Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 50
Catwoman er ein svalasta auka-
persónan í sögunum um Batman
en það er fyrst núna sem hún
mætir til leiks í eigin bíómynd þar
sem Leðurblökumaðurinn er
hvergi nærri.
Það er líklega ekki síst kyn-
þokkanum að þakka hversu Kisu-
konan hefur notið mikilla vin-
sælda í gegnum tíðina en hún
skartar þröngum kisubúningum
og er bæði frökk og falleg. „Hún
er sú sem allar konur vilja vera og
allir karlar þrá að vera með,“ seg-
ir Óskarsverðlaunaleikkonan
Halle Berry, sem leikur kyn-
þokkafullu kisukonuna í nýju
myndinni. „Kettir endurspegla á
margan hátt hið sanna eðli kon-
unnar. Það er erfitt að festa hend-
ur á þeim og þú þarft að hafa fyrir
því að afla þér trausts þeirra og
virðingar.“
Kisan og Leðurblakan
Berry þarf sjálf að hafa fyrir því
að vinna hylli áhorfenda í
Catwoman en hún túlkar Kisu-
konuna í skugga Michelle Pfeif-
fer, sem fór á kostum í hlutverk-
inu í Batman Returns eftir Tim
Burton frá árinu 1992. Pfeiffer
kom helstu persónueinkennum
Catwoman fullkomlega til skila
en hún er hvorki algóð né alvond.
Batman leit því á hana sem
glæpamann sem honum bæri að
klófesta en komst þó ekki hjá því
að falla fyrir töfrum stúlkunnar.
Þessi klemma hefur verið drif-
krafturinn í ástar/haturssam-
bandi þeirra í áratugi, fyrst í
teiknimyndasögum og síðar á
hvíta tjaldinu.
Catwoman kom fyrst fram á
sjónarsviðið í kringum 1940 og
hét þá Selina Kyle þegar hún var
ekki í kisubúningnum. Burton
hélt sig við hina upprunalegu Sel-
inu þegar hann leiddi Batman og
Catwoman saman árið 1992 en í
Batman Returns var Selina álku-
leg og óframfærin piparjónka
sem var myrt af vinnuveitanda
sínum. Þá kom kattahópur til sög-
unnar og gaf henni nýtt líf og
breytti henni um leið í skæða
kynbombu.
Framleiðendur nýju myndar-
innar með Halle Berry fara svip-
aða leið en til þess að auðvelda
Berry að stíga undan skugga
Pfeiffer er lögð áhersla á að hér
er ekki um sögu Kisukonunnar að
ræða. Sú nýja heitir Patience Phil-
ips og það kemur fram í Catwom-
an að hún sé ekki eina Kisukonan
þar sem það gangi meðal annars
ein laus í Gotham borg.
Undan oki siðmenningar
Patience er minnipokamann-
eskja sem vinnur hjá illgjörnum
snyrtivöruframleiðanda. Þegar
hún kemst að ljótu leyndarmáli
vinnuveitanda síns kálar hann
henni til þess eins að fá hana aftur
á bakið, grimmari, sjálfsöruggari
og miklu kynþokkafyllri. Villta
konan í Patience brýst út þegar
hún verður Catwoman þannig að
hún er ekki aðeins upptekin af því
að koma fram hefndum heldur
þarf hún líka að finna tíma til að
skemmta sér og komast á lang-
þráð karlafar.
Þar sem enginn Leðurblöku-
maður er á lausu að þessu sinni
lendir löggan Tom Lone, sem
Benjamin Bratt leikur, í klónum á
Kisulóru. Hann heillast af Pati-
ence um leið og hann eltist við
Catwoman, sem hann grunar um
að bera ábyrgð á fjölmörgum
glæpum. Hann fellur einnig fyrir
hinum fáklædda og kattliðuga
andstæðingi sínum án þess að
hafa hugmynd um að Patience og
Kisukonan séu ein og sama mann-
eskjan.
Þessi hugmynd, að skapa nýja
Catwoman, er ekki svo galin þeg-
ar tekið er tillit til hugmynda Bob
Kane, höfundar Batmans, um eðli
Kisukonunnar. „Af hverju köttur?
Ja, kettir hafa níu líf þannig að ég
sá fyrir mér að hvenær sem hún
særðist eða næðist myndi hún lifa
af og halda áfram að berjast. Þar
fyrir utan finnst mér eitthvað
dulúðugt við ketti og ég legg það
að jöfnu við konur.“
Catwoman fékk kynþokka sinn
og útlit frá blondínunni og
Hollywoodkynbombunni Jean
Harlow, leikkonunni Hedy
Lamarr og kærustu Kanes. „Ég
dáðist að Hedy Lamarr,“ sagði
Kane þegar hann rifjaði upp sköp-
unarsögu Catwoman fyrir margt
löngu. „Hún bjó yfir mikilli kisu-
legri fegurð og kærastan mín var
mjög lík henni. Kærastan mín var
líka flink saumakona og hún bjó
til kisubúning sem hún sat fyrir í
þegar ég skóp persónuna.“ ■
Á Menningarnótt um helgina
stendur hið pólítíska vefsetur
gagnauga.is fyrir sýningu á
nokkrum erlendum heimildar-
myndum sem meðal annars deila
harkalega á bandarísk stjórnvöld
síðustu ára. Dagskráin hefst með
nokkrum heimildarmyndum um
leynilegar aðgerðir CIA, þjálfun
liðsmanna dauðasveita, innrásina
í Panama, viðskiptabannið á Írak
og ræður Martin Luther King.
Næst taka við myndir um hryðju-
verkin 11. september þar sem því
er haldið fram að Hvíta húsið hafi
haft fulla vitneskju um árásirnar
og fjallað um hvernig stríð Banda-
ríkjanna við hryðjuverkamenn er
nátengt olíuhagsmunum þjóðar-
innar. Önnur áhugaverð mynd sem
sýnd verður í Garðastræti 2 á
Menningarnótt fjallar um hneyksli
í Ísrael sem upp kom fyrir
nokkrum árum þegar kjarnorku-
vopnaáætlun landsins lak í fjöl-
miðla. Í kjölfarið var Mordechai
Vanunu rænt af ísraelsku leyni-
þjónustunni, réttað var yfir honum
á laun og hlaut hann 18 ára fang-
elsi fyrir. Heimildarmyndin var
gerð af BBC en eftir að hún var
sýnd ákvað Ísraelsstjórn að veita
sjónvarpsstöðinni ekki viðtöl
framar.
Á vefsíðunni er hægt að sækja
fleiri heimildarmyndir, fréttir, út-
varpsþætti og viðtöl sem fletta
ofan af hneykslum og samsærum
í helstu valdaríkjum heims. Um-
sjónarmenn síðunnar eru andvíg-
ir íslensku ríkisstjórninni og fara
ekki leynt með það. Menningar-
næturdagskráin hefst kl. 11 og
stendur til miðnættis. ■
42 20. ágúst 2004 FÖSTUDAGUR
Níu líf eftir dauðann
„Life is a bitch ....now so am I.“
- Michelle Pfeiffer fór á kostum í hlutverki
Catwoman í Batman Returns frá árinu 1992. Hún
varð heldur betur hörð í horn að taka eftir að
hún fór í kisubúninginn og sýndi enga miskunn.
[ SMS ]
UM MYNDIRNAR Í BÍÓ
The Village
„Þorpið er ekkert sérlega æsandi fyrir aðdáendur
þess konar mynda, en það sem Shyamalan gerir
betur í þessari mynd en Sjötta skilningavitinu og
Unbreakable að minnsta kosti er að koma í gegn
ógnvænlegri sýn á eðli samfélaga í anda Thomas
Hobbes; það er óttinn sem heldur samfélaginu
saman, hversu einfalt sem það er.“
SS
Fahrenheit 9/11
„Íraksstríðshluti myndarinnar er gífurlega áhrifa-
mikill og skilur vonandi engan eftir ósnortinn. Það
að Íslendingar eru „í hópi hinna viljugu“ gerir það
að verkum að Fahrenheit 9/11 verður sjálfvirkt
skylduáhorf hér á landi og hvet ég alla, viljuga sem
óviljuga, til að fara á þessa áhrifamiklu og ógleym-
anlegu heimildarmynd.“
KD
Shaun of the Dead
„Í Shaun of the Dead er hæfileg blanda af hryllingi
og húmor. Uppbyggingin í söguþræðinum er virki-
lega skemmtilega unnin. Það að aðalsögupersón-
urnar eru síðastar af öllum að uppgötva hvað er í
gangi í kringum þær er drepfyndið.“
KD
Good Bye Lenin
„Það var mikið búið að auglýsa hversu fyndin þessi
mynd væri og hve óvenjulegt það væri fyrir þýska
kvikmynd. Ég var ekki alveg að átta mig á þeim
húmornum. Það breytir því ekki að fyrir mynd sem
fór afar hægt af stað þróaðist hún í mjög hugljúfa
fjölskyldusögu sem ég hafði ánægju af.“
SS
King Arthur
„Þjóðsagan um Artúr konung er ótrúlega safaríkur
efniviður í ævintýraspennumynd með rómantísku
ívafi og dass af tragedíu. Það er allt til staðar, göf-
ugur konungur, glæsilegir riddarar, fögur mey, óút-
reiknanlegur seiðkarl, galdrasverð, mystísk höll,
ástarþríhyrningur o.fl. o.fl. Ofurframleiðandinn Jerry
Bruckheimer er hins vegar samkvæmur sjálfum sér
og valtar yfir allt sem heitir fágun og fínlegheit.
Góður biti í hundskjaft.“
KD
Ómissandi á DVD Fyrri árgangur hinnar óborganlegu gaman-
þáttaraðar um ofstækislögguna Sledge Hammer er kominn út
á DVD. Þættirnir urðu á sínum tíma undir í baráttunni við The
Cosby Show og urðu ekki langlífir. Þeir hafa hins vegar fyrir
löngu náð „cult status“ en hafa verið illfáanlegir þar til nú.
HALLE BERRY Var eina leikkonan sem þótti koma til greina sem Catwoman 21. aldarinnar. Framleiðendur myndarinnar leggja töluvert
upp úr því að fjarlægja hana eldri Kisukonum. Búningurinn er býsna nýstárlegur og nú heitir Catwoman Patience en ekki Selina.
CATWOMAN Svona birtist hún í mynda-
sögu, ógnandi, þjófótt, löðrandi í kynþokka
og að sjálfsögðu sveiflandi svipu.
STEFÁN ÞORGRÍMSSON Einn aðstandenda gagnauga.net sér til þess að fræða Íslend-
inga um helstu skandala bandarískra stjórnvalda með heimildarmyndasýningu á laugar-
dag.
Heimildarmyndir á
Menningarnótt
50-51 (42-43) Bioefni 19.8.2004 20:45 Page 2