Fréttablaðið - 12.08.2004, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 12. ágúst 2004
Konan sem er sök-uð um að hafa
setið um leikkonuna
Catherine Zeta-Jones
þarf að gangast undir
skoðun hjá geðlækni.
Mun læknirinn
ákvarða hvort hún sé
hæf til að ganga í
gegnum réttarhöld.
Söng- og leik-konan Vanessa
Williams hefur
óskað eftir skilnaði
við körfubolta-
manninn Rick Fox.
Þau hafa verið gift í
fimm ár og eiga
saman fjögurra ára
dóttur. Williams, sem er 41 árs, á þrjú
börn frá fyrra hjónabandi.
Leikstjórinn M. Night Shyamalanog Walt Disney-fyrirtækið eiga von
á málshöfðun frá barnabókahöfundi
sem segir að bók-
in sín og nýjasta
mynd Shyamalan,
The Village, séu
grunsamlega líkar.
Höfundurinn heit-
ir Margeret Peters-
son Haddix og
bókin sem um
ræðir heitir Running Out Of Time og
kom út 1995. Shyamalan hefur áður
verið sakaður um ritstuld vegna
söguþráðs myndarinnar Sings.
Shannon Doherty,sem sló í gegn í
Beverly Hills 90210,
hefur tekið að sér hlut-
verk Alexöndru Hud-
son í nýjum sjónvarps-
þáttum sem kallast
North Shore. Tökur
standa nú yfir á
Hawaii en þættirnir
hefja göngu sína í
Bandaríkjunum 20.
september.
Söngkonan BeyoncéKnowles hefur
frestað brúðkaupi sínu
með rapparanum Jay-Z
vegna kvikmyndar sem
mun fjalla um tónlistar-
feril hennar. Knowles,
sem er 22 ára, hefur
mikinn áhuga á að
ganga upp að altarinu
en hefur ekki tíma
þessa dagana.
Sö n g v a r i n nR o b b i e
Williams seg-
ist vera mikill
aðdáandi fót-
bo l t akappans
Davids Beckham.
Sérstaklega er hár-
greiðsla Beckham
honum hugleikin.
Beckham dáist
einnig að Willi-
ams og eitt sinn
hringdi hann í söngvarann og spurði
hvar hann hefði fengið buxurnar
sem hann klæddist í einni mynda-
töku.
Hljómsveitin DuranDuran hefur lokið
upptökum á nýjustu
plötu sinni, Astro-
naut. Gripurinn
kemur út í októ-
ber. Allir upp-
runalegu með-
limir sveitarinn-
ar unnu að
plötunni.
FRÉTTIR AF FÓLKI
BRUGÐIÐ Á LEIK Í SÓLINNI Þessir krakkar skemmtu sér vel við leik við Reykjafoss í
Varmá nærri Hveragerði í gær. Voru þau meðal þúsunda sem notið hafa einstakrar veður-
blíðu á landinu síðustu daga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
E.
Ó
L.
56-57 (40-41) Folk 11.8.2004 20:05 Page 3