Fréttablaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 34
Kynntu þér frábæra kosti Námsmanna-
þjónustu Sparisjóðsins:
• ISIC-kreditkort – frítt fyrsta árið
• Námsmannadebetkort – frítt fyrsta árið
• ISIC-plúskort – engin heimild – engin
færslugjöld – frítt fyrsta árið
• Hagstæð Tölvukaupalán til allt að 48 mánaða
• Glæsileg tölvutilboð
• Leikir og tilboð á www.namsmenn.is
• Glæsilegar inngöngugjafir
• Þú getur komist á vit ævintýranna með
hagstæðu Ferðaláni
• Frábærir námsstyrkir, bókastyrkir og
bílprófsstyrkir fyrir námsmenn
• Þinn eiginn heimabanki þér að kostnaðarlausu
• Frí internetáskrift frá Margmiðlun
• Þinn eiginn þjónustufulltrúi
• Gegn lánsloforði frá LÍN geta námsmenn fengið
framfærslulán hjá Sparisjóðnum
• Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
• Sparnaður – við aðstoðum þig við að spara
... og margt margt fleira
www.namsmenn.is
Námsmannaþjónusta Sparisjóðsins er fjármálaþjónusta fyrir námsmenn
16 ára og eldri. Með því að ganga í Námsmannaþjónustuna, tryggir þú þér
aðgang að víðtækri þjónustu og getur fengið ráðgjöf í fjármálum.
Ath. lán eru háð útlánareglum Sparisjóðsins
Þitt er valið!
HVAMMSTANGI: KAUPTÚN Á LITLU NESI VIÐ AUSTANVERÐAN MIÐFJÖRÐ
SEM GENGUR INN ÚR HÚNAFLÓA.
ÍBÚAFJÖLDI: 583
FJALLIÐ: Vatnsnesfjall.
UPPHAF BÚSETU: Fyrsta íbúðarhúsið var reist aldamótaárið 1900 en fimm
árum áður varð staðurinn löggiltur verslunarstaður.
LANDFRÆÐILEG EINKENNI: Í gegnum kauptúnið rennur lítil og falleg á.
GOTT AÐ VITA: Handverkshúsið á staðnum heitir Bardúsa.
SVIPMYND
Hjólreiðaferð meðfram sjónum er upplyfting bæði fyrir líkama og sál.
SJÓNARHORN
VISSIR ÞÚ …
28. ágúst 2004 LAUGARDAGUR12
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
… að árið 1899 héldu menn að búið
væri að finna allt upp sem hægt
væri að finna upp?
… að skakki turninn í Pisa hefur
aldrei verið alveg beinn?
… að dósahnífurinn var fundinn upp
48 árum á eftir niðursuðudósinni?
… að Óskarsverðlaunin voru veitt
tvisvar árið 1930?
…að það eru til yfir tuttugu þúsund
tegundir af bjór?
…að það er minna koffein í espressó-
bolla en venjulegum kaffibolla?
… að Pétur mikli skattlagði þá sem
létu sér vaxa skegg?
… að Móna Lísa er ekki með neinar
augabrúnir því það var í tísku í Flór-
ens að raka þær af?
… að líkami þinn býr til og eyðir
fimmtán milljón rauðum blóðkorn-
um á sekúndu?
… að gler er milljón ár að eyðast í
náttúrunni?
… að næstum helmingur allra dag-
blaða í heimi kemur út í Bandaríkj-
unum og Kanada?
… að flestir varalitir innihalda fiskroð?
… að meira en 2.500 örvhentir deyja
árlega í Bandaríkjunum úr því að
nota hluti sem hannaðir eru fyrir
rétthenta?
… að broddgeltir fljóta?
… að lengsta skráða flug hænu varði
í 13 sekúndur?
… að kattahland lýsir í ákveðinni
birtu?
Blómið:
Helluhnoðri
Helluhnoðri myndar lágvaxna,
litfagra brúska og vex í klettum,
sandi og á melum um allt land.
Blöðin eru safamikil og snubbótt
og sitja þétt og blómin eru fagur-
gul og breiðast út í stjörnu. Hellu-
hnoðri blómgast í júlí og ágúst.
Þótt blöðin séu beisk á bragðið
lögðu menn þau sér til munns og
töldust þau góð við skyrbjúgi,
kvefi, hósta og harðlífi. Bæði má
sjóða blöðin í seyði fersk og
þurrkuð.
Heimild: Ágúst H. Bjarnason.
Íslensk flóra með litmyndum.
Iðunn 1983 og Myndskreytt flóra
Íslands og Norður-Evrópu.
Skjaldborg 1992. ■