Tíminn - 26.08.1973, Qupperneq 31

Tíminn - 26.08.1973, Qupperneq 31
Sunnudagur 26. ágúst 1973. TÍMINN 31 drengur styrki kenningar Chom- skys um málið. Djúpmynztur málsins hefur náð fullum þroska með drengnum, en hann skortir þann hluta heilans, sem breytir djúpstiginu i orð eða talmál á „yfirborðinu”. Þetta meðfædda málfræðikerfi er öllum gefið og þvi er hægt að breyta á ótal vegu. Hugsanlegar tengingar á milli djúps og yfir- borðs, þ.e. á milli hugsunar og hljóðs eða orða eru óteljandi. Chomsky segir, að höfuðeinkenni málsins sé ekki hið vanabundna eða endurtekning eða eftirliking einhvers, þess sem við höfum heyrt eða lært heldur einkennist tungumálið fyrst og fremst af hugkvæmni og sköpunarhæfni og þvi, sem kemur á óvænt. „Þvi er sennilega svo farið”, skrifar Chomsky ,,að i móðurmáli manns er til stjarnfræðilegur fjöldi sétninga eða orðatenginga, sem maður skilur fyrirhafnar- laust, og að fjöldi þeirra mál- mynztra, sem fólk almennt hefur á valdi sinu og skilur auðveldlega og fullkomlega er meiri en fjöldi sekúndnanna i mannsævinni.” Chomsky notar m.a. eftirfar-' andi setningu til þess að sýna framáþetta: „Hygginn maður er heiðvirður”. Þessi málsgrein hefur að geyma tvær fullyrðingar, nefnilega þær að maður sé hygginn og að maður sé heiðarlegur. Kjarni hugsunarinnar i setn- ingunni er „maður”. 1 stað þess orðs er sett „sem”, þannig að i staðinn fyrir að segja „maður er hygginn”, „maður er heið- virður” segjum við „maður, sem er hygginn, er heiðvirður”. Siðan sleppum við orðunum „sem er” og breytum orðalaginu þannig, að hygginn kemur á undan maður og úr þessu verður „hygginn maður er heiðvirður”. Á þennan hátt breytist djúpstigið i yfir- borðsstig og hugsunin i mælt mál. Barnið talar áður en það talar Fallizt menn á þetta merkir það i rauninni að ungbarnið getur talað áður en það mælir orð frá munni, þvi áð allt frá byrjun er það gætt málgáfunni. Þegar það kemur að barnið fer að „tala upphátt” eru oft ötviræð einkenni djúpstigsins i málfari þess. Þannig segir barnið „búin öll mjólk” áður en það lærir, hvernig réttilega á að orða þetta á „yfir- borðinu”, þ.e. „öll mjólk er búin”. Oft má lika sjá þess merki, að barninu, er ljóst, að með þvi hrærist innra mál. áður en það fer að geta talað og klætt hugs- anir sinar ytri búningi. Margir talfræðingar hafa fengizt við rannsóknir á þessum mörkum á milli hugsunar og máls, án þess að gera sér ljósa grein fyrir þvi i hverju vanda- málið er fólgið. Menn hafa rann- sakað hvernig hlutirnir lærast og lagt stund á atferlisrannsóknir, en vandamálið varö ekki skýrt, fyrr en Chomsky kom kenningum sinum um hina meðfæddu mál- gáfu á framfæri, þótt hann telji reyndar sjálfur, nú viti menn hvers þeir eigi að spyrja en að lausn vandans sé ekki fundin. f hvert sinn sem einhver lærir að tala finnur hann tungumálið upp, segir Chomsky, og vandinn er fólginn i þvi að komast að þvi hvernig menn fara að. Við verð- um að gefa svar, sem er nógu fjölbreytt og megum ekki láta okkur næjga svar, sem við teljum „sennilegt”, afþvi að það sé ein- falt og auðskiljanlegt. HHJ þýddi Ráðskona óskast að Flúðaskóla skólaárið 1973—74. Upplýsingar gefa skólastjóri, simi 2-57-87, og formaður skólanefndar, simi um Galtalæk. Hús til niðurrifs í Hafnarfirði Tilboð óskast i húsið Brekkugötu 4 i Hafnarfirði, til niðurrifs og brottflutnings. Nánari upplýsingar verða gefnar á skrif- stofunni, Strandgötu 6. Tekið verður við tilboðum til þriðjudags- kvölds 28. ágúst n.k. Bæjarverkfræðingur. Hagstætt verð Margar gerðir transitorviðtækja. 8 og 11 bylgju viötækin frá Koyo enn á gömlu vcröi. 6 geröir stereotækja í bila. Margar geröir bilaviötækja ásamt hátölurum. Kasettu- segulbönd með og án viðtækis. Stereoplötuspilarar með magnara og hátölurum. Straumbreytar, hentugir fyrir Astrad transistorviötæki. Ódýrar upptökusnúrur, stereo og mono. Rafhlöður fyrir feröaviötæki og segulbönd. Mjög gott úrval af músikkasettum og átta rása spólum. Póstsendum. F.BJÖRNSSON, Bergþórugötu 2. Simi 23889. Opið allan daginn. Laugardaga fyrir hádegi. NVogstærrí loðnuflokkunarvél frá Holms Nú er hægt að fá tvær stærðir af loðnuflokkunarvélum frá Holms verksmiðjunni á Jótlandi. Sú gamla góða: Minni gerðina þekkja allir. Hún er tegundin, sem hér var notuð, og reyndist með ágætum. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á henni fyrir íslenzka staóháttu. Ný stærri gerð: Vegna mikillar eftirspumar eftir afkastameiri vélum er nú komin ný gerð, sem afkastar ríflega fjórum sinn- um meira en eldri gerðin, eða 15000 kg. af loðnu, í staö 3500 kg. á klst. Verðið er mjög hagstætt miðað við þessa afkastagetu. Áríðandi er að staðfesta pantanir fyrir 30. sept. nk. ef tryggja á afgreiðslu fyrir næstu loðnuvertíð. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080 Veljið yður : hag OMEGA Nwada PiEapom JUpincu Magnús E. Baldvínsson Laugavcgi 12 - Sími 22804 úrsmíði er okkar fag

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.