tryggja ökuhæfni
og siðferðilega mótun nemend-
anna.
1 stjórn klúbbsins voru kjörnir:
Kristmundur Sigurðsson, yfirlög-
regluþjónn, Grétar Sæmundsson,
rannsóknarlögreglumaður, og
Tryggvi Þorsteinsson, læknir. 1
varastjórn voru kosnir: Kári
Jónasson, blaðamaður, Héðinn
Emilsson, fulltrúi, og Kristinn
Guðjónsson, klæðskeri.
Jarðir til sölu
og ábúðar
i Erigihliðarhreppi i A.-Húnavatnssýslu.
1. Björnólfsstaðirmeð aðliggjandi eyðibýli, Iðstagili. Er 5
km frá Blönduósi. Eign Engihliðarhrepps. Þar er vatns-
aflsstöð til niðurrifs, með nýlegum vélum svo og heim-
taug, um 1 km, með koparþráöum. Getur það selst sér-
staklega.
2. Efrimýrar. 11 km frá Blönduósi. Eign undirritaðs, er
búið hefur þar i 50 ár.
Báðar þessar jarðir eru vel uppbyggðar, steinbyggingum,
bæði fyrir fólk og fénað svo og heygeymslum. Stór verk-
færageymsla á Efrimýrum.
Rafmagn frá rikisveitum á báðum jörðum.
lýsthafendur skili tilboðum sinum til undirritaðs fyrir 10.
april n.k., sem gefur allar nánari upplýsingar. Réttur
áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Efrimýrum 1. marz 1973
Bjarni ó. Frimannsson
oddviti Ehl.hr. Simstöð Efrimýrar.
VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN
Lagerstærðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm
210 - x - 270 sm
Aðrar stærðir.smfiaðar eftir beiðni.
GLUGGASMIÐJAN
Siðumúla 12 - Sími 38220
Tfminn er 40 síður
alla laugardaga og
sunnudaga. —
Askriftarsiminn er
1-23-23
Tilboð óskast
i Payloader 1 3/4 Cubic Yard, vörubifreið
með húsi 4 1/2 tonn og vörubifreið með
sturtum og grjótpalli til sýnis að Grensás-
vegi 9 næstu daga.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri Klapparstig 26 mið-
vikudaginr. 14. marz kl. 11 árdegis.
Sala varnarliðseigna.
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins Framsóknar verð-
ur haldinn sunnudaginn 11. marz i Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu kl. 14,30.
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. önnur mál.
Félagskonur fjölmennið og mætið stund-
vislega.
Sýnið skirteini við innganginn.
Stjórnin.
SÍWIINN ER 24300
Til sölu og sýnis:
Nýtízku 4ra
herb. íbúð
nýleg, um 117 ferm efri hæö, við
Auðbrekku I Kópavogskaupstað.
Sérinngangur, sérhiti og
sérþvottaherbergi. Suðursvalir.
Bilskúrsréttindi.
4ra herb. ibúð
um 110 ferm efri hæð i tvibýlis-
húsi I Kópavogskaupstað.
Geymsluloft yfir hæðinni fylgir.
Stór bilskúr.
Hæð og rishæð
alls 6herb. Ibúð, meö sérinngangi
I tvibýlishúsi I Kópavogskaup-
stað. Ný teppi. Bllskúrsréttindi.
Hæð og rishæð
alls 6 herb. Ibúð i steinhúsi i eldri
borgarhlutanum. Svalir eru á ris-
hæðinni. Laust nú þegar. Utborg-
un má skipta.
Nýtízku 5 herb. íbúð
um 120 ferm i austurborginni.
Svalir og frábært útsýni. Gæti
losnaö fljótlega. Útborgun þarf aö
vera um 2 milljónir, sem má
skipta.
I Hlíðahverfi
3ja og 4ra herb. kjallaraibúðir,
sem eru meö sérinngangi og sér-
hitaveitu. Samþykktar ibúðir.
Við Hraunbæ
nýtizku 3ja herb. ibúð um 85 ferm
á 2. hæð. Svalir.
Við Eiríksgötu
3ja herb. Ibúð um 85 ferm á 1.
hæð. Svalir. Tvöfalt gler I glugg-
um. Bilskúr fylgir.
3ja herb. risíbúð
i Kópavogskaupstað. Otborgun
500.000,-
Við Mánagötu
2ja herb. Ibúð i kjallara, I góöu
ástandi.
Laust verzlunarhúsnæði
um 80 ferm hæð ásamt geymslu I
kjallara i aysturborginni.
Byggja má bilskúr. Hagkvæmt
verð.
Húseignir
af ýmsum stærðum, o.m.fl.
Komið og skoðið
Sjón er sogu ríkari
Nýja fasteignasalan
Laugaveg 12. Hfi*liH:ldild
Utan skrifstofutíma 18546