Tíminn - 31.03.1973, Qupperneq 18
18
TÍMINN
Laugardagur 31. marz 1973.
hann með mikilli varfærni og var
stolt á svip. Fyrir framan
háaltarið var rautt ljós á lampa,
en fyrir innan kirkjubekkinn sá
Caddie svartklæddan mann, sem
las i bók. Hún læddist á tánum til
gamallar konu, sem ræsti
kirkjuna. Hún hélt á litlum kústi
og kassa með kertastubbum.
Caddie læddist tii hennar og benti
á manninn. II prcte? spurði
Caddie i hálfum hljóöum. Si, si,
il prete, Padro Hossi arciprete.
Þetta hlaut að vera arciprete, og
gamla konan kinkaði kolli til þess
aö uppörva Caddie. Si, si” sagði
hún og hélt áfram að tina saman
kertastubbana. Caddie gekk nær,
en þó hikandi. Hún sá stóran
mann með jarpt sléttgreitt hár.
Hann var hraustlegur og rjóöur i
kinnum, og hálsinn sem stóð upp
úr mjóum kraganum á prests-
hempunni var einnig rauöleitur.
Presturinn var ekki mjög ægi-
legur. og hann var einn. En
Caddie þorði ekki aö trufla hann.
Var hann ekki annað hvort aö
biðjast fyrir eða lesa i helgri bók?
— Allt i einu mundi Caddie eftir
dálitlu, sem hún hafði tekið eftir
daginn áður. Þær komu allt of
snemma i kirkjuna. Celestina
hafði sagt, að messan byrjaði
klukkan tiu, en hún hófst ekki fyrr
en klukkan hálfellefu. Meðan þær
biðu kom prestur, ekki arciprete
heldu. ^amall maður, hvitur fyrir
hærum, og hann kraup og baöst
fyrir. Litil telpa kom inn með klút
á höfðinu. Telpurnar i þorpinu
voru allar meö skýluklúta eða
slæður, en ekki hatt eins og Pia.
Litla stúlkan gekk ákveðnum
skrefum, þó að hún væri smástig,
til gamla prestins og klappaði á
öxlina á honum, en hann stóð á
fætur umsvifalaust i siðu svörtu
hempunni sinni og gekk að
dyrunum á einhverjum klefa,
sem var einna likastur varð-
mannaskýlinu fyrir utan
kirkjuna, en fyrir dyrunum á
klefanum inni i kirkjunni hékk
rautt tjald. Litla stúlkan fór inn i
klefann og kraup bak við tjaldið.
Caddie sá grilla i fótleggina á
henni. Hvað er hún að gera?
hvislaði hún að Piu. — Skrifta. —
En hún truflaði prestinn.
Auðvitað. Hann er hérna til þess
að hlusta á syndajátningar, sagði
Pia. — Ef hann er góður prestur.
— Caddie vissi, að faðir Rossi var
góður prestur.
Hún hafði heyrt Rob og Fanneyju
tala um hann. Þó að hann væri
ekki gamall, var hann orðinn
arcipretc og hann var mjög
læröur i latinu, grisku og
hebresku. Hann talaöi bæði þýzku
og frönsku og fleiri tungumál
sagði Celestina. Caddie bað Guð
um að láta hann tala ensku. — En
ef ég fer og klappa á öxlina á
honum, heldur hann, að mig langi
til að skrifta, og hvaö á ég þá aö
gera? hugsaði Caddie. Hún
óskaöi, að Pia væri komin, Hún
vissi, að Pia mundi ekki hafa
hikað. En ef Pia getur það, þá get
ég það lika hugsaði Caddie. —
Hún klappaði á öxlina á honum.
Presturinn leit upp og virtist i
fyrstunni óánægður, þvi að þetta
var ekki skriftatimi, þó aö Caddie
vissi það ekki. — Was wollen Sie?
Wer sind Sie? Hann sér, að ég er
ekki itölsk, og þess vegna heldur
hann, að ég sé þýzk, hugsaði
Caddie. Það er eins og allir Italir
haldi, aö Englendingar séu
Þjóðverjar. Ef til vill getur hann
ekki talað énsku. Caddie féll allur
ketill i eld. — Ensku? spurði
Caddie i örvæntingu — Ég er
ensk. — Hann horfði á hana
bláum augunum og sá, hvað hún
var guggin, sorgbitin og rauð-
eygð, og hann stóð upp. Hann var
hár og þrekinn i hempunni sinni,
fljótt á litið eins og allir imynda
sér feitan prest, en hann haföi
samt eitthvað sérstakt viö sig. Það
hvildi yfir honum ró, og i fasinu
var einhver strangleiki. Hann er
þannig á svipinn að það er eins og
hann geti sagt manni eitthvaö,
sem mark er takandi á, hugsaöi
Caddie. — Ensk? spurði hann i
bliðum rómi. — Ég kann svolitið i
ensku. Og Caddie létti svo mikiö,
að það rann út I fyrir henni. Það
var i sjötta skiptið, sem hún grét
þennan dag. Að þessu sinni gat
hún ekki stöðvað tárin, og að
lokum tók hann i hönd hennar
og leiddi hana út úr kirkjunni.
Hann beyöi kné áin, um leiö og
hann gekk fram hjá altarinu, og
Caddie hneigði sig einnig. Þau
fóru gegnum húsgarðinn, sem nú
var mannlaus og upp þrepin. Það
var rétt, sem hún hafði haldið.
Þrepin lágu upp að húsinu hans.
Efst voru litlar svalir i skugga af
oliuviðartré. I garðinum voru
blómaker, hænur og kjúklingar
aö krafsa upp mold, búr fullt af
kaninum og vinviður, sem
myndaði laufskála en þar inni
voru stólar og borð. — Hjá úti-
hurðinni voru tvær dyrabjöllur,
og á annarri þeirra stóð
„Notturno”. Þrátt fyrir gratinn,
gat Caddie ekki annað en furöað
sig á þvi, að nokkur skyldi vilja
ná i prest að næturlagi.
Presturinn fór meö hana inn i litið
biðherbergi með marmaragólfi
Þar var borð með vaxdúki,
nokkrir harðir stólar, róðukross
og málverk af páfanum.
Presturinn lét Caddie setjast —
Subito, subito, sagði hann, um
leið og hann gekk burt. Hvilikur
friður og ró i þessu fátæklega og
þægindasnauða herbergi. Þaö var
tæplega hægt að imynda sér neitt
ólikara prestssetrinu i Whitcross.
Caddie reyndi að þurrka sér um
augun, en vasaklúturinn hennar
var orðinn gegnblautur og
samanvöðlaður. Að lokum gafst
hún upp, grúfði sig yfir vaxdúkinn
og grét með ekka.
— En ég get ekki gert móður
þina kaþólska, kæra barn. —
Geturðu það ekki? Tárin tóku
aftur að renna, og faðir Rossi
flýtti sér að segja: — Drekktu
kaffið þitt. — Það var sterkt svart
kaffi i smábolla, eins og kaffið,
sem Rob var vanur að drekka
með is. Gömul kona færði þeim
það á bakka. Móðir min, sagði
faðir Rossi. Caddie þótti skrýtið,
að arciprete skyldi eiga mömmu.
— Hélztu, aö hann hefði dottið
ofan úr himninum? spurði Hugh
meö fyrirlitningu, þegar Caddie
sagöi honum frá þessu. En móðir
prestsins var góð ,, ,,Un
inglesina,” sagði hún bliðlega og
klappaði Caddie á vangann. En til
allrar óhamingju rann aftur út i
fyrir Caddie, þegar hún fann
þessa hlýju. Gamla konan gældi
við hana og sussaði til þess að
reyna að hugga hana, en flýtti sér
siþan út. — Drekktu kaffið, áður
en þú reynir að tala, sagði faöir
Rossi. Kaffið var svo sterkt, að
Caddie fannst hún varla ná
andanum, en það stöðvaði tárin.
— Nú skaltu segja mér allt af
létta, sagði faðir Rossi og Caddie
byrjaði: — Ég...ég... en þaö var
erfitt að koma oröum að þvi, sem
henni lá á hjarta, og hún sagði:
Ég vildi óska, aö ég hefði beðiö
Piu að koma með mér — Piu?
Mér heyrist það vera italskt nafn
Hverer Pia? Siöan sagði hann: —
Þú verður að tala hægt, annars
skil ég þig ekki. Jæja, segðu mér
nú frá þessu öllu saman. Ég get
það ekki. En faðir Rossi hafði
ekki verið gerður arciprete án
þess aö vera verðugur þess. Meö
mildi sinni og nærgætni tókst
honum með fáeinum spurningum
að fá alla söguna smátt og smátt
upp úr Caddie. En samt var allt i
sama farinu — Kæra litla stúlkan
min, ég get ekki gert móður þina
kaþólska. — Af hverju geturðu
það ekki. — Þaö getur enginn
nema Guð. — Hvers vegna vill
hann þaö þá ekki? Faðir Rossi
hristi höfuðið. Það er okkur huliö.
Þú verður að biðja, og ég mun
einnig biðja. Caddie fannst það
veik von, en hann var staðinn á
fætur — Komdu, ég ætla að fylgja
þér að áætlunarbilnum, og um
leið og þú kemur heim, áttu að
biðja Celestinu að gefa þér kraft-
mikla súpu og biddu hana að gefa
Piu litlu lika. Ég þekki Celestínu.
Hún er góð kona. Það er ekki
rétta aðferðin að svelta sig. —
Hvað er þá rétta aðferðin? spurði
Caddie. — Ég vildi óska, að ég
vissi það, svaraði hann og
andvarpaði. Gamla konan færði
honum flatan svartan hatt, sem
leit út eins og hann væri úr bifur-
skinni. Caddie hafði einu sinni átt
bifurskinnshúfu. Presturinn og
Caddie fóru út i sólskinið.
Meðan þau biðu eftir áætlunar-
bilnum hjá gula skiltinu með bláu
örinni, þar sem stóð Fermata,
kom Mercedesbillinn eftir
veginum. Rob og Fanney höfðu
lokið snæöingi og voru á heimleið.
Caddie var búin að veifa, áöur en
hún vissi af. Rob hemlaði i snatri,
og billinn nam staðar rétt hjá
skiltinu. A næsta andartaki var
Fanney komin út úr bilnum. —
Caddie! Hefur eitthvaö komið
fyrir? Faðir Rossi gekk fram
fyrir Caddie. — Já, sannarlega.
Fólkið, sem beið eftir bilnum, leit
við. Vegfarendur staðnæmdust,
þegar þeir sáu sálusorgara sinn
Þetta hefur
maður upp
w.....
íiltJ
H
1.
LAUGARDAGUR
31. marz
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Morgunkaffiðkl. 10.25.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga Krist-
in Sveinbjörnsdóttir kynnir.
14.40 tslenzkt mál Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag.
flytur þáttinn.
15.00 Gatan min Jökull
Jakobsson gengur um
Þorkötlustaðah verf i i
Grindavík með Magnúsi
Hákonarsyni á Hrauni.
16.00 Fréttir
16.45 Veðurfregnir Stanz Arni
Þór Eymundsson og Pétur
Sveinbjarnarson sjá um
þáttinn.
16.45 Siðdegistónleikar
17.40 Utvarpssaga barnanna.
18.00 Eyjapistill Bænarorð.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Við og fjölmiölarnir
Einar Karl Haraldsson
fréttamaðursér um þáttinn.
19.40 Menningarstofnun
Noröurlanda I Kaupmanna-
höfn.Þáttur með viðtölum i
umsjá Jóns Asgeirssonar
fréttamanns.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.55 "Sæunn og klukkan
hennar”, smásaga eftir
Rósu Einarsdóttur frá
Stokkahlöðum.
21.25 Sænskir harmoniku-
leikarar leika fyrir dansi.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Lestur
Passiusálma (35)
22.25 Danslög
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Laugardagur
31. marz
ijÍljijí: 17.00 Þýzka I sjónvarpi.
jijljljij: Kennslumyndaflokkurinn
Ijijl;: Guten Tag. 18. og 19. þáttur.
jjjjj 17.30 Af alþjóöavettvangi.
i;i;i;jj Andlit Evrópu Mynd frá
jjjjj Sameinuðu þjóðunum um
ijíijj þróun samgöngumála I
jjjjjjjjj Evrópu. Þýðandi Jóhanna
jjjjj Jóhannsdóttir.
Ijjjljj 18.00 Þingvikan Þáttur um
ijj;j;jj störf Alþingis. Umsjónar-
j;j;|;j menn Björn Teitsson og
jjjjj Björn Þorsteinsson.
;j;j;jj;j 18.30 tþróttir. Umsjónar-
ijjjiii maður ómar Ragnarsson.
jjjjjjjjjj IUé.
jljljijlj 20.00 Fréttir.
ijijijjij 20.20 Veður og auglýsingar
jjjjj 20.25 Hve glöð er vor æska.
íjjji Brezkur gamanmynda-
jjjjjjjjj flokkur. Ekki dauður úr
jjjijj öllum æðum. Þýðandi Ellert
jjjjj Sigurbjörnsson.
ijijjji; 20.50 Vaka. Dagskrá um bók-
jjjjj; menntir og listir.
jijijjj Umsjónarmenn Björn Th.
jjjjj Björnsson, Sigurður Sverrir
jjjií Pálsson, Stefán Baldursson,
jjjjji Vésteinn Ólason og Þorkell
jjjjj Sigurbjörnsson.
ijijijijij 21.35 Evudætur. (All About
jjjjj; Eve) Bandarisk biómynd
jjjijj; frá árinu 1950. Leikstjóri
jjjjj Joseph L.Mankiewicz.
ijjjj; Aðalhlutverk Bette Davis,
ijjjj; Anne Baxter, Celeste Holm
jijjiji og George Sanders. Þýð-
jjjjj; andi Kristmann Eiðsson.
jjjjj Fræg leikkona tekur að sér
jjjjj aðdáanda sinn, unga stúlku,
jijjijj sem langar að reyna sig á
jjjjj; leiksviðinu. Stúlkan verður
jjjjj brátt hennar hægri hönd i
j;ij;i;i flestu, og kemur sér i
jjjjj aðstöðu við leikhúsið, en það
jijjijj likar húsmóður hennar mið-
jjjj.ji lungi vel.
23.50 Ilagskrárlok.