Fréttablaðið - 02.09.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
TÓNLEIKAR Í FRÍKIRKJUNNI Sig-
ríður Ósk Kristjánsdóttir sópransöngkona
heldur tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í
kvöld klukkan átta. Með henni koma fram
Lára Rafnsdóttir píanóleikari, Jón Bjarnason
orgelleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleik-
ari, Bentína Sigrún Tryggvadóttir mezzosópr-
an og Daði Sverrisson píanóleikari.
DAGURINN Í DAG
SKÝJAÐ MEÐ KÖFLUM í borginni
og stöku skúrir síðdegis. Rigning með
köflum austan og norðaustan til. Hiti víðast
á bilinu 10-15 stig. Sjá síðu 6
2. september 2004 – 238. tölublað – 4. árgangur
● ferðir ● tíska ● heimili
Hjartað slær í Kína
Guðrún Ólafsdóttir:
● stórsigur eyjastúlkna
Valur og ÍBV mætast
Bikarúrslit kvenna:
▲
SÍÐA 26
BREYTT VIÐ-
SKIPTAUM-
HVERFI Viðskipta-
ráðuneytið undirbýr
þrjú frumvörp sem
endurspegla eiga til-
lögur nefndar um ís-
lenskt viðskipta-
umhverfi. Sjá síðu 2
MILLJARÐA ENDURBÆTUR Þjóð-
minjasafnið var opnað að nýju í gær. Opn-
unardegi hefur margoft verið frestað og
heildarfjárútlát ríkisins vegna endurbótanna
eru áætluð um 1,3 milljarðar. Sjá síðu 4
SAMRÁÐ HAFT VIÐ KAUPHÖLL
Forstjóri Burðaráss segir að samráð hafi ver-
ið haft við Kauphöllina um tilkynningu við-
skipta við Orra Vigfússson um bréf Íslands-
banka. Ekki hafi staðið á vilja til þess að
upplýsa um eðli viðskiptanna. Sjá síðu 6
KUNNUM EKKI Á SPILLINGU Í út-
tekt Ríkjahóps Evrópuráðsins á spillingu
segir að Íslendingar hafi ekki reynslu í að
taka á spillingarmálum. Alþjóðlegt við-
skiptaumhverfi auki hættu á slíkum málum
og innleiða þurfi skýrar reglur. Sjá síðu 8
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 38
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 40 Veldu
ódýrt
bensín
Eina númerið
sem þú þarft
að muna.
LÖGREGLUMÁL Maður frá Litháen var
stöðvaður af tollgæslunni á Kefla-
víkurflugvelli á sunnudag vegna
gruns um að hann væri með fíkni-
efni innvortis. Maðurinn var að
koma frá Kaupmannahöfn. Honum
var gert að sæta röntgenskoðun,
sem staðfesti að grunurinn var á
rökum reistur. Héraðsdómur
Reykjaness úrskurðaði hann í
gæsluvarðhald í viku á mánudag,
daginn eftir að hann kom til lands-
ins. Maðurinn er 23 ára og er bú-
settur í Vilníus í Litháen.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
tók yfir rannsókn málsins. Var
maðurinn í sérlegri gæslu á meðan
efnin voru að skila sér frá honum.
Það var ekki fyrr en um hádegisbil
í gær sem síðustu efnin skiluðu sér.
Það voru rúmlega sjötíu kúlur með
um 300 grömmum af kókaíni, sam-
kvæmt því sem Fréttablaðið kemst
næst. Götuverð efnisins er um
þrjár milljónir króna. Maðurinn
hefur reynst mjög ósamvinnuþýður
við lögreglu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun lögreglurannsóknin
meðal annars beinast að því hvort
tengsl séu milli þessa máls og lík-
fundarmálsins í Neskaupstað, þeg-
ar Vaidas Jucevicius frá Litháen
fannst látinn í netagerðarhöfninni
11. febrúar síðastliðinn með mikið
magn af fíkniefnum innvortis. Í því
tilviki hafði efninu, sem var um 400
grömm af amfetamíni, verið komið
fyrir í 60 sérútbúnum hylkjum. Nið-
urstöður krufningar leiddu í ljós að
Vaidas Jucevicius, sem einnig kom
frá Vilníus og var tæplega þrítugur,
lést af þarmastíflu vegna fíkniefna-
pakkninga sem voru í iðrum hans.
Hann ætlaði að fara um Kaup-
mannahöfn á leið sinni til baka út úr
landinu, en skilaði sér aldrei í flug-
ið.
Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður staðfesti að maðurinn væri í
gæsluvarðhaldi, en varðist allra
frekari frétta af málinu, þar sem
lögregla rannsakaði málið.
jss@frettabladid.is
Grunur um tengsl
við líkfundarmálið
Maður frá Litháen er í gæsluvarðhaldi eftir tilraun til að smygla 300
grömmum af kókaíni til landsins. Heimildir blaðsins herma að málið sé
rannsakað með tilliti til tengsla við líkfundarmálið í Neskaupstað.
Opið til 21.00 í kvöld
36%50%
VEÐRIÐ Í DAG
Vegir og slóðar:
Ákveða hvar
eigi að loka
SAMGÖNGUR Starfshópur umhverf-
is- og samgönguráðuneytis á að
gera tillögur um hvaða vegir og
slóðar í óbyggðum skuli teljast til
vega. Vinnan er liður í aðgerðum
til að stemma stigu við utanvega-
akstri. Í náttúruverndarlögum er
afdráttarlaust ákvæði um bann
við akstri utan vega, en í frétt ut-
anríkisráðuneytisins er slíkur
akstur sagður vera viðvarandi
vandamál.
Til grundvallar starfi hópsins
liggur vinna Landmælinga og
Vegagerðarinnar, sem hafa mælt
út um 22 þúsund kílómetra af veg-
um og slóðum á undanförnum
árum. Starfshópurinn metur hvar
opið má vera fyrir umferð og hvar
skuli loka. ■
Fljótandi kirkja:
Sprakk og
sökk í sæ
ÍRLAND, AP Fyrsta fljótandi kirkja
Írlands átti sér ekki langa lífdaga.
Kaþólski biskupinn Michael Cox
lét breyta togara í kirkju en áður
en kirkjan var formlega tekin í
notkun braust út eldur í skipinu,
sem varð fljótt alelda og sökk
eftir mikla sprengingu um borð.
Biskupinn hafði hugsað sér að
fylgja eftir skipi hollenskra sam-
taka sem ætla að dreifa „daginn
eftir pillum“ í löndum þar sem
fóstureyðingar eru bannaðar og
hvetja til þess að banninu verði
aflétt. Nú sér Cox fram á að það
takist ekki þar sem hann hefur
ekki efni á að kaupa annað skip.
Cox afneitar sumum kenningum
kaþólsku kirkjunnar og hefur
stofnað nýja kirkjudeild, Írsku
hreintrúar- og postulakirkjuna. ■
ÞJÓÐMINJASAFN Davíð Oddsson
forsætisráðherra klippti á borðann
þegar Þjóðminjasafn Íslands var
opnað í gær eftir að hafa verið lok-
að í sex ár vegna lagfæringa og
breytinga.
Miklar breytingar verða á safn-
inu og verður starfsemi þess meiri
og fjölbreyttari en áður hefur verið.
Í húsinu hefur verið opnuð grunn-
sýning sem ber heitið Þjóð verður
til – Menning og samfélag í 1200 ár
og er þar leitast við að varpa ljósi á
það hvernig þjóð verður til.
Opnunarhátíðin hófst með því
að Skólakór Kársness söng íslensk
lög. Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður bauð gesti velkomna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra flutti ávarp
og afhenti þjóðminjaverði húsið.
Að vandaðri dagskrá lokinni opnaði
forsætisráðherra safnið með því að
klippa á hinn íslenska fánaborða. ■
HEIÐURSGESTIR Á OPNUNARHÁTÍÐ
Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff nutu þess að hlýða á vandaða hátíðardagskrána.
DAVÍÐ OG ÞÓRÓLFUR
Forstætisráðherra og borgarstjóri við
opnunina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
Fjölmenni við opnun Þjoðminjasafnsins:
Davíð klippti á borðann