Fréttablaðið - 20.08.2004, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík – sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
LISTAMANNASPJALL Katrín Sigurð-
ardóttir segir frá ferli sínum og ræðir um
verk sín við Gregory Volk í listamanna-
spjalli í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, í dag klukkan 18.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJARTVIÐRI SUNNAN OG VEST-
AN Skýjaðra fyrir norðan og austan og
dálítil súld með ströndum austan til. Hiti
8-16 stig, hlýjast suðvestan til. Sjá síðu 6
20. ágúst 2004 – 225. tölublað – 4. árgangur
FIMMTÍU MISSA VINNUNA Að öllu
óbreyttu er dökkt framundan í atvinnumál-
um í Mývatnssveit. Fimmtíu manns missa
vinnuna fyrir áramót vegna lokunar Kísiliðj-
unnar. Fjármögnun kísilduftverksmiðju enn
ólokið. Sjá síðu 4
GÍFURLEGUR VÖXTUR Verulegur við-
snúningur er í afkomu stærstu fyrirtækjanna
í Kauphöll Íslands fyrstu sex mánuði ársins.
Gengishagnaður einkennir uppgjör banka og
fjárfestingarfélaga. Sjá síðu 6
KREFST FANGELSISREFSINGAR
Sækjandi krefst fangelsisrefsingar í máli gegn
Þjóðverja sem hefur verið í farbanni vegna
gruns um manndráp af gáleysi. Segir ölv-
unarástand mannsins hafa orðið til þess að
hann velti bíl á Krísuvíkurvegi. Sjá síðu 8
HUNDRUÐ HITAMETA FÉLLU Í hita-
bylgjunni sem fór yfir landið í ágúst féllu
hitamet á rúmlega 130 stöðum á landinu
samkvæmt bráðabirgðatölum Veðurstofu
Íslands. Landshitametið stendur þó enn
óhaggað. Sjá síðu 10
36%50%
Kvikmyndir 42
Tónlist 48
Leikhús 48
Myndlist 48
Íþróttir 34
Sjónvarp 52
STJÓRNMÁL „Þessi niðurstaða er
þvert á samþykktir helstu stofn-
ana flokksins en ég hlíti henni,“
sagði Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra að loknum þing-
flokksfundi Framsóknarflokks-
ins í gær. Þar tilkynnti Halldór
Ásgrímsson, formaður flokksins,
að henni yrði vikið úr embætti
umhverfisráðherra 15. septem-
ber næstkomandi þegar ráðu-
neytið flyst yfir til Sjálfstæðis-
flokksins.
Siv gekk hnarreist af fundin-
um og sagðist hvergi nærri hætt í
stjórnmálum. „Það kemur nýr
dagur eftir þennan dag og ég er
ekki að hætta sem þingmaður.
Auðvitað hefði ég gjarnan viljað
sjá aðra niðurstöðu og halda mínu
starfi innan þessarar ríkisstjórn-
ar en niðurstaðan var önnur að
þessu sinni. Þessari ákvörðun
hlíti ég en horfi jafnframt fram á
veg vegna þess mikla stuðnings
sem ég hef fengið undanfarna
daga og vikur.“
Siv hefur gegnt starfi ráðherra
umhverfismála síðan í maí 1999
en hefur starfað sem alþingis-
maður fyrir Framsóknarflokkinn
í Reykjaneskjördæmi síðan 1995.
Sjá síðu 2
Siv Friðleifsdóttir hverfur úr ríkisstjórninni 15. september:
Hlítir niðurstöðunni
nr. 33 2004
í hverri viku
tíska stjörnuspá fólk heilabrot tónlist heilsa
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
20
. á
gú
st
- 2
6.
ág
ús
t
- freistar gæfunnar í New York
Margrét Eir
Úrvalsdeildin
- og hörðustu
stuðningsmennirnir
Gúmmístígvél
- ráðast inn í
íslenskar verslanir
+
Gunnar Þórðarson
Þóra Sigurðardóttir
Sif Gunnarsdóttir
Freistar gæfunnar
í New York
birta
Margrét Eir:
▲Fylgir Fréttablaðinu dag
● eldheitir stuðningsmenn ● gúmmístígvél ● matur ● tilboð
Þóranna Eiríksdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sultar og
býr til saft
Braut upp kælikassa
fólks í útilegu:
Björn drakk
sig fullan
BANDARÍKIN, AP Hann komst í feitt,
skógarbjörninn sem braut upp
kælikassa fólks sem tjaldaði
nærri heimkynnum hans í Wash-
ington-ríki í Bandaríkjunum.
Nóg var af bjórnum og drakk
björninn stíft allt þar til hann
lognaðist út af. Til að kóróna þetta
drakk hann aðeins aðra af tveim-
ur bjórtegundum sem fólkið var
með en snerti ekki á hinni.
Þjóðgarðsvörður kom að birn-
inum þar sem hann svaf værum
blundi eftir drykkjuna. Tilraunir
varðarins til að hrekja björninn á
brott báru lítinn árangur því
björninn lét sér fátt um finnast,
kleif upp í næsta tré og svaf þar
úr sér ölvunina. ■
Sjúklingar borga
sparnað ríkisins
Sparnaðaraðgerðir ríkisins í lyfjaverði leiða til þess að sjúklingar eru að greiða hærra verð fyrir
lyf en áður í um það bil 90 prósenta tilvika. Apótekin neyðast til að draga úr afslætti.
LYFJAVERÐ Sparnaðaraðgerðir rík-
isins í lyfjaverði hafa orðið til
þess að sjúklingar eru að stórum
hluta að greiða hærra verð fyrir
lyf en áður. Apótekin taka þó
stærsta skellinn á sig, að sögn
Þórbergs Egilssonar yfirmanns
lyfjasviðs Lyfju. Einnig eru
dæmi um að verð hafi lækkað.
Þetta sé afleiðing þess að ríkið er
að taka 900 milljónir króna út úr
lyfjamarkaðinum með því að
lækka álagningu í heildsölu og
smásölu. Þá hafi ríkið ekki enn
sem komið er hafið boðaðar end-
urbætur á rekstrarumhverfi apó-
tekanna. Allt bitni þetta á því
svigrúmi til afsláttar sem apó-
tekin hafi haft.
„Við erum enn að sjá hvaða
áhrif þessar aðgerðir ríkisvalds-
ins hafa og hvernig þetta kemur
út fyrir okkur,“ sagði Þórbergur.
„Nú þegar höfum við þurft að
skerða afslátt. Ég geri mér ekki
enn grein fyrir því hver meðal-
skerðingin er hjá sjúklingum. En
við höfum verið með lyf á lág-
marksverði og vonumst til að geta
haldið því áfram.“
Þórbergur sagði ljóst, að ein-
hvers staðar í rekstrinum kæmi
sparnaður ríkisins niður, því 900
milljónir væru teknar út úr lyfja-
markaðinum á ársgrundvelli.
„Það er tekið beint af framlegð
apótekanna,“ sagði Þórbergur.
Spurður um hvort menn óttuðust
að þessi sparnaður yrði til þess að
apótekin yrðu að afnema sjúk-
lingaafsláttinn að öllu leyti sagði
hann geta jafnvel séð það fyrir
sér. „Ég vona þó að þetta gangi
ekki af allri samkeppni dauðri, því
það væri afar slæmt.“
Ingólfur Garðarsson, markaðs-
stjóri Lyfja og heilsu, staðfesti að
apótek þess fyrirtækis væru byrj-
uð að skera niður afslátt á lyfja-
verði til sjúklinga.
„Ríkið er að spara og það bitn-
ar á sjúklingunum,“ sagði Páll
Guðmundsson lyfjafræðingur hjá
Lyfjum og heilsu.
jss@frettabladid.is
Sjá nánar á síðu 12
ENDIR BUNDINN Á RÁÐHERRADÓM SIVJAR
Siv gengur brott af fundinum þar sem þingflokkur Framsóknarflokksins ákvað að hún skyldi víkja úr ríkisstjórninni 15. september.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Google á
hlutabréfamarkað:
Hækkaði á
fyrsta degi
KALIFORNÍA, AP Viðskipti með bréf í
internetfyrirtækinu Google
hófust á Nasdaq-markaðinum í
gær. Verð bréfanna var 85 Banda-
ríkjadalir á hlut við upphaf við-
skipta en hækkaði upp í ríflega
hundrað dali.
Talið er að ýmsir stórir fjár-
festar hafi keypt bréf í gær en
þeir hafi haldið sig fjarri upphaf-
lega útboði bréfanna sem fór
fram á netinu.
Eftir sölu hlutafjárins hefur
Google yfir meira en einum millj-
arði dala (um sjötíu milljörðum
króna) að ráða.
Miðað við verð á markaði í gær
er Google verðmætara félag en
bókaverslunin Amazon. ■
01 Forsida 19.8.2004 21:47 Page 1