Fréttablaðið - 02.09.2004, Blaðsíða 46
34 2. september 2004 FIMMTUDAGUR
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Antonía Hevesi píanóleikari
og organisti kemur fram ásamt
Eyjólfi Eyjólfssyni tenór á hádeg-
istónleikum í Hafnarborg, menn-
ingarmiðstöð Hafnarfjarðar.
12.15 Jón Svavar Jósefsson bassa-
baritónn og Agnes Löve píanó-
leikari koma fram á fyrstu tónleik-
um í hádegistónleikaröð Tónlist-
arskóla Garðabæjar, sem haldin
er í skólanum alla fimmtudaga í
september í tilefni af 40 ára af-
mæli skólans.
22.00 Lára syngur á Grand Rokk.
„Mig langar bara til að leyfa
fólki að heyra í manni og eiga
skemmtilega kvöldstund,“ segir
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
sópransöngkona, sem ætlar að
halda tónleika í Fríkirkjunni í
kvöld.
„Þetta er líka falleg kirkja og
góð stemning þar,“ bætir
Sigríður við en hún ætlar að
syngja trúarleg lög undir
orgelleik, íslensk og ensk söng-
leikjalög undir píanóspili. Sem
sagt leikandi létt dagskrá með
dramatísku ívafi.
Tilgangur tónleikanna er
einnig að afla fjár til að standa
straum af kostnaði við fram-
haldsnám Sigríðar Óskar í
London. Hún er þar að hefja
annað ár sitt í söngnámi í Royal
College of Music.
Með Sigríði Ósk á tónleikun-
um verða Lára Rafnsdóttir
píanóleikari, Jón Bjarnason org-
elleikari, Emilía Rós Sigfúsdótt-
ir flautuleikari, Bentína Sigrún
Tryggvadóttir mezzo-sopran og
Daði Sverrisson píanóleikari. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
30 31 1 2 3 4 5
Fimmtudagur
SEPTEMBER
!
""#
SIGRÍÐUR ÓSK KRISTJÁNSDÓTTIR
Heldur tónleika í Fríkirkjunni til að standa
straum af námi sínu í London.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Syngur fyrir náminu
„Héðan úr skólanum hafa út-
skrifast 35 eða 36 nemendur frá
byrjun, flestir í söng,“ segir Agn-
es Löve, skólastjóri Tónlistar-
skóla Garðabæjar, sem býður til
hádegistónleika á hverjum
fimmtudegi í septembermánuði í
tilefni af 40 ára afmæli skólans.
„Við ætlum að leyfa fólki að
heyra hvað þessir nemendur eru
að gera núna og ætlum að hafa
fimm tónleika í september. Ef
vel gengur ætlum við svo að efna
aftur til tónleika í janúar.“
Tónlistarskóli Garðabæjar
var stofnaður árið 1964. Fyrsti
skólastjórinn var Guðmundur
Nordal. Fyrsta veturinn voru 33
nemendur við skólann og þrír
kennarar.
„Bæjarfélagið hefur vaxið
mjög á þessum tíma og skólinn
með. Núna eru í skólanum á
fimmta hundrað nemendur og
upp undir þrjátíu kennarar.“
Söngdeildin hefur alltaf verið
mjög öflug í skólanum. Aðal-
kennari hefur verið Snæbjörg
Snæbjarnardóttir og frá henni
hafa útskrifast um 20 nemendur.
„Undanfarin ár hefur líka ver-
ið mjög mikil aðsókn í gítarnám.
Það er svo mikið af litlum strák-
um sem langar að læra á gítar.“
Í hádeginu í dag ætlar Jón
Svavar Jósefsson bassabarítón,
sem útskrifaðist vorið 2003, að
syngja. Skólastjórinn, Agnes
Löve, ætlar sjálf að leika með
honum á píanóið.
Hún situr líka við píanóið í
næstu viku þegar Haukur Páll
Haraldsson söngvari hefur upp
raust sína. ■
Fertugur
tónlistarskóli
■ TÓNLEIKAR
JÓN SVAVAR JÓSEFSSON OG AGNES LÖVE Koma fram á hádegistónleikum í Tón-
listarskóla Garðabæjar.
„Ég verð bara ein með gítarinn,“
segir Lára Rúnarsdóttir söng-
kona, sem verður með tónleika á
Grand Rokk í kvöld. „Líklega
verður einhver upphitunarhljóm-
sveit, en það er óráðið enn.“
Lára ætlar að flytja nokkur lög
af plötunni sinni, sem kom út fyrir
síðustu jól. Aðalefni tónleikanna
verður þó ný lög eftir Láru, sem
er býsna iðin við lagasmíðar þessa
dagana.
„Það kemur eitthvað á hverjum
degi,“ segir hún og segist aðspurð
semja fyrst og fremst um sjálfa
sig.
„Þetta er bara um það sem ég
er að ganga í gegnum hverju
sinni, og svo smá skáldskapur
með.“Annars er Lára þessa dag-
ana að hefja samstarf með hljóm-
sveitinni Delphi, sem hefur unnið
bæði með Quarashi og Maus.
„Við erum að fara að taka upp
plötu saman, en lögin mín verða
útsett þar allt öðru vísi en á síð-
ustu plötu. Þeir gera allt miklu
rafrænna og eru meira í tölvutón-
list.“ ■
LÁRA
Syngur nýtt efni á Grand Rokk í kvöld.
■ TÓNLEIKAR
Ein með gítarinn
■ TÓNLEIKAR
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I