Tíminn - 31.03.1973, Side 28
Laugardagur 3 . marz 1973.
MERKIÐ.SEM GLEÐUR
HHtumst i kaupfélaginu
r " .
Gistió á gódum kjörum
gGOÐI
L J ffjrir f/óiUtn mui
$ HJÖTIDNADARSTÖD SAHBANDSINS
A miAvikudaginn kom vélskipiö Guömundur RR 29 til Siglufjaröar meö yfir 600 lestir af loönu. Þar meö
komst heildarafii þessa skips upp I 16.000 lestir á þessari vertiö og hásetahluturinn nálgast nú úöum eina
milljón króna. I slöustu viku fóru tveir af starfsmönnum TIMANS, Kjartan L. Pálsson og Róbert
Agústsson I veiöiferö meö þessu aflaskipi, og var þessi mynd tckin úr brúnni á þvl út af Reykjanesi.
Fleiri myndir og grein um veiöiferöina eru I opnu blaösins i dag.
Bandaríkjamenn lýsa
pyndingum í fang-
elsum í Víetnam
Washington 30/3 — NTB
Bandaríkjamenn/ sem nú
hafa verið látnir lausir úr
fangelsum í Norður- og
Suður-Víetnam, hafa sagt
hrollvekjandi sögur um vist
sína í fangabúðunum, þar
sem þeir segjast hafa verið
píndir, lamdir, sveltir dög-
um saman og hlekkjaðir
mánuðum og í stöku tilfell-
um árum saman.
Fyrstu frásagnir hermannanna
um lifið i norðurvietnömskum
fangabúðum hermdu, að þeir
heföu verið bundnir með nælon-
kaðli þangað til húðin varð svört
af mari, þeir hefðu verið slegnir
og pindir andlega og likamlega
unz þeir gengust inn á að skrifa
eða segja það, sem fangaverðirn-
ir kröfðust.
Fangarnir hafa sagt frá reynslu
sinni á blaðamannafundum um
öll Bandarikin og stóru sjón-
varpsstöðvarnar hafa flutt dag-
skrár um sama efni. Frásagnir
fanganna voru ekki birtar fyrr en
allir bandariskir striösfangar
höfðu verið látnir lausir, þvi að
áður hafa menn óttást að fang-
arnir, sem eftir voru gyldu þess,
en ásakanirnar hafa beinzt að
Norður-Vietnömum.
Ofursti einn i flughernum
Robinson að nafni segist hafa
verið . bundinn saman með
nælonkaðli svo hann varð eins og
hnykill. Tveir menn stóðu á hand-
leggjum hans og hertu á kaðlin-
um þangað til hann skarst ínn i
iikama hans. Höfðinu var ýtt nið-
ur þangað til tærnar voru komnar
upp i munn. ,,t>annig skildu þeir
mig eftir og leystu mig ekki fyrr
en ég féllst á allt, sem þeir fóru
fram á”.
Handleggirnir voru reyrðir
saman fyrir aftan bak svo fast að
maðurinn fór úr axlarliðunum,
með þeim afleiðingum að þeir
voru afllausir svo mánuðum
skipti.
„VIÐ GLEÐJUMST YFIR
STUÐNINGI NORÐURLANDA"
SAGÐI EINAR ÁGÚSTSSON, UTANRÍKISRÁÐHERRA í OSLÓ í GÆR
Osló 30/3 — NTB Eining
ríkir á fundi utanríkisráð-
herra Norðurlanda um að
æskilegt sé að sem flestar
þjóðir viðurkenni ríkin tvö í
Kóreu. Norðurlandaþjóð-
irnar munu þó ekki viður-
kenna Norður-Kóreu sam-
tímis.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, sem utanrikisráðherrar
fimm Norðurlanda héldu á föstu-
dag i tilefni tveggja daga fundar
þeirra i Osló.
Krister Wickman utanrikisráð-
herra Svia sagði, að þjóð sin
myndi i náinni famtið viðurkenna
N.-Kóreu. Hann gaf þó ekki upp
ákveðna timasetningu, en lagði á-
herzlu á, að viðurkenningin yrði
aö raunveruleika alveg á næst-
unni.
Utanrikisráðherra Norömanna
Dagfinn VSrvik sagði, aö norska
stjórnin hefði rætt málið, en ekki
hvenær Norðmenn viðurkenndu
N.-Kóreu.
Utanrikisráðherrar Danmerk-
ur, tslands og Finnlands sögðu,
að i tiltölulega náinni framtið
hæfust umræður þjóðanna við
Norður-Kóreumenn um viður-
kenningu. Finnar hafa ekki held-
ur stjórnmálasamband við Suður-
Kóreu og munu jafnframt hefja
viðræður við stiórnina i Seoul.
t fréttatilkynningu létu utan-
rikisráðherrarnir i ljósi skilning á
ástæðum þess, að lslendingar
ákváðu að færa út fiskveiðiland-
helgi sina úr 12 milum i 50. Einar
Ágústsson utanrikisráðherra
sagði, að hann skildi þessa yfir-
lýsingu sem beinan stuðning við
málstað tslendinga, og að tslend-
ingar gleddust yfir þessari að-
stoð. Hann kvaðst hins vegar ekki
ánægður með að Norðurlanda-
þjóðirnar hefðu enn ekki viður
kennt útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar.
Spurt var, hvort samningar
Norðmanna við Efnahagsbanda-
lagið hefðu verið ræddir á fundin-
um. Várvik svaraði, að K.B.
Andersen, danski utanrikisráð-
herrann, hefði veitt upplýsingar
um viðhorf ráðamanna i Efna-
hagsbandalaginu til einstakra
atriða tengdra samningunum, en
vildi ekki ræöa málið itarlegar.
1 fréttatilkynningunni kváðust
utanrikisráðherrarnir ánægðir
Framhald á 17. siðu.
Aflarýrnun hjd
Bretum veruleg
eftir útfærsluna
TK—Reykjavik.
Skv. tölum frá Jóni Olgeirssyni,
ræðismanni Islands i Grimsby,
nam heildarafli Breta á tslands-
miðum fyrstu 6 mánuðina eftir
útfærslu fiskveiðilögsögunnar við
tsland i 50 sjómilur 65.496 tonn-
um. Þessar tölur miðast við tima-
bilið 1. sept. 1972 til 28. febrúar
1973. Ef Bretar veiða svipað
magn næstu 6 mánuði verður árs-
afli þeirra frá 1. september 1972,
er útfærslan tók gildi, til 1. sept.
1973 130 þúsund tonn. Er þar um
verulega aflarýrnum að ræða,
þrátt fyrir tilraunir þeirra til auk-
innar sóknar og hið dýra úthald
aðstoðarskipa og dráttarbáta.
Sést bezt af þessu, hve fráleitur
úrskurður Alþjóðadómstólsins i
ágúst 1972, var er hann ætlaði
Bretum 170 þúsund tonn á ári.
Silungsveiði getur
hafizt d morgun
Nú er ekki seinna vænna fyrir
stangveiðimennina að fara að
taka fram stengur sinar og lita
eftir linum og hjóluin. Sjóbirt-
ingsveiðin hefst á morgun. Hana
má sem sé byrja 1. april, og nú
vill svo vel til. að fyrsti dagur
aprilmánaðar er sunnudagur.
— Ég býst við, að ýmsir verði
til þess að renna þennan fyrsta
dag, sagði Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri, er Timinn ræddi við
hann i gær. Annars er það háð
hitastiginu i ánum, hve snemma
sjóbirtingurinn og bleikjan ganga
i þær, og það er sjálfsagt nokkuð
lágt enn. En það getur breytzt
fljótlega, ef svo viðrar.
Fyrst leita menn fyrir sér i án-
um á Suðurlandi — i ölfusá, Þor-
leifslæk og Varmá, þar sem nú
hefur verið stofnað nýtt veiðifé-
lag, Hróarslæk og Volaiæk i Flóa,
þar sem stofnað var nýtt veiðifé-
lag i fyrra og gerður laxastigi
vegna stiflu i gömlum
Flóaáveituskurði, ám i Rangár-
vallasýslu og Vestur-Skaftafells-
sýnslu, Eldvatni, Tungufljóti og
jafnvel Kúðafljóti og viðar.
Seinna leita menn svo upp i
Borgarfjörð og vestur á Snæfells-
nes.
Það er yfirleitt lágt gjald tekið
fyrir sjóbirtingsveiðina, sagði
veiðimálastjóri, en sjóbirtingur-
inn er mishittur. Stundum getur
veiðzt vel, jafnvel strax i byrjun
aprilmánaðar, en svo ber hitt oft
við, að menn fara erindisleysu.
Bjartur kom með
stóran grólúðufarm
Fjöldi erlendra togara úti af Austfjörðum,
en varðskipin lóta ekki sjó sig
ÞÓ, Reykjavik — Hinn nýi skut-
togari Sildarvinnslunnar i Nes-
kaupstað, Bjartur NK-121 kom til
Neskaupstaðar i gær úr annari
veiðiferð sinni og var skipið með
milli 100 og 110 tonn, en i fyrstu
veiðiferðinni fékk skipið 140 tonn.
Úthaldsdagar skipsins, að þessu
sinni, voru sex og hálfur dagur.
Magni Kristjánsson, skipstjóri
á Bjarti sagði i viðtali við blaöið i
gær, að þeir hefðu verið með
meira en 70 tonn isuð i kössum og
sagðist hann telja, að fiskur isað-
ur i kassa ætti alla framtið fyrir
sér. Hann sagði, að þeir hefðu
verið á veiðum úti af svonefndum
„Fót”, sem er úti fyrir Austfjörð-
um.
Fiskurinn, sem Bjartur fékk
þarna, var svo til eingöngu grá-
lúða, sem er einsdæmi á þessum
árstima. Grálúöan, sem Bjartur
fékk var fremur smá. en mjög feit
og fór hún öll i 1. verðflokk, en
fyrir 1. flokk eru greiddar 17.70
krónur fyrir kilóið. Að sögn
Magna munu islenzkir togarar
ekki hafa fengið þarna neitt sem
heitir af grálúðu siöan 1957 eða
1958, en þá fékk til dæmis Gerpir
NK góðan grálúðuafla á þessum
slóðum.
Magni sagði, að þegar þeir
hefðu farið heim, hefðu þeir talið
25 brezka togara á þessum slóð-
um og sjö v-þýzka togara allt upp
i 3000 lestir að stærð. Voru brezku
togararnir að veiða smáfisk, sem
þarna er, en Þjóðverjarnir voru
hins vegar meira i grálúðunni.
,,Ég kom boðum til Landhelgis-
gæzlunnar, um fjölda erlendra
togara á þessum slóðum hvern
dag, sem við vorum úti, en varð-
skipin létu aldrei sjá sig. Við sjó-
menn fyrir austan, erum farnir
að halda, að Landhelgisgæzlan
ætli sér að lofa erlendum togurum
að fiska i friði úti fyrir Austfjörð-
um. Að minnsta kosti ber ekki á
ööru, þvi að hér sjást aldrei varð-
skip, hvað þá að þau komi og
stuggi við þeim. Það hefur ekki
gerzt langa lengi”, sagði Magni.
Þau mið, sem Bjartur veiddi
mest á og sömuleiðis erlendu tog-
ararnir, eru 25 sjómilur innan 50
milna markanna.
Vinstri
menn
sigruðu
I gærkvöldi voru talin atkvæði i
kosningum stúdenta við Háskóla
tslands til Háskólaráðs. Fulltrúar
vinstri manna sigruðu.
Atkvæði um tvo fulltrúa til
tveggja ára féllu þannig að Bald-
ur Kristjánsson hlat 722 atkvæði,
Davið Oddson hlaut 580 atkvæði.
Varafulltrúar til tveggja ára Er-
lingur Sigurðsson 674 atkvæði og
Hannes J.S. Sigurðsson 593 at-
kvæði. Til eins árs setu i Háskóla-
ráði hlaut Garðar Mýrdal 727 at-
kvæði á móti Sigfúsi Jónssyni
sem fékk 533 atkvæði. Varafull-
trúi Garðars Sigriður Stefáns-
dóttir hlaut 650 atkvæði en Asdis
Þórðardóttir hlaut 609 atvkæði.