Fréttablaðið - 20.08.2004, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
SMS LEIKUR
VINNINGAR ERU:
DOOM · AÐRIR TÖLVULEIKIR
GEISLADISKAR · MARGT FLEIRA
SENDU SMS SKEYTIÐ BTL LEIKUR Á
NÚMERIÐ 1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ.
13. HVER VINNUR
KOMINN í VERSLANIR
ÞITT VERÐ: 199KR
Anti-
sportistinn
Um þessar mundir hlýtur að veraákaflega erfitt að vera anti-
sportisti. Nú er ég ekki að segja að
ég sé einhver sérstakur anti-
sportisti, þannig séð. Ég horfi á hand-
bolta og fótbolta og reyni jafnvel að
hlaupa eitthvert stundum, án þess að
ég vilji gera of mikið úr því. Fór líka
um daginn í badminton og fékk
reyndar verk í hálsinn vegna þess að
ég var alltaf að horfa upp og bíða eft-
ir að boltinn kæmi niður, en það er
önnur saga. Það eru, hvernig sem á
málin er litið, erfiðir tímar núna fyr-
ir anti-sportista.
Í AÞENU hefur auðvitað allt verið
sett á annan endann út af fólki sem
er þangað komið til þess að sigla,
hlaupa, slást, skylmast, synda og fara
í kollhnís. Þetta er allt sýnt í beinni
útsendingu, allan daginn, og ímyndið
ykkur nú að vera anti-sportisti og
sitja fyrir framan kassann með
bumbuna út í loftið og horfa á þetta
allt saman. Þá er viðbúið að margar
spurningar vakni í huganum.
HVERT er allt þetta fólk að hlaupa?
Það er fullkomlega eðlileg spurning,
og var reyndar spurð af góðum vini
mínum einu sinni, anti-sportista.
Undan hverju er það að hlaupa? Af
hverju þessi flýtir? Af hverju er fólk
að synda 800 metra fram og til baka
sömu leiðina, bakkana á milli? Og
hvað er málið með að vera markvörð-
ur í handbolta? Baðandi út öngum í
allar áttir, kófsveittur. Til hvers að
æfa sig í sjö, átta, níu, tíu ár til þess
að kasta einhverju spjóti í flokki við
fimmtíu aðra menn á grasfleti í eitt
síðdegi og gleyma síðan kannski í of-
análag, eins og einn íslenskur afreks-
maður hér áður fyrr, að gera ráð fyr-
ir vindi?
JÁ NEI NEI. Ólympíuleikarnir eru
auðvitað sigur mannsandans og allt
það. Hraðar, hærra og lengra stefnir
maðurinn. Kannski mun hann ein-
hvern tímann hlaupa hundrað
metrana á þremur sekúndum? Maður
veit aldrei. Það yrði nú gaman að sjá.
Bara hviss pang! Beint í mark. Eða
getur það kannski verið að anti-sport-
istar hefðu eitthvað til síns máls ef
þeir myndu nú spyrja einnar rætinn-
ar spurningar, sem þeir eiga alltaf í
bakhöndinni bölvaðir: Getur það ver-
ið að einhvern tímann muni maðurinn
bara alls ekki geta hlaupið neitt hrað-
ar? Aldrei. Og hvað gerist þá? ■
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR
www.toyota.is
Súluritið hér að ofan sýnir niðurstöður áreiðanleikakönnunar
J.D. Power og aðildarfélaga sem birtar voru þann 29. júní
síðastliðinn. Samkvæmt þeim hafa Toyotabílar lægstu bilana-
tíðni meðal þeirra framleiðenda sem tóku þátt í könnuninni
eða aðeins 30 bilanir á 100 bílum yfir heilt ár.
Það traust og sú velgengni sem Toyota nýtur er hvorugt tilkomið á
einni nóttu, í örfáum könnunum hjá takmörkuðum hópum, heldur
er það afrakstur þeirrar stefnu Toyota frá upphafi að fara fram úr
væntingum viðskiptavina sinna þegar kemur að gæðum, hönnun,
verkfræði, tækninýjungum og ánægjulegri akstursupplifun.
Þess vegna hefur Toyota í gegnum árin sópað til sín verðlaunum og
verið í efstu sætum kannana og prófana um veröld víða. Það græða
því allir á samanburði við Toyota, ekki síst eigendur Toyotabíla og
þeir sem eru að hugsa sinn gang. En bestu upplýsingarnar færðu að
sjálfsögðu hjá næsta Toyotaeiganda og við hvetjum þig til að tala
við hann.
Það græða allir á samanburði við Toyota.
Talaðu við næsta Toyotaeiganda.
ÍS
LE
N
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
23
6
0
8/
20
04
64 (56) Bak 19.8.2004 21:44 Page 2