Fréttablaðið - 01.09.2004, Page 1
● fh vann stórsigur í Grindavík í gær
Landsbankadeild karla
▲
SÍÐA 24
FH-ingar feti
frá titlinum
● skipuleggur nú líkamsræktarráðstefnu
Unnur Pálmarsdóttir:
▲
SÍÐA 30
Byrjaði í þolfimi með
Magnúsi Scheving
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM Í
BORGINNI og vestan til á landinu og
stöku skúrir. Væta austan til fram á kvöld.
Hiti víðast á bilinu 10-15 stig. Sjá síðu 6.
1. september 2004 – 237. tölublað – 4. árgangur
GJALDEYRISLÁN
BORGA SIG Hópur há-
skólanema á Bifröst segir
að borgað hefði sig fyrir
lántakendur að taka gjald-
eyrislán fremur en verð-
tryggð íslensk lán á síð-
ustu tíu árum. Vel þarf þó
að fylgjast með þróun lánanna. Sjá síðu 2
BORGIN ÚR FJARSKIPTAREKSTRI
Með sölu á Línu.neti lýkur umdeildum rekstri
borgarfyrirtækja á fyrirtækjum í fjarskipta-
rekstri. Að minnsta kosti tveir milljarðar hafa
tapast í fjarskiptarekstri borgarinnar síðustu
fimm ár. Sjá síðu 4
LÍTIL RÆKJUVEIÐI Ólafur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Þormóðs ramma - Sæ-
bergs hf., segir ekki borga sig að veiða rækj-
una þegar olíulítrarnir sem þarf í veiðarnar
eru fleiri en kílóin sem koma í land.
Sjá síðu 6
SKRIÐA VAXTALÆKKANA KB banki
ýtti nýrri skriðu lækkana af stað í gær þegar
hann lækkaði vexti sína í 4,2 prósent. Sífellt
erfiðara verður fyrir smærri fjármálafyrirtæki
að fylgja eftir. Aðjúnkt við Háskólann í Reykja-
vík telur engin rök lengur fyrir tilvist Íbúða-
lánasjóðs. Sjá síðu 16
Kvikmyndir 30
Tónlist 30
Leikhús 30
Myndlist 30
Íþróttir 22
Sjónvarp 32
Ellert Aðalsteinsson
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Á leirdúfuveiðum
● nám ● fjármál
Ruth Reginalds:
▲
SÍÐA 22
Fer í ræktina og
borðar góðan mat
● 39 ára í dag
Samkeppnisstaða
fyrirtækja skerðist
Nefnd ráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi leggur til að Samkeppn-
isstofnun fái heimild til að stokka upp fyrirtæki. Ráðherra telur tillög-
urnar styrkja efnahagslífið ef þær verða að lögum.
MENNING Þrautasögu Þjóðminja-
safns Íslands lýkur í dag þegar
dyrnar að nýju og stórlega endur-
bættu húsnæði safnsins að Suður-
götu verða opnaðar aftur eftir
sex ár. Hefur starfsfólk safnsins
unnið hörðum höndum að því
undanfarnar vikur að skipu-
leggja eina mestu þjóðminja- og
sögusýningu sem haldin hefur
verið hér á landi af þessu tilefni.
Mikið hefur gengið á síðan
safninu var lokaði vegna endur-
bóta árið 1988 og hafa ítrekað
orðið tafir á framkvæmd verks-
ins. Upphaflega stóð til að það
yrði opnað aftur um aldamótin en
Margrét Hallgrímsdóttir, þjóð-
minjavörður, segir tafirnar hafa
verið af hinu góða því tíminn hafi
gefið starfsfólki tækifæri til að
skipuleggja alla undirbúnings-
vinnu og sýningar mun betur fyr-
ir vikið.
Ein mesta sýning um sögu
lands og þjóðar frá landnámi til
nútíma sem sett hefur verið upp
hérlendis er aðalsýning safnsins.
Í minni sölum verða sérsýningar;
Brúðkaupssiðir á Íslandi og Mót-
un ljósmyndunar á Íslandi. Í safn-
inu eru nú tveir stórir sýningar-
salir, kaffihús, safnverslun, fyrir-
lestrarsalur og kennslustofa fyr-
ir þá skólahópa sem áhuga hafa.
Þjóðminjasafnið fagnar enn-
fremur fleiri tímamótum í ár. Nú
eru 60 ár síðan safnið var reist við
stofnun lýðveldisins árið 1944. ■
Mannfjöldatölur:
Fólksfjölgun
í Evrópu
EVRÓPUSAMBANDIÐ Íbúum Evrópu-
sambandsins fjölgaði í fyrra um
0,4 prósent og eru um 456 milljón
talsins. Það er tæplega 7,2 prósent
jarðarbúa, en sem fyrr eru Kína
og Indland fjölmennustu ríkin.
Kínverjar eru 1.295 milljónir og
Indverjar 1.057 milljónir.
Fólksfækkun er mest í Lett-
landi, Litháen og Eistlandi, eða
rúmlega fjögur prósent fækkun.
Kýpurbúum og Spánverjum fjölg-
ar mest, um 21 og 15 prósent. Í
flestum landa sambandsins má
rekja fjölgun til innflytjenda.
Írland og Holland skera sig þó úr,
þar fjölgaði íbúum um átta og
þrjú prósent, nær eingöngu vegna
barneigna. ■
VIÐBRÖGÐ VIÐ MORÐUNUM
Myndir af morðunum birtust á vef samtaka
sem nefna sig „Her Ansar al Sunnah“ og
vöktu óhug þeirra sem skoðuðu þær.
Reiði í Nepal:
Tólf gíslar
myrtir
NEPAL, AP Mikil reiði ríkir í Nepal
eftir að tólf þarlendir gíslar voru
myrtir af vígamönnum í Írak.
Reiðin beinist bæði að morðingj-
unum og stjórnvöldum í Nepal
sem þykja ekki hafa gert nóg til
að tryggja lausn gíslanna.
Upptaka af morðunum var birt
á vef sem tengist hóp íraskra
vígamanna. Á myndbandinu sést
grímuklæddur maður skera einn
gíslanna á háls og annar skjóta
hina í höfuðið.
Stjórnvöld í Nepal hafa bannað
þegnum sínum að vinna í Írak en
margir freistast þó til þess í von
um að geta framfleytt sér og fjöl-
skyldum sínum. ■
MANNFJÖLDI
Íbúum Evrópusambandsins fjölgaði um
0,4 prósent árið 2003 og eru orðnir 456
milljónir.
VIÐSKIPTASKÝRSLAN Tillögur nefnd-
ar um íslenskt viðskiptaumhverfi
munu hafa lítil áhrif á starfandi
fyrirtæki á Íslandi verði þær að
lögum en munu styrkja íslenskt
efnahagslíf, að sögn Valgerðar
Sverrisdóttur, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra.
Fulltrúar atvinnulífsins og einn
nefndarmanna eru á annarri skoð-
un. Þeir halda því fram að sam-
keppnisstaða íslenskra fyrirtækja
muni skerðast ef Samkeppnis-
stofnun verði heimilað að krefjast
uppstokkunar á fyrirtækjum telj-
ist þau hafa brotið gegn ákvæðum
samkeppnislaga.
Er það mat Þórdísar J. Sigurð-
ardóttur, framkvæmdastjóra
Stjórnendaskóla Háskólans í
Reykjavík sem átti sæti í nefnd-
inni, Ara Edwald, framkvæmda-
stjóra Samtaka atvinnulífsins,
Þórs Sigfússonar, framkvæmda-
stjóra verslunarráðs, og Þórðar
Friðjónssonar, forstjóra Kauphall-
arinnar.
Í skýrslunni er tekið fram að
heimild til uppstokkunar sé í sam-
ræmi við breytingar sem nýlega
voru gerðar á samkeppnisreglum
Evrópusambandsins og norskum
samkeppnislögum. Þá segir að
sambærilegar heimildir sé að
finna í fleiri löndum. Einnig er
bent á að Samkeppnisstofnun hafi
þegar heimild til þess að beita
ákvæði sem þessu varðandi opin-
berar stofnanir sem stunda sam-
keppnisrekstur.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, segir að
áhyggjur atvinnulífsins séu
byggðar á misskilningi. „Tillög-
urnar eru í samræmi við það sem
tíðkast í löndunum í kringum okk-
ur og ESB hefur þennan rétt.
Ákvæðið verður tekið inn í EES-
samninginn og því mun eftirlits-
stofnun EFTA, ESA, fylgjast með
því að þessu verði framfylgt á
EES-svæðinu,“ segir hún.
Í skýrslunni er meðal annars
lagt til að samkeppnisráð verði
lagt niður. Samkeppnisstofnun
taki við hlutverki þess og verði
hún efld til muna. Sett verði á fót
sérstök stofnun sem fari með eft-
irlit með ólögmætum viðskipta-
háttum. Ekki þótti nefndinni
ástæða til að setja sérstök lög um
hringamyndun.
Stjórnarandstaðan segir margt
gott í skýrslunni.
sda@frettabladid.is
Sjá nánar síður 10, 11 og 12.
Eftir sex ár getur fólk loksins heimsótt nýtt og endurbætt safn:
Þjóðminjasafnið opnað á ný
LOKAFRÁGANGUR VIÐ ÞJÓÐMINJASAFNIÐ
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, opnar í dag Þjóðminjasafn Íslands við Suðurgötu að nýju eftir sex ára hlé.
Núverandi safn er afar ólíkt því sem áður var og af tilefninu verða opnaðar glæsilegar sýningar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/M
YN
D
/G
VA
ÁHRIF SJÁVARÚTVEGSINS Sveinn
Agnarsson, hjá Hagfræðistofnun, heldur er-
indi um „Áhrif sjávarútvegs á íslenskt efna-
hagslíf“ á málstofu Hagfræðistofnunar og
Viðskiptafræðistofnunar Háskólans í Odda, í
stofu 101, klukkan fimmtán mínútur gengin í
eitt í dag.