Fréttablaðið - 31.08.2004, Blaðsíða 40
24 31. ágúst 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ ROCKY
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Martin Kellerman
Eftir Frode Överli
S k e m m t i l e g t
hvað fólk getur
orðið vitlaust
með víni. Einu
sinni drakk ég til
þess að skerpa á
hugsuninni og
auðga andann. Það
virkaði ekkert sér-
staklega þegar upp
var staðið og ég hef
ekki enn hitt þann mann sem
verður gáfaðri við það að drekka.
Leitaði samt að þessum manni í
miðborg Reykjavíkur um helgina.
Hann lét ekki sjá sig en það var
aftur á móti offramboð á fólki
sem verður vitlaust með víni.
Ég skemmti mér því konung-
lega þar sem það gleður mig fátt
jafn mikið og að fá að fylgjast
með öðrum verða sér til skammar.
Þar fyrir utan er ágætt að láta
minna sig á það með grafískum
hætti hvað varð til þess að maður
hætti að drekka. Góður kunningi
minn hefur þróað sérstakt 12
spora kerfi til að halda mönnum
þurrum en það gengur út á að
ganga í gegnum Kaffi Austur-
stræti í 12 sporum og virða fyrir
sér eymdina hjá hirð Bakkusar.
„Þú mátt alls ekki stoppa því þá
er stutt í að þú byrjir að drekka
með þeim,“ segir þessi sjálfskipaði
áfengisráðgjafi. Ég tek þó sénsinn
af og til og sit tímunum saman á öl-
krám. Finn mér gott stúkusæti og
fæ mér kaffi. Um helgina fékk ég
að sjá tvo alíslenska fituhlunka
upplifa sig sem kyntröll með þeim
afleiðingum að þeir tættu sig úr að
ofan og leyfðu viðstöddum að skoða
mörina sem þeir hafa safnað utan á
sig. Hjón rifust og menn hótuðu
slagsmálum á báða bóga og undir
þessu sjónarspili var leikin angur-
vær sinfónía hinna brotnandi glasa.
Nóttin náði hápunkti þegar
dagfarsprúður komplexabolti
hvolfdi borði með leikrænum til-
þrifum þannig að nokkrir lítrar af
bjór fóru til spillis. Sem gömul
fyllibytta gat ég ekki varist þeirri
hugsun að þarna hefði verið farið
illa með góðan bjór. Sá samt ekki
eftir miðinum í gólfið.
Þetta er yndislegt líf, sérstak-
lega þegar aðrir eiga bömmer-
ana. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON HRESSIR UPP Á SJÁLFSTRAUSTIÐ MEÐ ÞVÍ AÐ HANGA MEÐ FULLU FÓLKI
Undir áhrifum
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Laugarvegi - Reykjavík
Dalshrauni - Hafnarfirði
Skólabraut - Akranesi
Hólmgarði - Reykjanesbær
buxur frá
kr. 490.-
ÚTSALA
fjölbreytt
úrval
SÍ‹UMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
tækniKomdu og prófaðu!
Danmörk 0 kr/minSvíþjóð 0 kr/min
Holland 0 kr/min
Þýskaland 0 kr/minJapan 0 kr/min
England 0 kr/min
Ísland 0 kr/minBandaríkin 0 kr/min
ALLSTAÐAR 0 KR/MIN AÐ HRINGJA
Bara
botnleðjan
eftir!
Í ALVÖRU?
Ertu að
MEINA það?
Húgó! Þú ert
öðlingsdreng-
ur! Ég vil þér
bara vel!
Þó það nú
væri!
Öðlingur!Úps!
Djöfull hvað þetta er leim! Ég
vinn tíu tíma á dag og svo eyði
ég öllum laununum mínum í bjór
og kvarta undan vinnunni!
Ég er svona rannsóknarrotta
sem leysi nokkrar mismunandi
þrautir fyrir skítalaun! Þeir
gætu líka haft bjórpillur í röri
fyrir ofan skrifborðið mitt. Þá
gætu þeir verðlaunað mig þegar
ég er búin að ýta nógu oft á
takkana!
Rannsóknarrottur fá þó
reglulega að eðla sig....
Hvað hefurðu gert við hendina
á þér? Hún er öll rauð!
Ah! Þú myndir aldrei
skilja það!
Þú þarna
Svo að Hannes verður
hjá Jóhönnu og Grétu á
morgun á meðan ég er
að hjálpa til í bekknum
þínum.
Verðurðu
þarna allan
morguninn?
Og hjálpar
kennaranum?
Jamm,
allan
morguninn.
Við allt sem
hún þarf.
Lofarðu að
verða mér ekki
til skammar?
Engar
áhyggjur.
Ég lita aldrei
út fyrir.
Hættu strax að
fara úr hárunum!!!
Við verðum að uppgötva
aftur hvað gerir okkur
að mönnum!
Sá
sem drekkur
síðasta boll-
ann VERÐUR
að hella upp á
næstu könnu!
Húgó! Ég vil
að ÞÚ fáir
síðasta boll-
ann!
Og þetta var svo það sem þúsund-
nálaklúbburinn varð spenntur....