Fréttablaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 18
Góð heilsa er gulli betri. Góð heilsa er þó ekki sjálfgef-
in heldur þurfa flestir að leggja rækt við hana. Það er
best gert með því að temja sér heilbrigðan lífsstíl
fremur en að ætla að snúa öllu við með skyndiátaki.
Líkami og sál
GUÐJÓN BERGMANN, JÓGAKENNARI
OG RITHÖFUNDUR, SKRIFAR UM
NAUÐSYN ANDLEGRAR ÞJÁLFUNAR
Hverju trúa íþróttamenn?
gbergmann@gbergmann.is.
Í síðustu viku álpaðist ég til þess
að hlusta á Valtý Björn á Skon-
rokki um stund að loknum einum
tapleik Íslendinga í handboltan-
um (sem varla má minnast á
eftir glæsilega sigra átjánda
ágúst). Einn maður hringdi inn
og sagði hreint út að strákarnir
okkar hefðu ekki trúað því að
þeir gætu sigrað, þess vegna
hefðu þeir tapað. Þetta hefur
lengi loðað við íslenska íþrótta-
menn. Þeir hafa getuna, styrkinn,
úthaldið og tæknina, en síðan
skortir oft trúna. Hugarfarið
hefur ekki verið þjálfað. Hér eru
ekki á ferðinni nein ný vísindi. Í
einu elsta riti jógafræðanna
segir: „Maðurinn er og verður
það sem hann trúir og hugsar
ávallt um.“ Orðskviður Búdda
hefjast þannig: „Við erum það
sem við hugsum. Allt sem við
erum rís með hugsunum okkar.
Með hugsunum okkar sköpum
við heiminn.“ Fleiri menn hafa
sagt hið sama. Á síðustu öld var
þeirra frægastur Henry Ford
sem sagði eitthvað á þá leið að
hvort sem maðurinn trúði því að
hann gæti eitthvað eða trúði því
að hann gæti það ekki hefði hann
rétt fyrir sér. Mér þykir gaman
að horfa á Ólympíuleikana. Þar
sést greinilega að þeir sem tapa
hafa einungis þjálfað líkamann
en sigurvegararnir hafa þjálfað
líkamann og hugann af sama
krafti. Enginn vinnur nema að
hann trúi því staðfastlega að
hann geti unnið. Þetta ættu þjálf-
arar á Íslandi að íhuga. ■
Það er ekki algengt að þrír ætt-
liðir stundi sama sportið. Sú er
þó raunin hjá Karatefélaginu
Þórshamri. Þar æfa Sigrún
María Guðmundsdóttir, dætur
hennar tvær og tvö barnabörn
karate og hafa gert í fjögur ár.
„Við byrjuðum öll árið 2000,“
segir Sigrún María og lýsir að-
dragandanum. „Ég ætlaði að
bjóða dóttursyni mínum á nám-
skeið. Því fylgdi ókeypis prufu-
tími fyrir fjölskylduna svo við
mæðgurnar fórum og fannst svo
gaman að við höfum ekki hætt.“
Hvaða gildi hefur svo karate
fyrir Sigrúnu? „Það gefur mér
lipurð og styrk, bæði andlegan
og líkamlegan,“ svarar hún og
kveðst hafa stundað leikfimi,
badminton og sund. „Allt hefur
sína kosti og mér finnst karate
eiga mjög vel við mig núna.“
Sigrún segir andann í hópnum
hafa líka sitt að segja. „Börnin
fara í ævintýraferðir og við hin
höfum farið í langar göngur
þannig að það er mikill félags-
skapur í kringum þetta.“
Yfirleitt er fólki skipt upp í
tíma miðað við hversu langt það
er komið á karatebrautinni og
stigin eru metin með beltum. Yfir
sumarið dregur úr aðsókn og þá
eru sameiginlegar æfingar. Því
eru þau öll á sömu æfingu kvöldið
sem viðtalið er tekið, Sigrún
María, dætur hennar Ásta María
og Aðalbjörg og börn Aðalheiðar,
Davíð Örn 13 ára og Árdís María á
11. ári. Ásta María kveðst áður
hafa verið í ballett og karate svipi
til hans tæknilega séð. „Liðleikinn
hefur mikið að segja og maður
þarf að geta sparkað hátt í
karate.“ Þau eru öll sammála um
að aginn sé eitt af því sem lærist í
þessari íþrótt. „Maður agar sig
bæði gagnvart sjálfum sér og
öðrum og lærir að ekki þýðir að
kvarta þótt æfingarnar séu
erfiðar. Maður er alltaf hvattur
áfram til að finna þessi 10% sem
eftir eru af orkunni. Þetta er mjög
góð líkamsrækt,“ segir Ásta
María sannfærandi.
Davíð Erni og Árdísi Maríu
finnst fínt að vera í sama sporti og
amma. En hugsa þau um karate
sem bardagaíþrótt? „Nei,“ segir
Árdís María. „Enda megum við
alls ekki nota það nema í sjálfs-
vörn. Við lærum hins vegar að
koma vel fram hvert við annað.“
Ásta María, móðursystir hennar,
tekur undir það. „Þetta gengur út
á að bera virðingu fyrir andstæð-
ingnum og þar með öllum mann-
eskjum.“
gun@frettabladid.is
Karate:
Röðin á beltunum
Karate í Þórshamri:
Þrír ættliðir saman á æfingu
Öll í karate, Árdís María Halldórsdóttir, móðir hennar Aðalbjörg Karlsdóttir, amman Sigrún María
Guðmundsdóttir, bróðirinn Davíð Örn Halldórsson og móðursystirin Ásta María Sverrisdóttir.
Gult
Appelsínugult
Rautt
Grænt
Blátt
Fjólublátt
Ljósbrúnt
Millibrúnt
Dökkbrúnt
Svart
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Töflur fyrir minnið:
Góðar fyrir
unga sem aldna
Nú eru fáanlegar á Íslandi Fosfoser
Memory-töflur, sem voru valdar fæðu-
bótarefni ársins 2002 í Finnlandi. Fram-
leiðsla Fosfoser Memory byggist á ens-
ímaferli þar sem notast er við hvítkáls-
ensím í stað bakteríuensíma. Fjöldi
klínískra rannsókna hefur verið gerður á
efninu og niðurstöður verið mjög já-
kvæðar. Þeir sem tóku efnið áttu auð-
veldara með að leggja upplýsingar á
minnið og sjónrænt minni og talna-
minni batnaði. Þá höfðu töflurnar góð
áhrif á skapferli fólks.
Ísraelsmaðurinn Jakob Gidin, læknir og
sérfræðingur í öldrunarsjúkdómum, hefur
gert víðtæka rannsókn á virkni Fosfoser
Memory hjá eldra fólki, bæði með óskert
minni og minnissjúkdóma, og segir að
yngri jafnt sem eldri geti notið góðs af
efninu. Töflurnar fást í stórmörkuðum,
heilsuverslunum og apótekum. ■
YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082
- þar sem þú getur treyst á gæðin -
Lífrænt ræktaðar vörur
Er maginn vandamál?
Stress, þreyta og sérstakur
matur getur sett magann úr
jafnvaægi.
Óþægindi lýsa sér oft sem
nábítur, brjóstsviði,
vindgangur, harðlífi og
niðurgangur.
Þetta þykir öllum afar
óþægilegt og líður þá illa í
öllum líkamanum.
Silicol fæst í apótekum
Ýmus ehf.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
Allir yoga unnendur velkomnir.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
FIMMTUDAGUR