Tíminn - 24.03.1973, Qupperneq 27
Laugardagur 24. marz 1973.
TÍMINN
27
O Verkefni
sveitabæi eru varla til. Að visu
hefur tekizt að varðveita nokkur
stórbýli s.s. Glaumbæ i Skaga-
firði, Grenjaðarstað og Bustafell.
En sveitabæir, sem stór hluti nú-
lifandi manna fæddist og ólst upp
i, eru minningin ein.
Ég held, að svona snögg um-
skipti séu óeðlileg. Það hlýtur að
vera saknaðarefni, að ekki sé
sagt menningarsögulegt vand-
ræðamál, — þegar þjóðin, sem
vill vera og er menningarþjóð,
heggur svo hlifðarlaust á tengsl
sin við íortiðina.
Hluti íslenzks menn-
ngarstarfs
Islendingar telja sig með réttu i
hópi menningarþjóða og hafa
jafnvel stært sig af söguást sinni
og þjóðmenningaráhuga. Islend-
ingar telja sér áreiðanlega skylt
að rækja sögu sina og fara vel
með menningararf sinn, enda er
það talin litilmótleg þjóð, sem
vanrækir slikt.
En þá hljóta menn að spyrja:
„Hvað er þjóðarsaga og hver er
menningararfur þjóðar?”
Þeirri spurningu treysti ég mér
ekki til að svara svo viðhlítandi
sé, enda brestur mig til þess
þekkingu.
Hins vegar er ég á þeirri
skoðun, að tslendingum hafi hætt
til þess að hafa nokkuð einhæfan
skilning á þessum atriðum.
Islenzk bókmenning og önnur
orðlist á sér iangan aldur og
hefur lögum verið talin blómi
islenzkrar menningar og aðal-
framlag Islendinga til heims-
menningarinnar — eins og menn
segja svo spaklega.
Sjálfsagt er mikið til i þessu.
Hitt er annað mál, að þessi
skoðun er nokkuð yfirborðs-
kennd. Hún hefur m.a. viðhaldið
alltof einhæfum skilningi Islend-
inga á menningarsögu og þvi,
hver menningararfur þjóðar sé.
Sá misskilningur er ærið út-
breiddur, að menningararfur
islenzku þjóðarinnar sé allur á
bókum og i orðsins list — þ.ám.
að sjálfsögðu i hvers kyns
þjóðsögum og alþýðukveðskap.
Aðrir þættir þjóðmenningar hafa
verið vanmetnir. Orðlist hefur
verið hafin til skýjanna, og gáfur
og hæfileikar manna hafa mjög
verið vegnir á vog bökmennta
og skáldskapar. Haft er eftir
merkum Islendingi, að „tungan
ein tengi þjóðina við fortiðina”.
Þessi orð endurspegla betur en
flest annað viðhorf Islendinga til
þjóðmenningararfs sins.
Það er auðvitað rétt, að tungan
tengir okkur fortiðinni.
En það er ekki rétt, að tungan
ein tengi okkur við fortiðina.
Tungan og bókmenntirnar eru
ekki okkar eini menningararfur.
Að þessu leyti gildir hið sama
um okkur sem aðrar þjóðir.
Menningararfur Islendinga er
fjölbreytt safn hvers kyns and-
legrar iöju og verkmenntar i 1100
ár.
Við erum ekki i neinum vafa
um það, að islenzk bókmennta-
saga sé órjúfandi heild, — i
islenzkum bókmenntum er sam-
hengi, sem spannar fortið og nút-
ið. Þannig mun það einnig vera
um aðra þætti islenzks menn-
ingararfs. 1 sögu islenzkrar
byggingarlistar, t.d., er án efa
svipað samhengi og i bók-
menntasögunni. Hins vegar hafa
færri fjallað um sögu byggingar-
listarinnar en bókmenntanna. Og
vist, er að almenn þekking og
áhugi á sögu byggingarlistar er
minni yfirleitt en á bók-
menntunum.
Ekki vil ég ráða til þess, að
dregið verði úr áhuga al-
mennings og fræðimanna á bók-
menntasögu. En að skaðlausu
mætti auka áhuga landsmanna á
sögu innlendrar byggingarlistar
og efla skilnings fólks á menn-
ingargildi hennar. Ég held
a.m.k., að það ætti að vera tiltölu-
lega auðvelt verk að fá alla hugs-
andi menn til að viðurkenna að
hús og hýbýli og hvers kyns
mannvirki eru snar þáttur i
mannlegu samfélagi. Engum
getur dulizt, að hús og önnur
mannvirki eru óhjákvæmilegur
hluti mannlegs umhverfis. Eins
og Ijóð og sögur eru hugsmiðar
eru húsin ávöxtur mannlegrar
hugsunar og handverka.
Einhver komst svo að orði ný-
lega, að eins mætti „lesa hús”
eins og að lesa ljóð. Auðvitað er
þetta hverju orði sannara. Hús
geta vissulega vakið stemningu
eða sagt sögu.
Og vist er, að við Islendingar
eigum mörg hús, sem vekja hug-
hrif og segja mikla sögu. Slik hús
er hluti af menningararfi þjóðar-
innar. Og við hljótum að fara vel
með allan okkar menningararf,
hvort heldur sem hann er fólginn i
skáldskap eða húsagerð.
Evrópsk hreyfing
Ég vil að lokum geta þess, að
mynduð hefur verið alþjóðleg
byggingarverndarhreyfing á
vegum Evrópuráðsins.
Þessi hreyfing hefur i undir-
búningi mjög viðtækar aðgerðir i
sambandi við kynningu og upp-
lýsingamiðlun um viðhald og
verndun fornra og sögufrægra
mannvirkja. Fyrirhugað er, að
sérstök bvggingarverndarherferð
verði skipulögð i öllum aðildar-
löndum Evrópuráðsins næstu
þrjú ár, þ.e. 1973, ’74 og ’75.
Ætlunin er, að aðalstarfsemi
þessarar hreyfingar verði á árinu
1975, enda mun það verða nefnt
„byggingarverndarárið 1975” —
sbr. náttúruverndarárið 1970.
Ég tel ekki áhorfsmál, að þessi
hreyfing nái til Islands. Við erum
aðilar að Evrópuráðinu, og ég tel
það skyldu okkar að taka þátt i
þeirri viðtæku menningarsam-
vinnu, sem Evrópuráðið stendur
fyrir á ýmsum sviðum.
Framleiðslusam-
vinnufélag rafvirkja
óskar að taka á leigu 100-150 ferm. iðnað-
arhúsnæði á jarðhæð undir léttan þjón-
ustuiðnað.
Upplýsingar i simum 20018 og 85394.
® Á víðavangi
ára'ngri af útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar. Hann stóð hins
vegar upp á Alþingi þegar
Landhelgisgæzlan hafði gert,
góða lotu og klippt aftan úr
fjölmörgum landhelgisbrjót-
um. til þess að segja með
miklum áhyggjusvip, að nú
þegar farið væri verulega að
verja islenzku landhelgina,
hefði skapazt alvarlegt hættu-
ástand. — TK.
@ Útlönd
miklum breytingum á einu
eða tveimur árum. Þeir eru
hættir að lita hina hvitu full-
trúa i héraðinu sem viðunandi
tákn rikisvaldsins. Þeir telja
skæruliðana hins vegar vera
að berjast fyrir rétti inn-
fæddra manna i Rhodesiu, en
litaekki á þá sem óvelkomna
friðarspilla. Skotið er yfir þá
skjólshúsi og þeim er gefið að
borða. Oft er þeim leynt þann-
ig, að þeim er leyft að vinna á
ökrunum við hlið heima-
manna, og engin leið er að
þekkja þá úr.
Austfirðingar
Fundur um byggðamál i Valaskjálf sunnudaginn 1. april. Hefst
fundurinn kl. 14. með ávarpi formanns SUF. Framsöguerindi
flytja Eggert Jóhannesson, Jóhann Antonsson, Ólafur Ragnar
Grimsson og Magnús Einarsson. Ráðstefnustjóri verður Jón
Kristjánsson. Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn Suf.
FUF-félagsvist
Félagsvist verður haldin að Hótel Sögu 1. april kl. 20:30. Stjórn-
andi Sigurður Sigfússon.
__________________________________________J
Afsalsbréf innfærð 12/3— 16/3 1973
Hafsteinn Filippusson selur Árna
Stefánssyni hluta i Sæviðarsundi
13.
Guðlaugur Magnússon selur
Guðm. Ingva Jóhannss. hluta i
Ljósvallag. 26.
Filadelfiusöfnuðurinn selur
Ragnhildi Jónsd. og Óskari S.
Jónss. hluta i Njálsg. 49.
Gunnar Kárason selur Herði
Johannss. hluta i Hraunbæ 104.
Óskar Þorgeirsson selur Guðrúnu
Jónsd. hluta i Háaleitisbr. 39.
Anna Teitsd. o. fl. selja Sveinbirni
Jónssyni hluta i Garðastræti 21.
Þuriður A. Jóhannesd. selur
Helga Magnússyni hluta i Kapla-
skjólsv. 29.
Magnús Sigurðsson selur
Hafsteini Þórðarsyni hluta i
Barmahlið 12.
Sesselja Runólfsson selur Gylfa
Kristinss. húseignina Sogaveg
186.
Pétur Sumarliðason og Guðrún
Gislad. o. fl. selja Guðna Þórðar-
syni fasteignina Bankastræti 9.
Byggingafélagið Afl s.f. selur
Arnari Guðjónssyni hluta i
Vesturbergi 70.
Guðmundur Þengilsson selur
Árna Þórðarsyni hluta i Vestur-
bergi 78.
Gústaf E. Pálsson og Tómas Vig-
fússon selja borgarsjóði
landspildu úr landinu Hólar á
Skildinganesi v/Skerjafjörð.
Sigrún Sigurðardóttir selur Guð-
mundir Halldórss. hluta i Skarp-
héðinsg. 18.
Ragnheiður Hlynsdóttir selur
Hlyni Sigtryggss. hluta i Fells-
múla 9.
Byggingafél. Afl s.f. selur Gisla
Sigurðssyni hluta i Hraunbæ 102 C
Ólafur Beinteinsson, o.fl. selja
Skiparadió h.f. fasteigninni
Vesturg. 26 B.
Byggingafél. Afl. s.f. selur Sturlu
Þórðarsyni hluta i Hraunbæ 102 C
Sjóvátryggingafél. lsl. h.f. selur
Rikisútvarpinu hluta f Laugavegi
176.
Einar Arnalds selur Sigurði Arn-
alds hluta i Túngötu 5.
Bústaður s.f. selur Guðrúnu Lilju
Ingvarsd. hluta i Dvergabakka 2.
Atli Eiriksson s.f. selur Geir
Oddgeirssyni hluta i Leirubakka
12.
Byggingafél. Afl s.f. selur
Ragnari Guðmundss. hluta i
Vesturl>ergi 72.
Haukur Pétursson h.f. selur
Guðrúnu Erli Jónasd. hluta i
Dvergabakka 36.
Byggingafél. Afl. s.f. selur
Bjarna Guðjónss. hluta i Vestur-
bergi 70.
Ingvar Agnarsson, Hábraut 4,
Kóp. o. fl. selja Gúmmivinnu-
stofunni hf. hluta i Skipholti 35.
Byggingafél. Afl s.f. selur Guðriði
Pálsd. og Kristbirni Þorkelssyni
hluta i Vesturbergi 72.
Guðný Guðjónsd. o. fl. selja Höllu
FASTEIGN AVAL ■
Simar 2-29-11 og 1-92-55
■
Fasteignakaupendur
Vanti yður fasteign, þá hafið ■
samband við skrifstofu vora. \
Fasteignir af öllum stærðum ■
og gerðum, fullbúnar og i ■
smiðum.
Fasteignaseljendur
Vinsamlegast látið skrá fast- £
eignir yðar hjá okkur.
Aherzla lögð á góða og ■
örugga þjónustu. Leitið upp- \
lýsir.ga um verð og skilmála. ■
Makaskiptasamningar oft “
mögulegir.
önnumst hvers konar samn- ■
ingsgerð fyrir yður.
■
Jón Arason hdl.
Málflutningur, fasteignasala ■
Hauksd. og Guðmundi Ingólfssyni
hluta i Grettisgötu 31.
Byggingafél. Afl s.f. selur
Guðlaugu Sigmarsd. hluta i
Vesturbergi 70.
Jón Guðjónsson o. fl. selja Einari
K. Sigurgeirss. hluta i Grettisgötu
31 A.
Jón Guðjónsson o. fl. selja Olinu
Steinsdórsd. hluta i Grettisg. 31.
Bústaður s.f. selur Gunnlaugi
Helgasyni hluta i Reynimel 76.
Simplicity
smóin
eru íyrir alla í
öllum stæróum
Það getur verið erfitt að fá fatn-
að nákvæmlega I yðar stærð, en
Simplicity sniðin leysa yandann,
— þæ eru fötin þegar sniðin
eftir yðar höfði.
Vörumerkaðurinnhf.
ARMÚIA IA. SlMI ö6113. REVKJflVIK
BLÓMASALUR
VÍKINGASALUR
KVÖLDVERÐUR FRA KL. 7.
BORÐAPANTANIR I SlMUM
22321 22322.
BORÐUM HALDIÐ TIL KL. 9.