Fréttablaðið - 17.08.2004, Blaðsíða 21
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 94 stk.
Keypt & selt 15 stk.
Þjónusta 35 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 10 stk.
Tómstundir & ferðir 8 stk.
Húsnæði 22 stk.
Atvinna 37 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Lífræn kókoshnetuolía
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagurinn 17. ágúst,
230. dagur ársins 2004.
Reykjavík 5.26 13.32 21.36
Akureyri 5.00 13.16 21.30
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Ég er búinn að vera með einkaþjálfara í
átta mánuði en er nú í mánaðarfríi. Ég er
búinn að missa sautján kíló og byggja upp
heilmikinn vöðvamassa,“ segir Friðrik
Ómar Hjörleifsson söngvari, spurður um
það hvernig hann haldi sér í formi.
„Ég finn þvílíkan mun á mér. Þegar ég
byrjaði hjá einkaþjálfaranum var ég eins
og gamall karl. Mesta breytingin sem ég
finn er að brennslan er orðin miklu hraðari
eftir að ég byrjaði að byggja upp
vöðvamassann. Það var orðið þannig með
mig áður en ég byrjaði gat ég hvergi keypt
mér föt þar sem ekkert passaði á mig. Síð-
an leið mér mjög illa. Ég var búinn að vera
of þungur í tólf ár eða allt frá því að ég var
ellefu eða tólf ára. Ég bjó svo nálægt sjopp-
unni á Dalvík,“ segir Friðrik og hlær.
Margir kjósa þann kost í stöðunni að fá
sér einkaþjálfara þegar barist er við
aukakílóin og Friðrik ber því góða sögu.
„Ég hef prófað allt; Herbalife, Nature’s
Own og ég var búinn að prófa að fara einn í
ræktina. Það er allt annað þegar einkaþjálf-
arinn bíður – þá fer ég frekar. Nú ætla ég
einmitt að fara að hringja í stelpuna sem ég
er hjá aftur því ég finn að ég fer ekki í
ræktina án hennar – það er alltof erfitt.
Aginn er ekki meiri en þetta.“
Friðrik reynir ekki aðeins að hreyfa sig
mikið heldur passar hann að mataræðið sé í
góðu lagi líka. „Ég borða skyr á hverjum ein-
asta degi sem eina máltíð. Síðan borða ég líka
hrökkbrauð og léttost og drekk alltaf undan-
rennu. Þetta er reyndar frekar erfitt hjá mér
þar sem ég er algjör sælkeri og nammigrís.
Ég er til dæmis dottinn í það núna að kaupa
mér kökudeig út í búð og baka mér smákök-
ur á átta mínútum og drekka mjólk með. Það
er rosalega gott, sérstaklega þegar er svona
hlýtt úti. Ég leyfi mér svona hluti en hef fast-
ar þrjár máltíðir á dag þar sem ég hugsa um
hvað ég borða.“
lilja@frettabladid.is
Of þungur í tólf ár:
Var eins og gamall karl
Friðrik Ómar passar mataræðið mjög vel og hefur fastar
þrjár máltíðir á dag sem eru í hollari kantinum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Rottweiler til sölu. Ættbók frá HRFÍ.
Gott heimili skilyrði. Uppl. í s 856 2714.
Kötturinn Emma týndist föstudaginn
13.8. frá Laugateig. Ef þið hafið séð til
hennar vinsamlegast hafið samband í
síma 568 7177.
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Í dag eru 1.614
smáauglýsingar á
www.visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Allir geta verið með í Reykjavíkur-
maraþoninu, þeir sem ekki vilja
hlaupa ættu að drífa sig út og hvet-
ja hlauparana áfram,“ segir Hjördís
Guðmundsdóttir hjá Íþróttabanda-
lagi Reykjavíkur sem sér um fram-
kvæmd hlaupsins. „Þemað í ár
verður músík og maraþon, við ætl-
um að leika tónlist undir
skemmtiskokkinu en hvetjum líka
þá sem ganga með trúbador í mag-
anum að fara út á götu og leika tón-
list fyrir þátttakendur.“
Eins og í fyrra er úr mörgum vega-
lengdum að velja, þriggja kílómetra
skemmtiskokki, sjö kílómetrum, tíu
kílómetrum, hálfmaraþoni sem er
21 kílómetri og maraþoni sem eru
42 kílómetrar. Tímataka er í öllum
vegalengdum nema skemmtiskok-
ki.
Þegar hafa 1000 manns skráð sig
en Hjördís vonast til að 4.000
manns taki þátt. „Íslendingar eru
alltaf með seinni skipunum að skrá
sig og skráningu lýkur ekki fyrr en á
föstudag.“ Á föstudag verður pasta-
veisla fyrir þátttakendur í TBR-hús-
inu frá 18-21, þar geta þátttakendur
einnig sótt bol og skráð sig frá há-
degi.
Reykjavíkurmaraþonið markar upp-
haf menningarnætur nú sem fyrr,
hún verður sett um leið og
skemmtiskokkið, kl. 11. Maraþonið
sjálft hefst kl. 10.00. Skráning og
frekari upplýsingar um hlaupið er
að finna á heimasíðunni www.mar-
athon.is. ■
Reykjavíkurmaraþon:
Maraþon og músík