Tíminn - 26.08.1973, Blaðsíða 27
Sunnudagur 26. ágúst 1973. TÍMINN 27
stilltur og gekk vel i þeim knatt-
spyrnumótum sem hann tók þátt
i, en á þessum árum var knatt-
spyrnudeild KR undir stjórn hins
áhugasama iþróttaleiðtoga
Sigurðar Halldórssonar (bróöur
Gisla, forseta tSI), m.a. urðu þeir
tslandsmeistarar i 2. aldurs-
flokki, en Guðmundur lék með
KR i 3. og 2 aldursflokki.
Aftur til Breiðabliks.
En enda þótt honum likaði
vistin vel hjá KR, ákvaö hann að
sööla aftur yfir tll sins gamla
félags. Astæðan var sú, að honum
fannst ekki áreiðanlegt að keppa
um sæti i hinu geysisterka
meistaraflokksliði KR þessara
ára auk þess sem flestir kunn
ingja hans voru i Breiðabl. Mun
það raunar hafa ráðið úrslitum
Og i Kópavogi beið hans mið-
herjastaða i 2. deildar liöi Breiða-
bliks. Nú var hann kominn aftur
I hóp sinna gömlu kunningja, og
framundan var geysihörð og erfið
barátta um sæti i 1. deild.
Ár tára og vonbrigða
Já, vist var hún erfið gangan
upp i 1. deild, vonbrigöin oft mikil
og stundum féllu tár. En þeir,
sem fylgdust með Breiðabliks-lið-
inu á árunum 1965-70, gátu ekki
annað en dáðst að þrautseigju og
dugnaði Blikanna. 011 þessi ár
voru þeir meðal efstu liða 2.
deildar. Til að mynda 1966, er þeir
léku úrslitaleik gegn Fram á
Laugardalsvellinum, en töpuðu
með þriggja marka mun. Siðar
barátta við Vestmannaeyinga. Og
1969 stóðu þeir ekki aðeins einu
sinni, heldur tvisvar, á þröskuldi
1. deildar. Þeir léku úrslitaleik
gegn Vikingi og höfðu tryggt sér
tveggja marka forskot i hálfleik.
Var allt útlit fyrir, að Breiðablik
myndi nú loks hreppa það sæti,
sem liðiðhafði svo lengi keppt að.
En siðari hálfleikurinn, og ekki
sizt framlenging leiksins, varö
martröð fyrir Blikana. Vikingur
skoraði fljótlega i éiðari hálf-
leiknum og tókst að jafna, þegar
nokkra minútur voru til leiksloka.
Var leikurinn framlengdur, og
átti Breiðablik mun meira I
leiknum. En hamingjudisirnar
voru þeim ekki hliðhollar. Á
siðustu minútu var dæmd vita-
spyrna á Breiðablik. Dómarinn
sýndist sem Logi markvörður
Kristjánsson gripi um fætur
Gunnars Gunnarssonar i Vikingi.
Flautan gall við, dómarinn benti
á vítapunkt. Vikingar fram-
kvæmdu spyrnuna, og nú virtust
hamingjudisirnar hliðhollar
Breiðabliki, þvi að knötturinn
small I þverslá og hafnaði i fangi
Loga markvarðar, sem ekki var
seinn á sér og spyrnti knettinum
frá marki. En Adam var ekki
lengi i Paradis. Linuvöröurinn
veifaði fána sinum og gaf til
kynna, að knötturinn hefði farið
inn fyrirlinu. Dómarinn sam-
sinnti — staðan 3:2 — og leik-
timinn útrunninn.
Siðar um sumarið fékk Breiðablik
annað tækifæri til að öölast sæti i
1. deild. Fjölgað var i 1. deild og
heyja varö aukaleik um nýja
sætið. Var ákveðið, að lið númer
2 i 2. deild, Breiðablik, léki gegn
þvi liði, sem varð i neðsta sæti i 1.
deild. Akureyri. Fyrri leik
liðanna lauk með jafntefli en
siðari leikinn unnu Akureyringar.
Þar meö var 1. deildar draum-
urinn búinn — i bili.
Með fljúgandi byr inn i
1. deild
En öll él birtir upp um siðir.
Arið 1970 var Breiðabliksár. Nú
var 2. deildinni ekki skipt niður i
tvo riðla eins og verið hafði
heldur var keppt i einum riðli.
Enginn vafi lék á þvi, að
Breiöablik var langsterkasta lið
2. deildar þetta ár. Sigur liðsins
var aldrei i hættu. Og Guð-
mundur Þórðarson var sannar-
lega I essinu sinu þetta árið. I
næstum öllum leikjum liðsins
skoraði hann mörk, og þegar upp
var staðið, var hann markhæsti
maður 2. deildar, hafði skorað
samtals 16 mörk.
í öldugangi 1. deildar.
Guðmundur Þórðarson og
félagar hans fundu fljótlega, að
það var ekki tekið út með sældinni
Mark gegn Akranesi. A myndinni sést Guðmundur skora i lcik á Akranesi.
að halda sætinu i 1. deild. Fyrsta
áriö, 1971, var liðið i fallhættu, en
tókst að skrimpta og i þetta sinn
hlutu Akureyringar farseðilinn
niöur I 2. deild.
Næsta ár, 1972, var ljómandi
gott ár. Liðið hafði að visú aldrei
sigurmöguleika, enda bjóst
enginn við þvi, en hins vegar var
liðið aldrei i verulegri fallhættu.
En i ár hefur syrt i álinn. Staöa
Breiðabliks er mjög veik, en
ennþá lifa Blikarnir i þeirri von
að þeim takist að bjarga sér. Og
hver veit hvað gerzt getur, ef þeir
sýna svipað keppnisskap og i
siöasta leik, sem var gegn
Akranesi?
Guðmundur Þórðarson er i
engum vafa um hver orsökin fyrir
þvi hve illa liðinu hefur vegnað i
sumar er — slæmur undir-
búningur, m.a. vegna þess, hve
seint sumir leikmannanna hófu
æfingar i vor.
Vörnin hjá Breiðablik hefur að
mörgu leyti brugðizt, sem sést
gleggst á þvi, að i fyrra hafði liðið
skorað 13 mörk og hlotið 13 stig á
sama tima og það hefur nú skorað
16 mörk, en hlotið aðeins 3 stig.
Landsleikur i skugga
sorgar
Þaö var ofur eðlilegt, aö Haf-
steinn Guðmundsson landsliös-
einvaldur, kæmi auga á Guð-
mund, þegar hann valdi lands-
liðshópinn 1969. Var Guömundur i
hópnum til 1971 og lék þrjá lands-
leiki, þ.á.m. landsleikinn gegn
Englendingum i London I árs-
byrjun 1970. Sá leikur verður
Guðmundi og öðrum landsliðs-
mönnum ávallt minnisstæður.
Skömmu áður hafði einn félagi
þeirra, Rúnar Vilhjálmsson,
farizt i hörmulegu slysi, er svalir
á hóteli þvi, sem landsliöiö bjó I
hrundu. Úm þennan atburð segir
Guðmundur:
„Þetta var eins og vondur
draumur, sem viö vildum ekki
trúa, og allt var gert til að reyna
aö dreifa huganum. Og það var
ekki fyrr en við vorum lentir á
Keflavikurflugvelli aftur, og
kistan var borin út úr flugvélinni,
að við gerðum okkur fulla grein
fyrir þessum hörmulega at-
burði”.
Að sjálfsögðu var islenzka
landsliðið ekki svipur hjá sjón i
sjálfum landsleiknum, sem
leikinn var i skugga sorgar.
Hinir yngri knýja á dyr.
Það sést ekki á Guðmundi, áð
hann sé að nálgast þritugt. Þaö
mætti eins halda, að hann væri
um tvitugt. Engu að siöur finnst
Guðmundi, að senn hljóti að
koma að þvi, að hann leggi skóna
á hilluna af þvi að yngri menn
knýi á dyrnar. Kann að vera, en
þeir veröa þá að sanna, að þeir
séu fljótari, tekniskari og fremri i
hugsun en miðherjinn Guö-
mundur, Þórðarson, sem öörum
leikmönnum fremur hefur sett
svip sinn á leik Blikanna i bliðu og
striöu á undanförnum árum.
Þess má að lokum geta, að
Guðmundur er lögfræðingur aö
mennt og starfar hjá rannsóknar-
deild rikisskattstjóra. Hann er
kvæntur Margréti Lindu Þóris-
dóttur og eiga þau tæplega
þriggja ára gamlan son. Þau búa
aö Vallartröð 1 i Kópavogi.
—alf
A fullri ferö i átt að marki. Guðmundur leikur framhjá bakverði Vals.