Fréttablaðið - 13.08.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 88 stk.
Keypt & selt 24 stk.
Þjónusta 37 stk.
Heilsa 5 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 9 stk.
Tómstundir & ferðir 16 stk.
Húsnæði 31 stk.
Atvinna 41 stk.
Tilkynningar 9 stk.
Ávextir í drykki og salöt
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er föstudagurinn 13. ágúst,
226. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.13 13.32 21.50
Akureyri 4.46 13.17 21.46
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Lazy Daisy-plattinn minn er tvímælalaust
mitt leynivopn í eldhúsinu en þetta er svona
kringlóttur viðarplatti á snúningshjóli,“
segir Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona. „Ég
er ógeðslega léleg í eldhúsinu en alveg
mögnuð í uppvaskinu, það er mín sérgrein.
Plattann nota ég mikið og hann auðveldar
heilmikið þegar kemur að uppvaskinu.
Þegar ég er með stóran morgunverð raða
ég beint á plattann hvort tveggja brauðinu
og öllu álegginu og þarf því ekkert að nota
aðra diska undir það. Plattinn er líka hent-
ugur því það þarf ekkert að vera að bera
matinn á milli heldur er plattanum bara
snúið og alir fá sér af honum sem við borð-
ið sitja,“ segir hún alsæl með leynivopnið.
Hrefna segist vera glötuð þegar að elda-
mennskunni kemur en vonast nú til að sá
hæfileiki fari að koma. „Ég á bara svo góð-
an mann sem kann að elda rosalega góðan
mat. Það hefur því í rauninni lítið reynt á
hvað ég get,“ segir hún og hlær. „En það eru
góð skipti á heimilinu, hann sér um matinn
og ég sé um uppvaskið. Þar sem ég er nú
komin með tvö börn þá gæti nú verið að
eitthvað fari að eflast í þessu hjá mér og
móðureðlið fari að segja til sín og kalli á að
fara að búa til heimagerða matinn hennar
mömmu,“ segir hún.
Hrefna hefur í nógu að snúast í móður-
hlutverkinu en hún á tvo stráka sem eru
tveggja ára og fjögurra mánaða. Ásamt því
vinnur hún að nýju barnaefni ásamt Lindu
Ásgeirsdóttur. „Við erum að fara að gefa
það út í október en það er unnið í samstarfi
við Húsdýragarðinn og er ætlað fyrir
yngstu kynslóðina. Þetta er myndband þar
sem dýrin eru kynnt og er öll tónlistin í því
endurgerð af gömlum leikskóla- og vísna-
lögum og allt er þetta sett í barnvænan bún-
ing. Eftir að ég átti fyrri strákinn minn sá
ég hvað mikið vantaði af uppbyggilegu ís-
lensku barnaefni fyrir þau allra yngstu. Ég
vona því að þetta framtak sé kærkomið á
markaðinn,“ segir hún.
halldora@frettabladid.is
Hrefna Hallgrímsdóttir:
Lazy Daisy-platti leynivopn
tilbod@frettabladid.is
Glæsilegur sumarmarkaður
stendur nú yfir að Suðurlands-
braut 8 sem er við hliðina á
Fálkahúsinu. Þar er hægt að velja
úr hundruð-
um titla af
tónlist bæði
á DVD og
geisladiskum.
Þar er tónlist
eftir til dæm-
is U2, David
Bowie, Metallicu og Barböru
Streisand. Markaðurinn er opinn
alla daga vikunnar frá kl. 10 til 19
og stendur yfir til sunnudagsins
15. ágúst. Og auðvitað er öll tón-
listin á frábæru tilboðsverði.
Málning á húsið er á góðu til-
boði í Múrbúðinni. Tíu lítra akríl-
útimálning kostar 2.987 krónur,
2,5 lítra Deka Tex þekjandi viðar-
vörn 1.890 krónur og tíu lítra
akríl-innimálning með gljástigi sjö
er á 2.695 krónur. Einnig er hægt
að fjárfesta í fimm lítra Collstop,
gagnsærri viðarvörn, á 3.454
krónur og tíu lítra Deka Tex þak-
málningu á 5.260 krónur. Múr-
búðin stendur við það að úti-
málningin sé þar um 40 prósent-
um ódýrari en á sértilboð helstu
samkeppnisaðilanna. Þetta máln-
ingartilboð gildir eitthvað fram í
mánuðinn og ekki er búið að
ákveða dagsetningu á tilboðslok-
um. Múrbúðin er til húsa að
Smiðjuvegi 72 í Kópavogi.
Húsgagnaverslunin Öndvegi
í Síðumúla er með sannkallað
öndvegistilboð þessa dagana. Þar
er hægt að gera góð kaup því 15-
70% afsláttur er af öllum hús-
gögnum, hvort sem um er að
ræða mublur í fínu stofuna eða
vinnuherbergið, svefnherbergið
eða sumarbústaðinn. Þeir sem
eru í innkaupahugleiðingum ættu
að bregðast fljótt við því útsalan
stendur aðeins í fáa daga enn.
„Plattann nota ég mikið og þegar ég er með stóran morgunverð þá raða ég beint á hann hvort tveggja
brauðinu og öllu álegginu og þarf því ekkert að nota aðra diska undir það,“ segir Hrefna.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í TILBOÐUM
Suzuki GSX 600 F ‘89 til sölu, verð 200
þús. Uppl. í s. 697 6561.
Til sölu vatnasleði SEA-doo Bombarder
GSX 800 cc, árg. ‘98, verð 450 þús.
Uppl. í s. 896 1947.
Nýr Palomino Yearling 103 skráður
15/07/04 10 fet + geymslukassi. Bekk
á móti borðkrók. Kostar 1.390 þús.
Fæst á 1.150 þús. með nauðsynl.
aukahl. Uppl. í s. 893 2878.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Í dag eru 1.614
smáauglýsingar á
www.visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M