Fréttablaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 28. ágúst 2004 27
www.toyota.is
Sýningin er opin
laugardag kl. 12 - 16
sunnudag kl. 13 - 16
ING um helgina
Nú eru
síðust
u forv
öð að
tryggj
a sér A
vensis
á þess
u tilbo
ði.
Innifal
ið: Kró
mpakk
i og ál
felgur
eða só
llúga.
Avens
is 120
.000 k
r.
aukab
únaðu
r fylgi
r
Ný sýning verður opnuð í Lista-
safninu á Akureyri í dag. Að þessu
sinni hefur Hannes Sigurðsson
forstöðumaður fengið fjóra
breska listamenn til þess að sýna
verk sín. Þeir eru ein fjölskylda,
foreldrar og tvö börn, sem hafa
starfað saman að listsköpun sem
ein heild allt frá því á sjöunda ára-
tug síðustu aldar.
„Þegar við Georgia vorum lítil
fylgdumst við með foreldrum
okkar vinna. Við fórum snemma
að tína til verkfæri og pensla til
að hjálpa þeim,“ segir Sebastian
Boyle, sem nú er rúmlega fertug-
ur. Systir hans Georgia er fáum
árum yngri.
„Þetta var auðvitað á þeim tím-
um þegar allir áttu að fá að vera
með. Foreldrar okkar vildu ekki
útiloka okkur frá því sem þeir
voru að gera, þannig að á endan-
um vorum við orðin fullgildir
þátttakendur. Þetta var orðið sam-
starf fjögurra listamanna sem
fullt jafnræði er með.“
Foreldrarnir eru Mark Boyle
og Joan Hills sem eru gamal-
reyndir Fluxarar, upphafsmenn
þeirrar hreyfingar ásamt öðrum.
Þau voru vinir og samstarfsmenn
listamanna á borð við Jimi
Hendrix og Dieter Roth.
Með Hendrix bjuggu þau til
eitt vinsælasta „skynvíkkunar-
ljósasjó“ skemmtistaðanna sem
margir kannast við úr bíómynd-
unum um hippatöffarann Austin
Powers.
Sýningin á Akureyri nefnist
Ferð að yfirborði jarðar, og þar
sýnir Boyle-fjölskyldan þrívíðar
veggmyndir sem eru nákvæmar
eftirgerðir af ákveðnum blettum
á jörðinni.
„Þetta er eins konar nútímalegt
form landslagsmálverka en þessi
verk eru líka mjög hugmyndaleg í
eðli sínu. Við ferðumst út um allan
heim á staði sem valdir eru af al-
gerri tilviljun með því að kasta
pílu á kort. Þegar við komum svo
á staðinn hendum við upp í loftið
hornvinkli, eins og trésmiðir nota,
og þar sem hann lendir verður eitt
horn myndarinnar.“
Svæðið, sem eftirmynd er gerð
af, getur verið af hvaða tagi sem
er, ýmist í borg eða sveit, í fjöru
eða uppi á fjalli, allt eftir því hvar
pílan kemur niður á kortinu.
„Í einu herbergi sýningarinnar
eru fjórtán myndir af sama svæð-
inu, sem er partur af fjöru á
Englandi. Myndirnar sýna hvernig
flóð og fjara breyta gárumynstrinu
í sandinum. Ekkert verkanna er
eins því sandurinn á þessum bletti
er aldrei eins og verður aldrei aft-
ur nákvæmlega eins, jafnvel þótt
hundrað milljón ár líði.“
Þau vilja ekki lýsa nákvæm-
lega þeim aðferðum sem þau beita
við að gera nákvæma eftirmynd
af þeim svæðum sem verða fyrir
valinu, enda vilja þau að áhorf-
andinn horfi frekar á verkin eins
og þau koma fyrir sjónir en að
velta mikið fyrir sér hvernig þau
verða til.
Opnun sýningarinnar ber upp á
Akureyrarvöku sem er menning-
arnótt þeirra Akureyringa og víst
er að bærinn mun allur iða af lífi
og menningu í allan dag. Ekki
spillir svo fyrir að það er engin
önnur en Cherie Blair, forsætis-
ráðherrafrú Bretlands, sem opnar
sýningu Boyle-fjölskyldunnar
ásamt sendiherra Bretlands á Ís-
landi. ■
■ LISTSÝNING
■ ■ SAMKOMUR
13.00 Árleg uppskeruhátíð verður
haldin í Grasagarði Reykjavíkur.
Milli kl. 13 og 15 verður fræðsla
um matjurtaæktun og einstakar
tegundir matjurta, krydd- og
lækningajurta, eftir það verður
slegið upp hlaðborði með öllum
tegundunum í nytjajurtagarðin-
um og gestir geta bragðað á
uppskerunni til kl. 17. Leiðsögn
annast Auður Jónsdóttir garð-
yrkjufræðingur, Eva G. Þorvalds-
dóttir forstöðumaður og Jó-
hanna Þormar garðyrkjufræðing-
ur. Mæting er í lystihúsinu sem
stendur við garðskálann. Aðgang-
ur er ókeypis.
■ ■ SÝNINGAR
12.00 Listasafn Reykjavíkur tekur
þátt í Magnaðri miðborg í dag
með sýningu á tveimur verkefn-
um sem um áttahundruð 16 ára
unglingar úr Vinnuskóla Reykja-
víkur unnu þar í sumar. Af þessu
tilefni verður frítt í safnið.
■ ■ MARKAÐIR
12.00 Grænmetismarkaður með
meiru verður að Mosskógum
Mosfellsdal.
■ ■ SÖNGLEIKIR
20.00 Sumaróperan sýnir söng-
leikinn Happy End í Gamla bíói.
Þetta er síðasta sýningin.
■ ■ AKUREYRARVAKA
10.00 Sýning á munum og ljós-
myndum úr leiðöngrum að flaki
flugvélarinnar Fairey Battle, sem
fórst 26. maí 1941 á hálendinum
milli Eyjafjarðar og Öxnadals, verð-
ur opnuð í Minjasafni Akureyrar.
11.00 Heimildamyndahátíð verður
í Hafnarstræti 94 (áður Sporthús-
ið) til miðnættis. Sýndur verður
fjöldi gagnrýnna mynda, svo sem
„The Truth and Lies of 9-11“.
15.00 „Ferð að yfirborði jarðar“
nefnist yfirlitssýning á verkum
Boyle-fjölskyldunnar, sem opn-
uð verður í Listasafninu á Akur-
eyri.
16.00 Heimildarmynd Gísla Sigur-
geirssonar, Bærinn við Pollinn -
Gengin spor, verður sýnd í Borg-
arbíói á Akureyri kl. 16, 17, 18 og
19.
16.30 Georg Guðni opnar sýningu
í 02 gallery á Akureyri.
21.30 Inga Eydal og hljómsveit
verða í djass- og blúsveiflu í
Deiglunni á Akureyri. Hljómsveit-
ina skipa Gunnar Gunnarsson á
píanó, Jón Rafnsson á kontra-
bassa og Benedikt Brynleifsson
á trommur og slagverk.
23.00 Eldganga frá Listagili niður á
uppfyllinguna við Strandgötu. Þar
verða tendraðir ógleymanlegir
eldar.
Menningarsveitin Skítamórall gerir
allt vitlaust á menningarnótt í
Sjallanum, Akureyri.
hvar@frettabladid.is
Rýnt í yfirborð jarðar
BOYLE-FJÖLSKYLDAN Opnar sýningu á
verkum sínum í Listasafninu á Akureyri í
dag.
SANDUR Í FJÖRU Á ENGLANDI Eitt verka Boyle-fjölskyldunnar.