Fréttablaðið - 12.08.2004, Blaðsíða 56
Laugardalshöll víbraði af eftir-
væntingu áður en stórstirnið
Pink steig á svið og gerði
hjómsveitin Í svörtum fötum
biðina ögn bærilegri fyrir ungan
aðdáendahópinn. Jónsi og félag-
ar spiluðu sín bestu lög af mikl-
um krafti og fengu verðskulduð
fagnaðarlæti fyrir. Unglings-
stelpur í sínu fínasta skarti voru
í miklum meirihluta á tónleikun-
um en inni á milli slæddust for-
eldrar sem réttlættu viðveru
sína með þeirri fullgildu afsökun
að þurfa að fylgja börnum sínum
á staðinn. Troðfull höllin beið
titrandi eftir Pink í dágóða stund
að upphitun lokinni. Meðalhæð
tónleikagesta var í lægra lægi en
lágvaxnir líkamar teygðu úr sér
og skimuðu örvæntingafullir um
sviðið, dauðhræddir um að
missa af innkomu söngkonunnar.
Um níuleytið kom hljómsveitin
sér fyrir og loks birtist húfu-
klæddur hvirfill Pink, sem ekki
er ýkjahá í loftinu sjálf. Það
dugði til að trylla líðinn. Þrátt
fyrir skerandi skræki við-
staddra náði söngkonan að yfir-
gnæfa mannhafið með opnunar-
laginu God Is a DJ. Stjarnan var
með „töffið“ á hreinu og dillaði
sér atvinnumannslega og takt-
visst.
„This place is fuckin awe-
some, thank you for having me
here!“
Næst á eftir fylgdu þrír góðir
smellir, orkan í Pink smitaði
áheyrendur og þegar hún flutti
lag bestu vinkonu sinnar og
söngkonu 4 Non Blondes, tryllt-
ust gestirnir. Meira að segja for-
eldrarnir sungu með What’s Up
af mikilli innlifun. Á eftir fylgdu
Family Portrait, Just like a Pill,
Trouble og lagið sem gerði hana
fræga af plötunni Can’t Take Me
Home. Þá voru tónleikagestir
orðnir svo ákafir og troðningur-
inn við sviðið þvílíkur að Pink
bað alla um að stíga skref aftur á
bak. „They are dropping like
flies here!“ Gestir hlýddu og við
tók hátindur tónleikanna. Pink
minntist sinnar uppáhaldssöng-
konu, Janis Joplin, og flutti
Peace of My Heart með aðstoð
gítarleikarans. Með því hitti hún
beint í mark, gæsahúðin breidd-
ist út um salinn og krafturinn í
rödd hennar lyfti þakinu af höll-
inni. Sannfærðust þá nokkrir
efasemdarmenn um ágæti Pink.
Þó hefði keyrslan mátt vera
meiri, lætin og dónaskapurinn
sem einkennir söngkonuna voru
ekki jafn mikil og blaðamaður
hafði vonast til. Trouble olli von-
brigðum og almennt var tón-
leikadagskráin of róleg. Eftir
sjötíu og fimm mínútna stans-
laust spilerí hljópst Pink á brott
án þess að gefa gestum tækifæri
á að klappa hana upp. Tíminn
var búinn, ljósin kveikt og gest-
irnir gengu út með hálsríg og
aumar tær.
Þóra Tómasdóttir
Pink tónleikar, Laugardalshöllin
þriðjudaginn 10. ágúst.
40 12. ágúst 2004 FIMMTUDAGUR
í dag
DV eltir Pink
Fyllirí á Sirkus og
slökun í Bláa lóninu
Halldór Blöndal
Hittir Arnold
Schwarzenegger
Ingibjörg Sólrún
Finnur ekkert fyrir
breytingaskeiðinu
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, um-
sjónarmaður þáttarins At, lagði í
gær upp í hringferð um landið á
nýjum Toyota Prius til að ahuga
hve langt hann kemst á einum
tanki. Bíllinn, sem er afar um-
hverfisvænn, er búinn rafmótor
auk hefðbundinnar bensínvélar.
Áætlað er að hann komist allt
að 1.100 kílómetra miðað við að
meðaleyðslan sé 4,1 l á 100 km en
örlitlar vonir standa þó til að bíll-
inn komist allan hringinn, eða
1280 km.
Sigrún var nýfarin fram hjá
Varmalandi þegar Fréttablaðið
náði tali af henni. „Þetta gengur
bara mjög vel. Takmarkið er að
fara hringinn og það væri
skemmtilegt ef það tækist en það
á eiginlega ekki að vera hægt,“
sagði Sigrún, sem reynir að spara
orku eins mikið og hægt er. „Ég
lulla upp allar brekkur á undir 50
km hraða og er örugglega vinsæl-
asti ökumaðurinn á landinu núna.“
Sigrún, sem er Íslandsmeistari
í sparakstri eftir keppni á vegum
Landverndar í fyrra, sagðist ekki
vera orðin þreytt á að sitja undir
stýrinu. „Ég er alla vega ennþá
nokkuð hress. Ég má reyndar ekki
hafa kveikt á útvarpinu því það
eyðir rafmagni. Í staðinn þá syng
ég hástöfum og spjalla við strák-
ana í talstöðinni.“
Stefnt var að því að hvíla á
Egilsstöðum í gærkvöldi og leggja
svo aftur í hann í morgun. Förinni
lýkur síðan í dag. ■
■ HRINGFERÐ
VIÐ STAÐARSKÁLA Við Staðarskála í Hrútafirði. Frá vinstri: Eiríkur Einarsson tæknistjóri
Toyota, Sigrún Ósk og Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá P. Samúelssyni.
Á ekki að vera hægt
Mögnuð en of róleg
TRYLLT STEMNING Unglingsstúlkur voru í meirihluta á tónleikunum en svo mikill troðningur myndaðist fyrir framan sviðið að söngkonan þurfti margsinnis að biðja fólk um
að færa sig aftar.
PINK Í HÖLLINNI
Tónleikadagskráin var í rólegri kantinum.
[ TÓNLEIKAR ]
UMSÖGN
56-57 (40-41) Folk 11.8.2004 21:08 Page 2