Tíminn - 07.06.1973, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 7. júni 1973.
TÍMINN
13
Hvergerðingar fá fuilkomna
M. b. Álfsey afhent Einari Sig.
Raðsmíði 150
lestafiskiskipahjá
Slippstöðinni hf.
Hefur gefið mjög góða raun
ED—Akuryeri, 30. mai. — 1 dag
afhenti Slippstöðin h.f. á Akureyri
150 lesta stálfiskiskip til Hrað-
frystistöðvarinnar i Vestmanna-
eyjum h.f. þ.e. til Einars Sigurðs-
sonar. Skipið var sjósett 17.
marz, og hlaut þá nafnið M.b.
Alsey VE 502. Þetta skip er það
fimmta, sem Slippstöðin h.f. af-
hendir Einari Sigurðssyni á þessu
og siðasta ári og jafnframt sið-
asta skipið, sem Slippstöðin h.f.
smiðar fyrir Einar að sinni.
Með smiði þessara fimm skipa
tók Slippstöðin h.f upp raðsmiði
150 lesta fiskiskipa, og hefur sú
raðsmiði gefið mjög góða raun,
þar sem betur er hægt að koma
við staðlaðri hlutasmiði, sem
leiðir til aukinna afkasta. Starfs-
menn Slippstöðvarinnar eru rúm-
lega 200. Slippstöðin hyggst enn
um sinn byggja fleiri 150 lesta
fiskiskip, og er nú verið að reisa
tvö næstu skip og nýlega búið að
semja um smiði þess þriðja.
M.b. Alsey er útbúin til linu-,
neta-, tog- og nótaveiða, og er tog-
búnaðurinn gerður fyrir skuttog,
sem er nýjung. Skipið er búið öll-
um nýjustu siglinga- og fiskileit-
artækjum, og má þar nefna tvær
ratsjár af gerðinni Kelven
Hughes og Decca-Atlasfisksjá og
astic af gerðinni Simrad. Aðalvél
er af gerðinni Mannheim, 765
hestöfl, og reyndist gagnhraði
12,5 mila i reynsluför. Auk þess
eru tvær hjálparvélar af gerðinni
Buuk, 85 ha.hvor sem geta fram-
leitt 72 kilówött samtals. 1 skipinu
er innbyggður hraðamælir af
gerðinni Sal-Log 64. Senditæki er
af gerðinni Sailor T-122, 16 rása
og viðtæki 23 rása. Lengd skipsins
er 31 metri og breidd 6,7 metrar.
Allar ibúðir, sem eru fyrir 12
manns eru i afturskipi. Skipstjóri
á M.b. Alsey er Ólafur Kristins-
son og vélstjóri Pétur Sveinsson.
Skipið heldur strax á togveiðar.
RUTH HENRIKSSON, lektor frá
Helsingfors, flytur fyrirlestur með
litskuggamyndum fimmtudaginn 7. júni
kl. 20,30.
TEXTILTRADITION OCH
TEXTILBRUK I FINLAND,
LANDET PÁ GRÁNSEN
AAELLAN ÖST OCH VÁST
Einnig verður sýnd litkvikmynd um
Maritta Matsovaara og list hennar.
Verið velkomin
Verið velkomin.
NORRÆNA
HÚSIÐ
hitaveitu
ÓV-Reykjavík: Nýtt hitaveitu-
kerfi aðalveituæö, var tekið I
notkun i Hveragerði sl. föstudag.
Um það bil 140 sekúndulitrar af 97
gráðu heitu vatni koma úr tveim-
ur borholum i ölfusdal en þörf
þorpsins er um 60 sekúndulitrar,
og sagði ólafur Steinsson, odd-
viti. i viðtali við fréttamenn
blaðsins í gær, að þótt undarlegt
Krá opnun nýju hitaveitunnar
i Hveragerði á
föstudaginn. (Tima-
mynd: Bjarni Eyvindsson).
mætti virðast, væri nú fyrst búið
að bæta úr hitunarerfiðleikuin
ibúa llveragerðis.
Fyrstu framkvæmdir hófust
haustið 1971, en haustið áður var
fyrst farið að semja um hitann við
Orkustofnun. Samþykkti siðan
hreppsnefnd þann 3. marz
1971 samkomulag við Orku-
stofnun, sem hljóðaði upp á, að
stofnunin sæi um virkjunina,
gerð gufuskilvindu og miðlunar-
tanks, þaðan sem hreppurinn
tæki við vatninu og veitti þvi um
það tvöfalda kerfi, sem fyrir er i
þorpinu. Það kerfi verður siðar
endurbætt, og verða þá allar
leiðslur jarðlagðar með götu og
vegaframkvæmdum i Hvera-
gerði, en miklar byggingafram-
kvæmdir eru þar nú og mikið
fyrirhugað að byggja.
Fram að þessu hefur hitaveitu-
kerfi Hvergerðinga verið tvöfalt,
eins og fyrr segir og hefur verið
hitað lindarvatn til upphitunar
mannabústaða og gróðurhúsa.
Hefur þetta valdið mrgvislegum
erfiðleikum, svo sem tæringu, þar
sem súrefni i vatninu hefur verið
mjög mikið. Brennisteinsmagnið
úr hinum nviu holum er sagt vera
svo litið, að það eigi ekki að koma
að sök.
Fjarhitun h/f, verkfræðistofa,
sá um framkvæmdir og áætlana-
gerð og nam kostnaður við fram-
kvæmdirnar tæpum 30 milljónum
króna.
i
i
i
••HANDA
KRÖKKUNUM
JOHNS-MANVILLE
glerullar-
9 einangrun
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum í dag. Auk þess fáið
þér frían álpappír með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville í alla einangrun.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Sendum hvert á land sem er.
Jl!
UP-MgJ
JÓN LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 . Sími 10-600
Fiskvinnsluskólinn
Umsóknir um skólavist i undirbúningsdeild skólans, næsta haust,
skulu berast skólastjóra fyrir 20. júni n.k.
Afrit af gagnfræða- eða landsprófsskirteinum fylgi.
Fiskvinnsluskólinn
Skúlagötu 4 Sími 20240
L________________________________________________________J
HAPPDRŒTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS 3. flokkur 4 á 1.000.000 kr. .4.000.000 kr.
A mánudag verður dregið i 3. flokki 4.000, vinningar að fjárhæð 25.920.000 krónur. 4 á 200.000 kr. 160 á 10.000 kr. 3.824 á 5.000 kr. . 800.000 kr. . 1.600.000 kr.
í dag er siðasti endurnýjunardagurinn. Aukavinningar: 19.120.000 kr.
Happdrætti Hásk&la Ísiands 4.000 25.920.000 kr.