Tíminn - 18.03.1973, Síða 11
Sunnudagur 18. marz 1973.
TÍMINN
11
Viö komuna tii Herzognaurach i
Vestur-Þýzkalandi er þetta vega-
skilti eitt þaö fyrsta, sem maöur
sér. Þetta er lika eina samvinn-
an, milii Daller bræöranna, sem
eiga fyrirtækin, sem hægt er aö
sjá í bænum.
frægast iþróttafólk til að ganga i
og jafnframt sýna aö það noti
Adidasskó og ekkert annað, eða
Puma skó og ekkert annað. í
þeim tilfellum er ekkert sparað
og ekkert gefið eftir.
Sumir fá milljónir
fyrir að
ganga i skóm frá þeim
A Olympiuleikunum i Mexikó
1968, er talið að mörg hundruð
„áhugamenn og konur” i öllum
iþróttagreinum, hafi tekið við
peningum, jafnhliða því að taka
við útbúnaði frá fyrirtækjum
þeirra bræðra, að sjálfsögðu að
gjöf. Vitað er með vissu um einn
bandariskan frjálsiþróttamann,
sem fékk 10 þúsund dollara i
kaupbæti með skónum, sem hann
keppti i — og sigraði i — en hann
sá siðan til þess, að i sjónvarps-
viðtölum og á myndatökum sæist
vebhvað margar rendur væru á
skónum, sem hann hefði keppt i.
Þessi barátta þeirra bræðra
gekk svo langt i Bandarikjunum
einum, að Iþróttasamband
áhugamanna, AAAU, tjáði
Adidas og Puma, að ef annað
fyrirtækið yrði uppvist að þvi að
greiða bandariskum áhugamanni
peninga fyrir að nota skó frá þvi,
yrði það dæmt i 25 þús. dollara
sekt.
Hvorugt þeirra hefur borgað
þessa sekt enn i dag — þrátt fyrir
að grunur hafi læðzt að mönnum,
að ekki væri allt á hreinu með
það, þegar bandariska sund-
stjarnan á siðustu Olympiu-
leikum, Mark Spitz, kom fyrir
augu milljóna sjónvarpsáhorf-
enda veifandi einu pari af Adidas
skóm, og greinilega hafi sézt, að
hann vildi láta fólk sjá, að þeir
væru með 3 röndum, þessir sem
hann var með.
Vestur-þýzkur blaðamaður
taldi, að Spitz hefði fengið fyrir
þetta a.m.k. 35 til 45 þúsund doll-
ara, sem hefur verið nokkuð gott
kaup fyrir að hampa einu skópari
i nokkrar minútur.
I Þýzkalandi er fræg sagan af
þvi,þegar einn fimleikamaður,
sem Rudolf hafði borgað u.þ.b. 10
þúsund isl. krónur á mánuði i
„fæðispeninga”, vildi fá meiri
peninga fyrir „mat” og að sýna
Puma skó, og hótaði að skipta yfir
til Adidas, ef hann fengi það ekki.
Rudolf kærði manninn til
Fimleikasambandsins, sem
þegar tók málið fyrir, og dæmdi
hann til að ganga i Puma skóm á
meðan að hann væri i fimleikum,
og að hann fengi ekki hærri
„fæðispeninga”. Sérsamböndin
og jafnvel heildarsamtök iþrótta-
manna hafa nefnilega einnig
verið keypt af þeim bræðrum.
Þetta á jafnt viö fyrir austan tjald
og vestan, enda hefur það komið
mörgum á óvart, hve t.d. Rúss-
arnir klæðast mikið skóm og
búningum frá þessum tveim
fyrirtækjum.
Þrátt fyrir allar greiðslurnar
hefur hagur beggja fyrirtækjann
vaxið geysilega á undanförnum
árum. Talið er, að Adidas
framleiði um 75.000 pör af skóm á
dag i 30 verksmiðjum, sem eru
viðsvegar um heiminn, allt frá
Noregi til Argentinu, og að Puma
framleiði 45 þúsund pör á dag i 9
verksmiðjum, sem eru m.a. stað-
settar i Ástraliu og Nigeriu.
Aætlað er að velta beggja sé
ekki undir 100 milljón dollara og
að þar hafi Adidas heldur
vinninginn, en útgjöldin séu þar
lika öllu meiri. Sem dæmi um
veldið á Adidas má geta 'þess, ab
fyrir skömmu lét fyrirtækið reisa
hótel i Herzogenaurach sem
aðeins er ætlað fyrir iþróttafólk
og aðra gesti fyrirtækisins.
Kostaöi þetta hótel nær 2 milljón-
ir dollara.... Puma hefur ekki
svaraö þessari hótelbyggingu —
a.m.k. ekki enn sem komið er.
Bæjarbúar taka þátt
i striðinu
af engu minni áhuga
Eins og gefur að skilja hafa
bæjarbúar ekki farið varhluta af
striðinu milli þeirra bræðra. Þar
er keppnin ekki siður hörð en úti
i hinum stóra viðskiptaheimi.
Sem dæmi má nefna, að bæði
knattspyrnuliðin i bænum eru
eign Puma og Adidas.... annað er
gert út á vegum Adidas og leikur
þvi að sjálfsögðu i Adidas skóm,
búningum og með auglýsingu að
auki. Hitt er allt i
Puma-klæðnaði, og þegar þau
mætast, er ekkert smáræði um að
vera.
Bæjarbúar skiptasti tvo hópa
hvað viðkemur fylgi við fyrir-
tækin. Sagt er að um tiam hefði
það veriðbannaðað gifta sig inn i
fjölskyldu, sem vann hjá hinu
fyrirtækinu og svona mætti lengi
telja.
Börnin i bænum taka þegar
afstöðu með eða á móti, allt eftir
þvi hjá hvoru fyrirtækinu fjöl-
skyldufaðirinn starfar. Er harkan
i þeim svo mikil að sem dæmi
hefur það verið nefnt, að þegar
drengur einn 10 ára gamall hafi
fundið út, að einhver hafi tekið
Puma skóna hans, þegar hann
var að vaða i ánni,og látið Adidas
skó i staðinn, hafi hann heldur
gengið berfættur yfir 10 km leið
heim til sín, en að fara í þá.
Það er lfka sagt, að börnin, sem
fæðist i Herzogenaurach, segi
Adidas eða Puma — eftir þvi hvar
foreldrar þeirri vinna — áður en
þau geti sagt pabbi eða mamma.
Það er þó trúlega eins og hver
önnur sögusögn, eins og margt
annað, sem hefur verið grafið upp
og sagt i sambandi við þetta ein-
stæða fjölskyldustrið.
En þeir, sem telja sig þekkja
bezt til málanna, segja, að þetta
geti vel verið rétt — ekkert komi
þeim á óvart, þegar þeir bræður,
sem bráðum halda upp á 25 ára
,,óvináttuafmælið’,’ eigi i hlut.
Þessir menn bæta gjarnan við, að
þeir bræður séu ekki aðeins tveir
af mestu kaupsýslumönnum
heims, heldur og tveir af mestu
þverhausum heims.
Nú eru mennirnir báðir
farnir að eldast en þrátt fyrir það
hefur hvorugur þeirra áhuga á að
sættast. Og þótt annar þeirra falli
frá, mun striðið halda áfram, þvi
að synir þeirra, sem nú hafa tekið
við yfirstjórn fyrirtækjanna,
munu halda uppi merkjum þeirra
á alla lund,...þó fyrst og fremst
gömlu óvináttunni, þvi að þeir
tala heldur ekki saman frændurn-
ir... nema þá i réttarsalnum, þar
sem þeir nánast hrópa hvor á
annan, eins og gömlu mennirnir
feður þeirra hafa gert i nær 25 ár.
(—klp— tók saman úr nokkrum
erlendum greinum, nýjum og
gömluin)
(y Bílaperur — Fjölbreytt úrval
m
.Asymmetriskar”
I framljósaperur
Pulsuperur
„Halogen”
framljósaperur.
Perur
i mælaborðl
o.fl.
[ök*<*&*i:d'\
1 iK!*yv&.esT<mcí1
„Duolux” *”jý
framljósaperur | P«la perur
Heildsala — Smásala
ARMULA 7 - SIMI 84450
Vöruflutningar
i lofti eru
audveldasta
leióin
Flugfélagið býður beztu þjónustu í vöruflutningum
innanlands og milli landa. Fé, tími og fyrirhöfn
sparast, ef beitt er fullkomnustu flutningatækni
nútímans. Sendið vöruna með Flugfélaginu: ódýrt,
fljótt og fyrirhafnarlaust.
FLUCFÉLAC ÍSLANDS
ÞJÓNUSTA HRAÐI ÞÆGINDI