Tíminn - 09.03.1973, Side 7
Föstudagur 9. marz 1973
TÍMINN
7
Beatrice Reading. — Nei, maöur kippir sér nú ekki upp viö svona veöur. Ég lenti t.d. einu sinni i 40 stiga gaddi á feröalagi i Finnlandi. Þetta er
bara hressandi, en þó væri nú anzi gaman aö sjá til sólar.
FRIÐUR, ÁST OG SÖNGUR
Heimskunn söngkona, Beatrice Reading, skemmtir á Hótel Loftleiðum um þessarmundir
AAín eftirminnilegasta stund var, er ég söng fyrir Elísabetu II. Bretadrottningu
— Nei ég vissi lltiö sem ekkert
um tsland, til skamms tima. En
fyrir nokkru hitti ég íslending i
Stokkhólmi, hinn frábæra
orgelleikara Þóri Baldursson, og
hann sagöi mér heilmikiö um ts-
land. Þaö er kalt hérna, en þaö er
allt I lagi. Ég hef komizt I hann
krappari, hvaö þaö snertir, t.d. i
Finnlandi hér á árunum, þegar
kuldinn var alit aö 40 gráöur C. Æ,
þessar eillfu spurningar um land
og þjóö! Annars get ég sagt þér,
aö ég hef kynnzt tvenns konar ts-
lendingum hér. Það fólk, sem
ég hef hitt hér á hótelinu, bæöi
starfsfólkið og gestirnir, er sér-
staklega elskulegt og skemmti-
legt, en þegar maöur fer svo
„niöur I bæ,” I verzlanir o.s. frv. ,
þá er annaö uppiit á fóiki. Fólkiö
er svo kuldalegt, nánast frosiö á
svipinn.
Þetta sagði hin heimsþekkta
söngkona Beatrice Reading og
hló við, hún er sérlega glaðvær.
Þessi þeldökka, þybbna og bros-
milda söngkona, bandarisk að
uppruna, dvelur um þessar mundii
hér á landi, og skemmtir gestum
af miklum móð á Hótel Loft-
leiðum, fjögur kvöld i viku, frá
fimmtudegi til sunnudags.
Verður hún hér um mánaðar-
tima.
Allmargir hafa raunar þegar
séð Beatrice, þvi hún hóf að
skemmta síðastliðið föstudags-
kvöld, 2. marz. Beatrice Reading
er mjög þekkt, og viðurkennd vitt
um heim, og þá sérstaklega i
Evrópu, þar sem hún hefur verið
búsett i fjöidamörg ár. Segist hún
hafa komið til allra ianda og
skemmt nema Kína. Enda talar
hún fjöldamörg mál meira og
minna, m.a. ensku (sitt
móðurmál), þýzku, frönsku,
spænsku, grisku, portúgölsku, og
eitthvað i tyrknesku, arabisku og
sænsku.
Um þessar mundir er hún
búsett I Sviþjóð og hefur verið þar
I 2 1/2 ár. Aöur hafði hún búið um
14 ára skeið I Sviss. A þessum
langa tima hefur hún aðeins
örfáum sinnum skroppið til
heimalands sins, Bandarikjanna,
og siðast nú fyrir skömmu, þar
er hún skemmti I Las Vegas. Og
hún erá sifelldum ferðum heims-
hornanna á milli til að skemmta
fólki með sinum fagra söng. —
„Beatrice Reading er langbezti
og þekktasti skemmtikraftur,
sem við höfum nokkru sinni
fengið hingað,” sagði Emil Guð-
mundsson móttökustjóri á Hótel
Loftleiðum.
Beatrice Reading er um þessar
mundir önnum kafin við að semja
bók, sem er eins konar sjálfsævi-
saga hennar, en er einkum ætluð
sem kennslubók fyrir unga
skemmtikrafta, — hvernig þeir
eigi að fóta sig I ,,show”-heimin-
um.
— Ég er búin að vera I „show-
bissnessnum” i ein þrjátiu ár og
veit nokkuð, hvaö ég syng i þeim
efnum. Og ég hef orðið aö reyna
margt til að koma mér áfram. Ég
hef fyrir löngu reynt, aö það er
ekki nóg að geta sungið, — maður
þarf að hafa eins konar sálfræði-
þekkingu og mannkærleika til að
bera til þess að geta þóknazt
þessum og þessum áhorfendahóp,
og sjálfri sér, segir Beatrice.
Til marks um, hve mikillar
viröingar Beatrice Reading
nýtur, má nefna, að hún hefur tvi-
vegis sungið fyrirElisabetuBreta-
drottningu, sem hlýtur að teljast
afar mikill heiður. — Það er min
eftirminnilegasta stund sem
söngkona, segir Reading, — þetta
var ólýsanleg reynsla. Og
Reading nefndir einnig marga
ógleymanlega vini og kunningja,
sem hún hefur kynnzt og starfað
með um ævina. Nefnir hún þar
meöal annars Ellu Fitzgerald. Þá
söng hún smátima með Louis
gamla Armstrong — og ekki vil
ég gleyma blessuninni henni
Josephine Baker, en við eigum
það sameiginlegt, að hafa ekki
gefið út eina einustu plötu á okkar
löngu starfsævi.
Þess má þó geta að Reading
hyggst, að lokinni dvöl sinni hér,
halda vestur til Bandarikjanna og
ef til vill hljóðrita þar plötu. Arið
1957 skemmti Reading i Rúss-
landi við sérstaklega góðar við-
tökur. — Það er alveg stórkost-
legt að skemmta Rússum og
einnig óvenjuleg reynsla, segir
hún.
Við spurðum Beatrice Reading
einnig, hvort hún hugsaði
eitthvað um eða skipti sér af
stjórnmálum. — Nei, i guðanna
bænum. Minnstu ekki á stjórnmál
i min eyru, ég hef andstyggð á
þeim. Min einu áhugamál og hug-
sjónir eru friður, ást og söngur
um allan heim. Hátiðlegt, en satt,
segir hún og hlær.
■^—25555
14444
WflW/fí
BILALEIGA
HVERFISGÖTU 103
VW-Semliíerðabifreií-VlV 5 manna-VWs veínvagn
VW9manna-Landrover 7manna
i
Etmer
tœkyberi...
til að eignast hlut í banka.
Nú eru aðeins um 15 milljónir óseldar
af hlutafjáraukningu Samvinnubankans
úr 16 í 100 millj. kr.
Ollum samvinnumönnum er boðið
að eignast hlut.
Vilt þú vera með?
SAMVINNUBANKINN
lnlMMInlMbilLilltdCMlCidCMllidliabdbdMUMUlMKidCMlbdltabdMMUMIfabaMUMbilbJbaM
r*»
ba
‘2 Vestmannaeyingar!
m Steingrlmur Benediktsson
gullsmiöur
hefur fengið aðstöðu í
GULLSMiÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óðinsgötu 7 — Rafhahúsinu
Sími 20-0-32
Trúlofunarhringar
\ Fjölbreytt úrval af gjafavör-
M
ba
r*»
ba
r*»
ba
r*»
ba
r*»
ba
r*»
ba
r*»
bd
babababababababababababababababdbabababab JbJbdb JbdbabababababababababababJbd
r*»
ba
r*»
b«a
r*»
ba
um úrgulli, silf ri, pletti, tini o.fl. £3
M
önnumst viðgerðir á skartgirp- “
b«l
r»»
bd
r*»
ba
m
bd
r*»
bd
r*»
bd
um. —Sendum gegn póstkröfu.
GULLSMÍÐAVERKSTÆÐI
ÓLAFS G. JÓSEFSSONAR
óöfnsgötu 7 — Rafhahúsinu
-Stp.
Hjúkrunarkonur
óskast
Hjúkrunarkonur vantar að Kleppsspital-
anum.
Nánari upplýsingar gefur forstööukonan, simi 38160.
Reykjavik, 7. marz 1973
Sknfstofa ríkisspitalanna.
Auglýsing
Atvinnueflingarsjóður Kópavogs auglýsir
eftir umsóknum um styrki til sérstakra
rannsókna og athugana i nýjum greinum
atvinnurekstrar í Kópavogi.
Nánari upplýsingar verða veittar hjá formanni sjóðsins
Alfhólsvegi 5, Kópavogi, simi 41570.
Umsóknarfrestur til 1. júni 1973.
Stjórn Atvinnueflingarsjóðs Kópavogs.
Fró Ljósmæðraskóla
Islands
Samkvæmt venju hefst kennsla i skólan-
um hinn 1. okt. n.k.
Inntökuskilyrði:
Umsækjendur skulu ekki vera yngri en 20 ára og ekki eldri
en 30 ára, er þeir hefja nám. Undirbúningsmenntun skal
vera gagnfræðapróf eða tilsvarandi skólapróf. Krafist er
góðrar andlegrar og likamlegrar heilbrigði. Heilbrigðis-
ástand verður nánar athugað I skólanum.
Eiginhandar umsókn sendist forstöðumanni skólans I
Fæöingardeild Landspitalans fyrir 15. júni 1973. Umsókn
skal fylgja læknisvottorö um andlega og likamlega heil-
brigöi, aldursvottorð og löggilt eftirrit gagnfræðaprófs.
Umsækjendur eru beðnir að skrifa greinilegt heimilisfang
á umsóknina, og hver sé næsta simstöö við heimili þeirra.
Umsóknareyðublöð fást I skólanum.
Upplýsingar um kjör nemenda:
Ljósmæðraskóli Islands er heimavistarskóli og búa
nemendur i heimavist námstimann.
Nemendur fá laun námstimann. Fyrra námsárið kr.
10.141.-á mánuði og síðara námsárið kr. 14.486,- á mánuði.
Auk þess fá nemar greiddar lögboönar tryggingar og
skólabúning.
Húsnæði ásamt húsbúnaði, fæði, þvotti og rúmfatnaði,
sem Ljósmæöaskólinn lætur nemendum I té, greiða þeir
samkvæmt mati skattstjóra Reykjavikur.
Fæðingardeild Landspitalans, 7. marz
1973.
Skólastjórinn.